Heimilisritið - 01.05.1955, Síða 27

Heimilisritið - 01.05.1955, Síða 27
æskan dansaði fram hjá Lesley og burt frá henni. Kit leit á Randall og sagði: „Þessi kunningi hennar Les- leyjar er mesti myndarmaður. Mér lízt vel á hann.“ „Þér hafið ekki leyfi til að láta yður lítast vel á aðra en mig,“ sagði Jan og þrýsti henni fast að sér. Þau voru skammt frá þeim Lesley. Randall virti Kit fyrir sér með svip þess manns, sem vel kann að meta kvenlega fegurð. „Segið þér mér, hver er þessi fagra stúlka, sem er að dansa við unga manninn þarna?“ spurði Randall. Fólk sagði að Randall væri ástfanginn af Lesley, en sannleikurinn var sá, að hann elskaði engan nema sjálfan sig. Hann leit af Kit á Lesley, og Lesley sá hvað fólst í því tilliti. Hún hleypti í sig kjarki og sagði: „Þetta er Kit dóttir mín.“ „Dóttir yðar . . . ?“ Randall hló og sló öskuna af vindlingnum sínum. „Lesley, þér eruð bráðfyndin, góða mín. Ég dáist hreint og beint að yður.“ Hann dáðist raunar ekki að henni, en hann þarfnaðist henn- ar, þótt undarlegt megi heita. Hann þrýsti hönd hennar undir borðinu, en augu hans eltu Kit um salinn. Kit vaknaði snemma morgun- inn eftir og sá að móðir hennar sat við rúmstokk hennar. Hún kenndi í brjósti um Lesley núna í dagsljósinu. „Jæja,“ sagði Lesley kulda- lega. „Þér finnst sjálfsagt, að þú hafir verið slungin.“ „Nei, nei,“ sagði Kit letilega, „ég vildi bara láta taka tillit til mín.“ „Ég ætla bara að láta þig vita, að þú hefur hagað þér afar bjánalega. Ég ætlaði að senda þig í skóla til Parísar og leiða þig síðan inn í samkvæmislífið eftir eitt eða tvö ár. Þú hefðir fengið tækifæri til að kynnast góðu fólki, ekki listamannsspír- um eins og Jan Beverley. Ann- ars bjóðast þér þessi tækifæri enn, ef þú kærir þig um. Gæt- irðu hugsað þér að vera í þess- um Parísarskóla svo sem miss- eri, Kit?“ Nú var hún aftur farin að telja um fyrir henni, og Kit rauk upp til handa og fóta til þess að verja hið nýfengna frelsi sitt. „Nei,“ sagði hún, „algert nei. Þér stendur algerlega á sama um, hvort ég sé dama eða ekki, eða hvort ég kynnist réttu fólki. Fyrir þér vakir aðeins eitt, að halda mér eins lengi og hægt er frá leiksviðinu. Ég skil þessa af- stöðu þína, en þú ættir líka að MAÍ, 1955 25

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.