Heimilisritið - 01.11.1952, Page 51

Heimilisritið - 01.11.1952, Page 51
r Hvað dreymdi þig í nótt? * Ytarlzgar ch 'aumaráð?ii?igar SVAMPUR. — Ef þig dreymir aö þú kreistir svamp, mun sjómaður verða meira virði 1 lífi þínu en þú kannske hyggur. SVEFN. — Dreymi þig að þú farir að sofa, skaltu reiða þig á það, að friður mun komast á eftir miklar deilur. SVIK. — Að dreyma að þú sért að svíkja eða pretta einhvern, getur táknað óhamingju í ástamálum. Dreymi þig að einhver svíki þig, boðar það drengilegan stuðning vina þinna við þig í væntanlegum erfiðleikum. Að sjá cinhvern prctta, boðar þér hættu á að lenda í höndum fjár- plógsmanna. SVIMI. — Ef þig dreymir að þig svimi og óttist að þú dettir, muntu verða fyrir ásökunum að ósekju. Sé sviminn þess eðlis að þér finnist þú vera að missa meðvitund, eða missir hana alveg, er draumurinn að- vörunarmerki um að þú Iiggir undir óverðskulduðum grun, sem þú þarft að hreinsa þig af. SVIN. — Að dreyma mörg fcit svín boðar gæfu og gengi, en séu þau mögur táknar það hið gagnstæða. SVIPA. — Dreymi karlmann, að hann eigi vel búna svipu, mun hann eignast stjómsama eða ráðríka eiginkona. SVUNTA. —- Ef þig dreymir að þú sért með svuntu, skaltu umgangast og tala við aðra með mikilli varfærni fyrst um sinn, því að annars gæt- irðu auðveldlega lent í vandræðum, ejnkum ef þú kynnist nýju fólki. Vera í óhreinni svuntu: einhver nýr fatnaður. Bæta svuntu: nýtt ástarævintýri. SYKNUN. — Dreymi þig að þú hafir verið ákærð(ur) "um glæp en hlotið sýknun hjá dómstólum, táknar það að óvinveittir menn hafa reynt að gera þér eitthvað til miska, en misheppnazt það. Einnig getur það verið fyrir tapi. SYKUR. — Dreymi þig sykur, er það þér fyrir góðri framtíð. SYSTIR. — Ástföngnum er það einkum gott, að dreyma systur sína. Að dreyma látna systur, boðar langa lífdaga. V________________________________________________________________J NÓVEMBER, 1952 49

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.