Heimilisritið - 01.10.1955, Side 30
vesturhliðið". Amelia fer, en
hitt fólkið kemur inn aftur.
Landstjórinn biður blökkukon-
una að spá fyrir sér. „Öldumar
bera mig“. Hún segir honum, að
sá, sem fyrst heilsi honum með
handabandi, muni óðar en langt
líður ráða hann af dögum. Land-
stjórinn hlær við og réttir fram
hönd sína svo samsærismenn-
irnir geti tekið í hana. Þeir
halda, að grunur hafi fallið
á þá, og taka ekki í hönd hans.
Nú kemur Reinhardt inn og
er að leita að húsbónda sín-
um. Hann þrífur hönd hans og
segir þá landstjórinn Ulricu, að
hún sé lélegur spámaður því að
Reinhardt sé bezti vinur sinn.
Allir viðstaddir verða undrandi
þegar þeir verða þess vísari, að
maðurinn í sjómannsklæðunum
er enginn annar en landstjórinn
sjálfur, og hylla hann: „Heill,
sonur Englands“.
II. ÞÁTTUR
Eyðilegur staður við Boston.
Á miðnætti kemur Amelía og er
að leita að töfrajurtinni, sem á
að koma því til vegar, að hún
verði afhuga landstjóranum.
„Töfradrykkur þessi“. Land-
stjórinn kemur og Amelia segir
honum, að hún elski hann, en
biður hann að fara frá sér. Tví-
söngnr: „Orð þín sem himindögg
hjarta mínu svala“. Reinhardt
kemur til að gera landstjóranum
aðvart um að samsærismennirn-
ir sitji fyrir honum í því skyni
að ráða hann af dögum. Land-
stjórinn biður Reinhardt að
fylgja konunni, sem er hulin
slæðum, til borgarinnar án þess
að spyrja hana hver hún sé.
Reinhardt lofar því og landstjór-
inn kemst undan. Á leiðinni til
borgarinnar halda samsæris-
mennirnir að Reinhardt sé land-
stjórinn, þeir svipta blæjunni af
konunni og sér þá Reinhardt að
þar er eiginkona hans komin.
Reinhardt og Amelia: „í mána-
skini“. Amelia lýsir yfir sakleysi
sínu, en eiginmaður hennar veit-
ir henni þungar átölur og hefur
nú uppi ráðagerðir um að ganga
1 lið samsærismannanna.
III. ÞÁTTUR
Stofa á heimili Reinhardts.
Hann ákveður að bana konu
sinni. Hún biður um að fá að
kveðja barn sitt hinstu kveðju
og meðan hún er að því mildast
skap hans. „Ert það þú?“ í stað
þess að bana konu sinni ákveð-
ur hann að einbeita sér að því
að vinna á landstjóranum. Hann
og samsærismennirnir tveir
varpa -teningum um það, hver
þeirra eigi að ráða honum bana
og fellur það í hlut Reinhardts.
28
HEIMILISRITIÐ