Heimilisritið - 01.11.1957, Blaðsíða 12
vizkuháttur getur leyrrzt innan
veggja heimila, sem enginn skyldi
halda, að væru neitt óvenjuleg.
Hinn skeggjaði Frederick Hall,
sem dó sjötíu og eins árs í Selly
Oak við Birmingham fyrir nokkr-
um mánuðum, lét dætur sín'ar
tvær, Mildred og Marjorie, skila
sér kaupgreiðsluumslögum sínum
óopnuðum í hverri viku og biðja
sig um peninga í hvert sinn, er
þær vantaði fyrir fötum.
Hann sendi þær í rúmið á
hverju kvöldi um kl. 6 meS að-
eins glas af vatni — engan kvöld-
verð fengu þær, nema móSur
þeirra tókst stundum aS lauma til
þeirra kökum eða brauSsneiðum,
en móðir þeirra var sjálf oftast
send í rúmið kh fimm eða fyrr.
Sjálfur svaf hann hverja nótt á
eldhúsgólfinu, og þar fann kona
hans hann aS lokum dauðan af
gaseitrun.
KÆRKOMIÐ HAPP
Þó dæturnar væru orðnar 28
ára er hann dó, bannaSi hann
þeim aS reykja, nota fegrunar-
meðul, umgangast pilta, lesa blöS
og fara í bíó. Og þó báru kona
hans og dætur honum gott orð
eftir látið sem góðum eiginmanni
og föður, sem hefði hegðað sér
þannig, af því hann áleit það bezt
fyrir dæturnar og vildi forða þeim
frá dapurlegum örlögum, sem ná-
kominn ættingi hafði orðið fyrir.
Hann lét þeim eftir óvænt happ
— hundruð óopnaðra kaup-
greiðsluumslaga, sem dætur hans
höfSu fengið honum síðustu tólf
árin.
ÁstríSa til að kaupa og safna
aS sér alls konar drasl; var sjúk-
leiki sjötíu og fimm ára manns,
er átti þrjú börn, sjö ára dreng
og tvær stúlkur, níu og fimmtán
ára. Þau komu fyrir unglinga-
nefndina í Folkstone, vegna þess,
aS þau skorti umhirðu. Umsjón-
armaðurinn sagði, aS móðir þeirra
hefði farið burt og neitað að
koma heim, vegna ástandsins í
húsinu, sem var troðfullt af hús-
gögnum, reiðhjólum, barnavögn-
um, eldavélum og um 300 pörum
af gömlum skóm !
Á neSri hæðinni var aðeins
fimm fermetra húsrými eftir. —
Eldri stúlkan, sem gætti yngri
systkinanna, svaf í setustofunni á
sófa, sem þakinn var gömlum
ábreiðum og frökkum. FaSirinn
svaf í hægindastól í sömu stofu.
hann var afar þrár. Þegar honum
var sagt, að móðirin myndi koma
heim, ef hann losaði sig við eitt-
hvaS af draslinu, keypti hann
meira.
10
HEIMILISRITIÐ