Heimilisritið - 01.11.1952, Síða 36
heyrði hún óm af rödd móður
sinnar ,, Halló“.
An þess að greina orðaskil,
heyrði hún að móðir hennar fór
að tala í símann, og Súsönnu
varð rórra. Það var ekki til henn-
ar. Þetta var líka svo snemma,
sagði hún sefandi við sjálfa sig.
Litlar, lýsandi minningamynd-
ir fylltu hug hennar. Hún mundi,
þegar unglingarnir voru að rabba
saman og ærslast, og þau sátu
saman í sófanum og horfðust svo
lengi og dreymandi í augu, að það
var eins og koss.
Hún spratt fram úr rúminu og
hljóp að speglinum, grönn,
leggjalöng æskumær í krympuð-
um, bláum náttfötum. Hún skoð-
aði spegilmynd sína alvörugefin
á svip, starði djúpt í endalausa
gátu sinna eigin augna og hugs-
aði með óttablandinni virðingu:
Þetta er ég, Súsanna Carter, átján
ára gömul.
Hún baðaði sig í flýti, klæddi
sig og fór í pils og blúsu. Svo
gekk hún sönglandi niður stig-
ann. 1 eldhúsinu smellti hún kossi
á kinnina á mömmu sinni, áður
en hún settist og fór að borða.
Steikta svínakjötið var girnilegt,
en þegar hún hafði borðað svo-
lítið, varð henni hugsað til Dicks
og símans, og þá ýtti hún diskin-
um frá sér með undarlegri flökur-
tilkenningu.
Hún gekk út í garðinn og
skellti dyrunum á eftir sér. Morg-
unsólin breiddi sig yfir höfuð
hennar og herðar eins og gullið
sjal, og hún settist á verandar-
þrepið og rifjaði upp atburði síð-
ast liðins kvölds. Hvað var það,
sem hann hafði sagt, þegar þau
stóðu við viðtækið. Það var eitt-
hvað um hárið á henni —.
,,Súsanna!“ heyrðist hrópað
úr eldhúsinu. Hún opnaði augun
mótþróafull og sá móður sína
standa í eldhúsdyrunum. ,,Get-
urðu ekki skroppið út í búð fyrir
mig ?“
Súsanna stundi: ,,Ó, mamma,“
sagði hún óþreyjufull, ,,getur
Frank ekki farið ? Eg bíð eftir
mjög áríðandi símtali.“
,,Ég veit ekkert, hvar Frank
er,“ sagði frú Carter þolinmóð.
,,Þú ert heldur ekki nema örfáar
mínútur að því.“
Súsanna stóð upp, þótt henni
væri það sýnilega á móti skapi.
,,Ef einhver hringir, segðu þá að
ég komi strax aftur. Viltu lofa
því ?“
Frú Carter kinnkaði kolli ann-
ars hugar og fékk dóttur sinni
peninga og innkaupalista. Sús-
anna gekk niður garðstíginn, út
um hliðið og út á götuna með
löngum skrefujn. Inni í matvöru-
búðinni var hún að ærast af ó-
þolinmæði, meðan hún beið eftir
34
HEIMILISRITIÐ