Heimilisritið - 01.05.1955, Side 13

Heimilisritið - 01.05.1955, Side 13
renndi gluggatjöldunum fyrir. Hún var varla setzt við snyrti- brðið, þegar herra Filibert kom inn. Það var hreykinn náungi, rauðhærður, hálsmikill, með vöðvastælta og gilda handleggi. Hann virti Claudette fyrir sér tortrygginn á svip. „Sjáum til, sjáum til,“ hreytti hann út úr sér. „Hún setur bara upp mesta sakleysissvip.“ „Hvað áttu við, Filibert?“ „Ég á við, að nafnlausa bréf- ið, sem mér barst í gær, hefur hermt rétt frá.“ „Ertu með öllu viti? Nafnlaust bréf . . . ? „Já, og þar tilkynnti einhver vinur minn mér, að Claudette mín elskuleg héldi framhjá mér með einhverjum Monsieur Bert- rand Leversac. Og að þessi heið- ursmaður — þessi andskotans ó- þokki — komi í dularklæðum, þegar hann heiðrar þig með heimsóknum sínum. í vikunni sem leið var hann dulbúinn sem sótari — ég sá svo sem þennan svarta draug í eldhúsinu og sá svört fingraförin eftir hann á dyrastafnum. — En auðvitað var ég grunlaus þá. Mér er líka sagt, að þessi hrífandi vinur þinn hafi líka birzt í líki ryk- sugusölumanns og — síma- manns . . Claudette ætlaði að svara ein- hverju, en hún gat það ekki. Hún stóð fyrir framan Fili- bert skjálfandi á beinunum, eld- rauð af sneypu. „Ég var bara að veiða þig í gildru, þegar ég sagðist ætla að fara til Lyon,“ hélt Filibert á- fram. „En þú gekkst í gildruna. Hvar hefurðu þennan bölvaðan Leversac?“ „Ég fullvissa þig — hér er enginn — ekki nokkur lifandi sál,“ sagði Claudette og bað til guðsmóður um að Filibert fyndi ekki upp á þeim skolla að lyfta gluggatjöldunum og opna svala- dyrnar. í sömu svifum heyrðist und- arlegur hávaði úr baðherberg- inu. Filibert hljóp þangað bölv- andi og ragnandi. Þar var pípu- lagningamaðurinn við vinnu sína. „Nú, þarna ertu, fanturinn þinn,“ grenjaði Filibert og tók í treyjukraga hans. „í dag hef- urðu dulbúið þig sem pípulagn- ingamann. En nú skaltu hafa þennan — og þennan — og þenn- an! Ég skal kenna þér að daðra við hana Claudette mína!“ Veslings pípulagningamaður- inn reyndi að mótmæla, en orð hans köfnuðu í kjaftshöggum og barsmíð, sem á honum lenti. Loks kastaði Filibert honum miskunnarlaust á dyr. MAÍ, 1955 11

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.