Heimilisritið - 01.10.1955, Qupperneq 26
hana bara að ,,gefa þá hreyfingu
til kynna“, síðan lyfti hann
henni upp og kyssti hana með
meira fjöri en hann átti að sér.
Nú er merkisdagur fyrir Vol-
taire og Adrienne Lecouvreur.
Sjónleikur hans „Marianne11 er
leikinn fyrir hirðina og hún leik-
ur aðalhlutverkið. Höfundurinn
er síðan leiddur fyrir kónginn,
sem kallar hann „veslings Vol-
taire“ sinn og heitir honum ár-
legum fjárstyrk.
Ekki var það að ástæðulausu,
að Stanislás hafði varað dóttur
sína við ýmsum skerjum, sem
hún myndi reka sig á við hirð-
ina. Hann varaði hana við tign-
inni, velmeguninni, smjaðrinu,
enginn myndi fást til að segja
henni sannleikann, hún verður
að vera sjálfri sér næg.
Eftir nokkra mánuði sýndi
konungur henni opinbert tóm-
læti, og það, sem eftir var æv-
innar, lifði hún einmana, þrátt
fyrir alla viðhöfnina, sem um-
vafði hana. Hún var iðin. Hún
baðst fyrir á morgnana, fór síð-
an í stutta heimsókn til kon-
ungsins, þá málaði hún eða lék
á hljóðfæri. Svo kom snyrting-
in, messan og miðdegisverður-
inn, eftir hann hvarf hennar há-
tign til einkaherbergja sinna og
drap tímann með hannyrðum.
Klukkan sex kom til hennar dá-
lítil hirð og þá var um að gera
að sleppa við að spila fjárhættu-
spil hjá vinkonu drottningarinn-
ar, hertogafrúnni af Luynes, þar
sem öllum viðhafnarsiðum var
að vísu sleppt, en samtalið laust
við að vera skemmtilegt.
Lúðvík lifði í stöðugu iðju-
leysi, fékkst aðeins við veiðiskap
og aðra ómerkilega hluti. Hann
heimsótti drottningu sína einu
sinni á dag, stutta stund í einu,
leit einnig nokkrar mínútur inn
til dætra sinna. Þær voru í aug-
um hans eins og litlar, snotrar
brúður. Fyrst kom hann eftir
leynistiga í herbergi Adelaide
prinsessu og drakk með henni
kaffi, sem hann hafði búið til
sjálfur. Óðara og hann var kom-
inn, tók Adelaide í klukku-
streng, sem tilynnti Viktoríu
systur hennar komu hans. Hún
sótti svo aftur Soffíu, sem var
svo lítil, að þótt hún hlypi eins
og fætur toguðu, náði hún að-
eins að kyssa föður sinn snöggv-
ast áður en hann fór. Svo endur-
guldu prinsessurnar heimsókn
hans um kvöldsnyrtingartíma
hans. Kennslukona þeirra hefur
lýst þeirri athöfn. Þær klæddu
sig umfangsmiklum pilsum,
skreyttum gulli og útsaumi, þær
bundu langan slóða um mittið
og klæddust stórum, svörtum
silkikápum, sem huldu annan
24
HEIMILISRITIÐ