Heimilisritið - 01.10.1955, Side 61
„En hvers vegna haldið þér
að hann hafi logið að henni?“
spurði Bruce.
„Mér er óskiljanlegt að hann
hafi látið sér detta slíkt í hug.“
„Grunar yður hvaða leið hann
kann að hafa ekið með hana?“
„Nei, það hef ég ekki minnstu
hugmynd um,“ svaraði frú Carn-
forth skjálfandi. „Guð minn góð-
ur, upp á hverju hefur drengur-
inn nú tekið! Þér verðið að reyna
að finna hann fyrir mig. Flýtið
yður!“
Bruce stóð andartak við bíl-
inn. Hvert hafði þrjóturinn far-
ið? Ekki til Ferris, því þá hefði
Bruce mætt honum. Og þá var
aðeins um tvær leiðir að velja
— austur á bóginn eða upp til
fjallanna.
Það var sennilegra að hann
hefði farið veginn til fjalla, því
litlar líkur voru til þess að þar
rækist hann á fólk í slíku veðri.
Bruce stökk inn í bílinn og ók
eins hratt eftir veginum og hin-
ar slæmu aðstæður leyfðu. Hann
sá ljós í glugga skammt fram-
undan og studdi viðstöðulaust á
bílflautuna. Þegar hann nam
staðar við húsið, var maður kom-
inn út í dyrnar.
„Hafið þér séð nokkum bfl
fara hér framhjá nýlega?“ hróp-
aði Bruce.
„Já, fyrir svona klukkutíma
— lítinn, svartan bíl,“ svaraði
maðurinn. „Hann fór hratt og
u
Svo ræskti hann sig gremju-
lega, því bílinn var þegar kom-
inn langt burtu og hallaðist 1-
skyggilega á næstu beygju.
Björt elding blindaði Bruce
næstum því, en hann hægði ekki
á bílnum. Einhvers staðar á veg-
inum framundan ók Maurice
með Lindu, og unnusti hennar
kreisti stýrishjólið svo að hnú-
arnir hvítnuðu. Hann skyldi ná
óþokkanum og láta hann fá mak-
leg málagjöld, þótt það yrði hans
síðasta verk.
23. kapítuli
MAURICE létti í skapi, þegar
hann beygði loksins upp að af-
skekkta veitingahúsinu, og þeg-
ar hann þeytti bílhornið, kom
veitingamaðurinn út á tröppurn-
ar. Hann sótti ljósker og gekk
að bílnum, þegar hann sá hver
komumaður var.
„Þetta er ljóta veðrið, herra,“
sagði hann og gaut augunum til
Lindu, sem sat náföl í framsæt-
inu „Það hlýtur að hafa verið
vont að keyra upp fjallið.“
„Já, sannarlega,“ svaraði Mau-
rice. „Hjálpaðu dömunni, með-
an ég ek bílnum inn í bílskúr-
inn.“
Veitingamaðurinn leiddi Lindu
OKTÓBER, 1955
59