Heimilisritið - 01.05.1955, Page 65

Heimilisritið - 01.05.1955, Page 65
„Kemur vorið seint eða snemma hérna?“ spurði hann. ,,Það er dálítið misjafnt, eins og þú skilur,“ svaraði hún, „en það kemur að minnsta kosti allt- af snögglega. Við vöknum ein- hvern morguninn og heyrum sunnanvindinn þjóta fyrir hús- hornin, og eftir örfáa daga er snjórinn horfinn. Svo taka tún- in að grænka, og fyrr en nokk- urn varir eru trén farin að bruma. . . . En eigum við ekki að Ijúka við bréfin okkar?“ „Það getur beðið,“ sagði hann dálítið óþolinmóður. „Kemur breytingin virkilega svo snögg- lega? Það hlýtur að vera indælt eftir alla þokuna og snjómugg- una, sem við höfum haft. Stund- um hefur mér næstum fundizt að við hlytum að vera á Græn- landi.“ Hann hafið aftur snúið sér að glugganum, og nú benti hann hann út. „Ég hef aldrei tekið eftir þessu húsi þarna fyrr,“ sagði hann. „Hver býr þar?“ Linda stóð upp og gekk til hans. Þegar hún kom upp að hlið hans, varð hann gripinn næstum óviðráðanlegri löngun til þess að leggja handlegginn utan um hana, en honum fannst hún svo ung og saklaus, að hann vildi vera alveg öruggur um til- MAÍ, 1955 finningar sínar, áður en hann tjáði henni þær. Hann ætlaði heldur að stefna hægt og hægt að settu marki og reyna að vinna ást hennar smátt og smátt, því hann áleit að hún væri ekki ein af þeim, sem funandi ástríða sprettur skyndilega hjá. „Þetta er Carnforth-húsið,“ svaraði hún. „Carnforth-hjónin eru gamlir kunningjar okkar pabba.“ „Eiga þau nokkur börn?“ „Já, einn son, sem heitir Mau- rice.“ Þetta var í fyrsta skipti sem hún nefndi það nafn, síðan ó- þægilegi atburðurinn gerðist á leiðinni til Gullach, og það fór hrollur um hana er henni varð hugsað til þess, hversu svívirði- leg framkoma hans hafði ver- ið. „Hvað er hann gamall?“ spurði Bruce, „og hvernig er hann?“ „Hann er tuttugu og fjögra, og er svo spilltur að hann er næstum því óþolandi.“ Hann tók eftir bitrum undir- tón í rödd hennar. „Geðjast þér ekki að honum?“ „Það er svo langt síðan ég hef séð hann,“ sagði hún og hliðraði sér við að svara. „En Bruce, klukkan er orðin margt. Það er bráðum kominn hádegismatur, 63

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.