Heimilisritið - 01.05.1955, Side 52

Heimilisritið - 01.05.1955, Side 52
— Hvað getur hún verið orðin gömul sú litla? Hann svaraði spurningu sinni -sjálfur: — Liklega 12—13 ára. Og nú •er hún veik — er með mikinn hita . . . vonandi samt, að það sé ekkert alvarlegt. En unga stúlkan, sem hringdi, virtist vera mjög kvíðafull . . . Þegar hann kom til West- wood, snéri hann til vinstri og hélt áfram meðfram háskólan- um. Eftir tíu mínútna akstur, var hann á leiðarenda. Þar lá skrúðgarðurinn á vinstri hönd; hann mundi ljós- lega eftir háa hliðinu og löngu trjágöngunum, sem láu að hús- inu. Hann bæði mundi eftir þessu ■og hafði séð myndir af því í ýms- um kvikmyndatímaritum — ætíð teknar í nánd við þann hluta hliðsins, þar sem greini- lega mátti lesa orðin: Einka- landsvæði! Sérhver áhugamaður um kvik- myndir vissi, að þarna bjó hin fagra Barbara Cain, hin vegsam- .aða aðalleikkona Mammoth-fé- lagsins 1 Hollywood. Þegar hann kom að húsinu, beið hans ung stúlka fyrir utan. Hún heilsaði honum með önd- ína í hálsinum: — Ó, læknir; ég var farin að halda, að þér mynd- 5 L uð aldrei koma. Annie litla er svo mikið veik — hún hefur yf- ir 41 stiga hita! Hann klappaði hughreystandi á handlegg hennar. — Ég fer upp til hennar nú á stundinni; þér munuð sjá, að þetta er ekk- ert alvarlegt. Börn geta auðveld- lega fengið háan hita, án þess að nokkur hætta þurfi að vera á ferðum þess vegna. Hann fylgdi á eftir stúlkunni upp stigann og rifjaði öðrum þræði upp fyrir sér þá fögru móttökusali og fallega búnu stofur, sem leyndust að baki hinna lokuðu dyra. Hann gægð- ist út yfir handriðið — jú, aust- urlenzku teppin, sem hann hafði gefið henni á brúðkaupsferða- laginu þeirra, láu á sínum gamla stað fyrir framan arininn í for- salnum. í DYRUNUM að barnaher- berginu kom Barbara Cain til móts við hann. Hann hrópaði undrandi: — Ég bjóst ekki við að hitta þig hér. Síðan máði hann af and- liti sínu sérhverja tjáningu og hélt áfram kuldalega: — Eruð þið ekki að vinna að kvikmynda- töku úti við Laguna Beach ein- mitt núna? Hún kinkaði kolli og nagaði á sér þumalfingurinn, eins og HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.