Heimilisritið - 01.05.1955, Side 6

Heimilisritið - 01.05.1955, Side 6
metanlega yfirburði yfir öpun- um með því að gera mannshönd- ina að einhverju nákvæmasta og fjölhæfasta tæki 1 ríki nátt- úrunnar. Hún varð afburða gott tæki til að framkvæma vilja og ætlanir mannsins, afla honum nauðsynja og uppfylla óskir hans og þrár. Þessi atriði hafa haft geysi- mikla þýðingu fyrir þróun þeirra eiginleika, sem smám saman hafa byggt upp menning- una, eftir því sem aldirnar liðu. Framþróun og' menning ÞESSAR ályktanir er hægt að draga af samanburðinum á mönnum og öpum, eins og þeir eru í dag. Staðreyndin, sem mest ber á er sú, að ef til eru líkir eiginleikar, sem benda á sam- eiginlegan forföður, þá er einnig mismunur með þeim, sem hefur jafnvel meira gildi. í þessum mismun finnast sannanir fyrir þróuninni, sem hefur leitt af sér mismun á byggingarlagi og lífs- háttum manna og apa, þó sér- staklega á sviði skynseminnar. Með þeirri þróun hefur maður- inn þroskazt svið af sviði á leið sinni til menningar, meðan ap- arnir ættingjar hans hafa verið kyrrstæðir í fastskorðuðu lík- ams- og skynsemis þroskasviði. Á hvaða stigi hins sameigin- lega ætternis kom þessi mismun- ur í ljós? Hvenær varð maður- inn algjörlega maður í saman- burði við apana, og hverjar voru ástæður þess? Svörin við þessum höfuð- spurningum eru ekki fullkom- lega ljós enn, en þegar þau eru athuguð í nánum tegslum við rannsóknir fornfræðinganna, sem reyna að rekja vöxt og þró- un lista og starfshátta manns- ins á liðnum öldum, þá ná þau langt til að skýra, hvernig sér- hver áfangi í framþróun manns- líkamans hefur haft áhrif á að þroska skynsemi hans og hefur gert honum kleift að ummynda og hagnýta umhverfi sitt sér í hag, og þannig að leggja grund- völlinn að fyrstu stigum menn- ingarinnar, sem nútímaheimur okkar er árangurinn af. Breytingar frá kynslóð til kynslóðar ÞÓTT nútímamenningin sé margþætt, þá hvílir hún samt endanlega a frumþörfum mann- anna, þörfum, sem orsakast af hinni líffræðilegu þörf einstak- lingsins að viðhalda sjálfum sér og kynstofni sínum, hinni dag- legu þörf á brauði, skýli og vörn- um fyrir sig og fjölskyldu sína gegn utanaðsteðjandi hættum, viðfangsefni sem fjarlægustu 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.