Heimilisritið - 01.10.1955, Blaðsíða 62
inn í sal, þar sem eldur logaði
glatt í arni.
Hún virti manninn fyrir sér
og sá fljótlega, að honum myndi
hún ekki geta treyst. Stingandi
augu hans voru reikul, og bros-
ið var smeðjulegt. En hún átti
ekki annarra kosta völ en reyna
að fá hjálp, hvar sem hennar
væri að leita.
„Getið þér hjálpað mér til að
komast burt héðan?“ spurði hún
lágt.
„Ég hugsa að Carnforth væri
ekki hrifinn af því,“ sagði hann
flissandi. „Þér ættuð að fá yður
sæti og hvíla yður, þangað til
hann kemur inn.“
„Er konan yðar ekki hérna —
eða þjónustustúlka?" spurði
Linda í öngum sínum.
„Því miður ekki. Konan dó
fyrir tíu árum, og ég hef ekki
haft neina kvenmannsaðstoð síð-
an.“
Henni þyngdi í skapi, því nú
fyrst varð henni ljóst, hversu
varnarlaus hún var. Hún gekk
að arninum til að verma hend-
urnar, og skömmu síðar kom
Maurice inn.
„Sam, láttu okkur fá eitthvað
að borða og hafðu tilbúið her-
bergi. Svo viljum við vera alein
og ótrufluð.11
Veitingamaðurinn hló kank-
víslega og lagði á borð. Og að
lokum kom hann með viský-
flösku og dró sig 1 hlé.
„Þú lætur mig svo vita, þeg-
ar herbergið er tilbúið, og svo
ætla ég að gefa þér síðustu fyr-
irmæli mín,“ sagði Maurice.
„Við viljum ekki láta ónáða
okkur undir neinum kringum-
stæðum. Hverjir svo sem koma
kunna hingað í nótt, þá hleypir
þú þeim ekki inn. Þú þekkir mig
og veizt, að þér verður borgað
vel, ef þú gerir eins og ég segi.“
Maðurinn kinkaði kolli og fór.
„Nú skaltu koma og fá þér að
borða, Linda,“ sagði Maurice.
„Þetta hefur verið erfitt ferða-
lag, og þú hressist á því að fá
þér einhverja næringu. Eða viltu
kannske einn sjúss fyrst?“
„Ég vil hvorki mat né drykk,“
svaraði hún lágróma og veitti at-
hygli augum hans, sem voru
með kynlegum og óhugnanleg-
um gljáa. „Ég krefst þess eins,
að þú áttir þig á, hversu vitfirr-
ingsleg þessi hugmynd þín er,
og að þú akir mér heim aftur.“
„Hættu svona þvaðri,“ sagði
hann hörkulega, hellti viský í
glas og drakk það út í einum
teig. „Þú veizt, hvers vegna ég
hef farið með þig hingað, og þá
veiztu líka, að það þýðir ekki
fyrir þig að reyna að komast
héðan. Ég elska þig, skilurðu!“
„Elska,“ sagði hún með fyrir-
60
HEIMILISRITIÐ