Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 33
ÞÚ HVARFST Á BROTT . . .
(Lag: Some of tbese days ... — Texti:
L. Guðmundsson. — Snngið af Stein-
unni Bjarnadóttnr, á His Master’s Voice
flötu JOR223)
Þú hvarfst á brott,
02; húmið breiðir
harmsára þögn
á mínar leiðir.
Eg geng í draumi
í dagsins glaumi.
Þá hvarf mér allt, er þú hvarfst á brott.
Hver unaðsstund
okkar ástafunda,
varð minning helg, er þú hvarfst á brott.
Þinn dökki hvarmur,
þinn heiti, mjúki barmur,
varð hugsýn, er hjartað þráir,
er hvarfstu á brott.
HÆ MAMBÓ
(Lag: Mambó Italianó. — Texti: L.
GuSmttndsson. — Sungið af Hauk
Morthens, á His Master's Voice
flÖtU ]OR22/f)
Sem unglamb heim ég aftur sný
úr orlofsferð til Napolí,
fríðari hvergi karl lcit kvennafans,
þútt kynni ég hvorki þeirra dans
né sönginn:
hæ mambó, mambó Italianó, hæ mambó,
mambó ítalianó
Sí, sí, sí, sí, þú ert Sikileyingur?
Gettu betur góða, gamall bóndi úr Þingó.
Hæ mambó.
Þar er nú líf í landi.
Hæ mambó.
Og skáldin óteljandi.
Hæ mambó.
Yrkja ótal vísó,
ást og lof og prísó,
til okkar daladísó
svo ástar heitó
er ekki nema í Mývatnssveitó.
Og heyrðu, mig vantar kaupakonó,
kannske hef ég vonó?
Ef þú heldur heim með mér,
heila drápu kveð ég þér . . .
Hæ mambó, mambó ítalianó, hæ mambó,
Mambó ítalianó.
Hó, hó, hó, . . . í haust er hættir sláttó
dátt og kátt í réttó, dans við stígum,
sæl og þéttó . . .
Mambó ítalianó.
KAUPAKONAN HANS GÍSLA
í GRÖF
(Lag: The Naughty Lady of Shady
Lane. — Texti: L. Guðmundsson. —
SungiS af Hauk Morthens, á His
Masters Voice flötu JOR225)
Já, kaupakonan hans Gísla í Gröf
er glettin og hýr á brá.
Hver bóndason þar á bæjunum
er brennandi af ástarþrá.
Öll sveitin í háspennu hlerar
ef hringt er að Gröf síðla dags,
og Jói cða Jón heyrist hvískra
,,kem í jeppanum eftir þér strax“.
Já, kaupakonan hans Gísla í Gröf,
hún gerir þá alvcg frá,
já, kaupakonan hans Gísla í Gröf,
þeir sofa ekki svei mér þá.
Já, kaupakonan hans Gísla í Gröf
er gletrin og hýr á brá.
Hver bóndason þar á bæjunum
er brennandi af ástarþrá.
Hann Siggi á Farmalnum syngur
um svásana háfleygan brag.
Og Geir, sem er roskinn og reyndur,
kvað nú raka sig tvisvar á dag.
Já, kaupakonan hans Gísla í gröf,
hún gerir þá alveg frá,
já, kaupakonan hans Gísla í gröf,
þeir sofa ekki svei mér þá.
OKTÓBER, 1955
31