Heimilisritið - 01.05.1955, Síða 62
óánægjulega. .,Það er óhóf.“
Lindu gramdist, að vinsam-
legri tilraun Elsabeth til þess að
gleðja húsbændurna, skyldi vera
tekið svona, en hún sagði ekki
orð. Hún var komin aftur til
Kinlock Hall sem einkaritari
eigandans, og henni var alveg
ljóst, að framvegis varð hún að
temja sér stillingu og hlédrægni.
Það myndi áreiðanlega verða
breyting á mörgu hér undir
stjóm frú Kinlocks, og það varð
hún að gera sér að góðu þegj-
andi og hljóðalaust. Það var
hluti af því gjaldi, sem hún varð
að greiða fyrir að fá að búa á
æskuheimili sír.u.
Henni varð litið til Bruce, sem
sat þungt hugsandi í hæginda-
stól. Hann veitti því enga at-
hygli að móðirin virti vandfýsn-
islega fyrir sér hvern hlut í stof-
unni, en Linda sá andúðarsvip-
inn á andliti hennar, og það olli
henni kvíða.
Svo tók frú Kinlock upp sjálf-
blekung og fór að skrifa eitthvað
hjá sér. Linda fékk hjartslátt.
Datt henni kannske í hug að
fara að gera breytingar í þess-
um dásamlegu herbergjum? Átti
að burtkasta öllum gömlu góðu
húsgögnunum og fá ný? Það gat
varla verið.
Svo kom stofuþernan inn til
þess að sækja bakkann.
„Viljið þér biðja húsjómfrúna
um að koma inn,“ sagði frú Kin-
lock.
„Er það Agnes, sem frúin vill
tala við?“ spurði stúlkan.
„Já.“
Agnes kom inn eftir andartak,
og frú Kinlock sagði:
„Ég kýs að ávarpa þjónustu-
fólk mitt með eftirnafni þess.
Hvað heitið þér meira en Agn-
es?“
,.Agnes McLean.“
„Eruð þér gift ráðsmannin-
um?“
„Nei, þetta er algengt ættar-
nafn hérna í Kinlock, frú.“
„Jæja,“ sagði frú Kinlock.
„Þér vitið, frú McLean, að það
hefur ekki verið nein styrk leið-
andi hönd hér síðustu árin. Hið
erfiða og ábyrgðarmikla hlut-
verk húsmóðurinnar var falið
hinni ungu dóttur síðasta herra-
garðseigandans, og hana skorti
auðvitað nauðsynlega reynslu.
Nú vil ég biðja yður um, að
gera hinu þjónustufólkinu það
ljóst, að framvegis koma allar
fyrirskipanir frá mér. Skiljið
þér það?“
„Já, frú,“ svaraði Agnes
brúnaþung.
„Á næstu vikum ætla ég að
færa ýmislegt hér í höllinni í
betra horf,“ hélt frú Kinlock á-
fram, „Ég mun gefa yður fyrir-
60
HEIMILISRITIÐ