Heimilisritið - 01.11.1952, Blaðsíða 41
lokaÖi dyrunum á eftir sér. Faðir
Lennar var falinn bak við blað-
ið. Frank sat á skammelinu fyr-
ir framan viðtækið, og móðir
hennar sat undir lampanum og
var að stoppa í sokka.
Súsanna virti þau fyrir sér á-
nægjulega — það var indæl fjöl-
skylda, sem hún átti — hún gat
prísað sig sæla!
,,Mamma,“ sagði hún og var
mikið niðri fyrir, ,,ég ætla upp að
skipta um föt. Fg ætla út með af-
tragðs pilti, sem ég hitti í gær-
kvöld. Hann heitir Dick Sheld-
on.“
,,Það var gaman fyrir þig,“
sagði frú Carter brosandi.
Faðir hennar leit upp dálítið
brúnaþungur. ,,Ég hélt að þú
værir þreytt,“ sagði hann.
,,Þreytt?“ sagði Súsanna
vandræðalega. Kinnar hennar
voru rjóðar og hún var þrungin
af þrótti. ,,Þreytt? Nei, nei!“
,,Nú, en þú sagðir —“
,,John,“ greip frú Carter blíð-
lega fram í fyrir honum, ,,láttu
hana eiga sig. Súsanna, farðu í
græna kjólinn þinn. Hann fer þér
svo vel.“
Súsanna þrýsti glóðheitri kinn-
inni að vanga móður sinnar. ,,Þú
ert svo sæt og góð,“ hvíslaði hún.
Svo var hún farin.
Frú Carter sat þögul um stund.
,,Veiztu það,“ sagði hún, ,,ég
vildi ekki, hvað sem í "boði væri,
vera aftur orðin stúlka á þessum
aldri.“
Maðurinn hennar starði stein-
hissa á hana. ,,Vildirðu ekki ?
Hvers vegna ?“
Frú Carter sat grafkyrr og ein-
blíndi fram fyrir sig. Litla stund
virtist hún sokkin niður í hugs-
anir um sína næstum gleymdu
æskudaga. Það sem rifjaðist upp
fyrir henni, lokkaði fram bros á
varir hennar, en brosið var bland-
ið angurværð og samúð. Hún
svaraði ekki spurningu mannsins
síns. *
2500 krónur í boði
Þeir, sem réðu allar sex get-
raunirnar í maí—sept.-heftum
heimilisritsins, burfa að hraða
sér að senda lausnimar. Frest-
urinn rennur út 10. nóv.
Það er til mikils að vinna. Sá
heppnasti fær 1000 krónur, sá
næstheppnasti 500 krónur og svo
fá tíu 100 króna verðlaun. —
Vinningalisti verður birtur í
næsta hefti.
Sjá að öðm leyti upplýsingar
um samkeppnina í síðasta hefti.
NÓVEMBER, 1952
39