Fréttatíminn - 20.09.2013, Side 4
Holtagörðum - 553-1800 • facebook.com/fondurlist
Stærsta föndurverslun landsins
Glæsilegt úrval
Nýjar brýr yfir Elliðaárósa opnaðar
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
RigNiNgaRbakki á lEið Na yfiR
laNdið. léttiR til á EftiR.
HöfuðboRgaRsvæðið: Rigning
fyRst, en léttiR síðan til.
RigNiNg fRamaN af N-til. léttiR aNNaRs
HElduR til. slEppuR til mEð NætuRfRost.
HöfuðboRgaRsvæðið: HæguR vinduR og
sólRíkt, en þó Hætt við smáskúRum.
að mEstu þuRRt. vaxaNdi Na-átt uNdiR
kvöld og RigNiNg s-laNds.
HöfuðboRgaRsvæðið: HæguR vinduR
og skýjað með köflum. þuRRt.
Hæglæti lengst af um helgina
eftir rosa síðustu helgar og framan af
vikunni er útlit fyrir hæglætisveður
þessa helgina. Reyndar fer dálítil lægð
fer norðaustur yfir landið í dag og nótt.
Rigning framan af, en léttir síðan til og
á morgun, laugardag, sést víða
til sólar, sérstaklega sunnan-
og austanlands. á sunnudag
er spáð hægum a-vindum,
skýjað víða, en úrkomulaust
að heita má. strax eftir
helgi getur síðan dregið til
tíðinda.
8
7 6
6
7
7
5 4 9
10
7
5 6 7
8
Einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
F ramleiðslu á lífrænni mjólk hefur verið hætt tímabundið eftir að einn þriggja mjólkurbænda sem hafði líf-
ræna vottun missti vottunina. Lífræn mjólk
hefur undanfarin ár verið framleidd á bæj-
unum Búlandi í Austur-Landeyjum, Neðra
Hálsi í Kjós og Finnastöðum Eyjafirði en
það er sá síðastnefndi sem missti lífræna
vottun á dögunum.
„Þetta voru mannleg mis-
tök. Hér voru þrjár kýr með
júgurbólgu sem þurftu pens-
ilín, sem er auðvitað ekki fyrsti
kostur í lífrænni ræktun, og
fyrir mín mistök blandaðist
mjólkin úr þeim kúm saman
við hina mjólkina. Mjólkin frá
mér var sett í sérhólf í bíl frá
Mjólkursamsölunni og þegar
hún var prófuð kom í ljós að í
henni var pensilín og henni því
fargað,“ segir Gunnbjörn Rúnar
Ketilsson, bóndi á Finnastöðum.
„Þessi mjólk blandaðist aldrei
við aðra mjólk og hún kom aldrei
inn í mjólkurbúið. Þetta var á
mánudegi og næstu daga fæ ég
heimsókn frá eftirlitsmanni sem
staðfestir að engar leifar af lyfjum
séu í mjólkinni enda voru þetta ein mistök.
Ég ætlaði því að halda áfram framleiðslu en
fæ þá óvænt bréf frá vottunarstöðinni Tún
um að ég hafi misst vottunina.“ Gunnbjörn
er nú að leggja lokahönd á að afla þeirra
gagna sem Tún krefst til að geta endurskoð-
að sviptingu á lífrænu vottuninni. „Þetta
eru gögn frá dýralækni, Matvælastofnun
og fleirum. Ég þarf síðan að leggja þessi
gögn fyrir vottunarnefnd og vonast til að fá
grænt ljós,“ segir hann og finnst skrifræðið
heldur mikið. „Mér finnst þetta óvenju
harkaleg viðbrögð miðað við aðstæður.
Það er mjög mikið vesen að standa í þessu.
Kröfurnar eru svo margfalt meiri heldur en
þegar kemur að hefðbundinni mjólkurfram-
leiðslu,“ segir Gunnbjörn. Hann vonast til
að fá vottun að nýju, jafnvel í næstu viku, en
viðurkennir að um tíma hafi hann íhugað
að hætta framleiðslu af persónulegum
ástæðum. „Það er hins vegar greinilegt að
neytendur vilja þessa mjólk því það er mikil
eftirspurn,“ segir hann.
Mjólkursamsalan hefur framleitt lífrænu
mjólkina, fyrirtækið Biobú hefur nú for-
gang á vinnslu úr lífrænni mjólk en Biobú
framleiðir meðal annars lífrænt jógúrt, skyr,
smjör og rjóma. „Þriðjungur af lífrænni
mjólkurframleiðslu á landinu datt niður
eftir að þessi einni bóndi missti vottunina.
Mjólkursamsalan ákvað að leyfa okkur að
hafa forgang á þá lífrænu mjólk sem fengist
því það eru stærri hagsmunir í húfi fyrir
okkar fyrirtæki. Allur rekstrargrundvöllur
okkar væri hreinlega í hættu ef við fengjum
ekki mjólk í okkar framleiðslu,“ segir Helgi
Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobú
sem sérhæfir sig í framleiðslu á lífrænum
mjólkurvörum. Hann hefur fengið fjölda
fyrirspurna frá neytendum eftir að lífrænu
mjólkina fór að vanta í verslanir. „Það ein-
faldlega vantar fleiri lífræna mjólkurfram-
leiðendur. Eftirspurnin er mikil og það sést
best hvað það hefur nú miklar afleiðingar
þegar einn framleiðandi dettur tímabundið
út,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
diskur og útgáfutón-
leikar þrítugra spaða
Hinir ástsælu spaðar eru þrítugir í ár og
minnast tímamótanna með diski sem
kemur út á morgun, laugardag, og heitir
áfram með smjörið. útgáfutónleikar verða
það kvöld á Café Rosenberg og hefjast
klukkan 22. Hljómsveitina spaða skipa:
guðmundur andri thorsson gítar og
söngur, guðmundur ingólfsson bassi og
söngur, aðalgeir arason mandólín og
söngur, þorkell Heiðarsson harmonikka
og hljómborð, magnús Haraldsson gítar
og söngur, Guðmundur Pálsson fiðla og
sigurður valgeirsson trommur.
skráningar sjóvár í
kauphöll undirbúin
fyrirtækjaráðgjöf íslandsbanka hefur verið
ráðin sem umsjónaraðili með almennu
hlutafjárútboði og skráningu sjóvár-
almennra trygginga hf í kauphöllina.
markmiðið með útboðinu er, að því er
fram kemur í tilkynningu íslandsbanka,
að tryggja almenna og góða dreifingu á
eignarhaldi félagsins. Hluthafar félagsins
í dag eru sf1 slhf., fagfjárfestasjóður á
vegum stefnis hf., sat eignarhaldsfélag hf.
sem er félag í eigu glitnis banka hf. og ís-
landsbanki hf. stefnt er að því að hlutabréf
félagsins verði tekin til viðskipta á nasdaq
omX iceland á árinu 2014. -jh
málþing í tilefni af 20
ára afmæli
átak – félag fólks með þroskahömlun hefur
síðastliðin 20 ár starfað að baráttumálum
sínum en það var stofnað 20. septem-
ber 1993. í tengslum við afmælið stendur
félagið fyrir stuttu málþingi og afmælishá-
tíð í dag, föstudag, frá klukkan 17-19,
fyrir félagsmenn, vini og vandamenn að
Háleitisbraut 13. mikið verður um dýrðir,
að því er fram kemur í tilkynningu félags-
ins, gómsætar veitingar, fróðleg erindi,
skemmtiatriði, tónlist og óvæntir gestir.
Meginstarfsemi félagsins frá upphafi hefur
falist í fræðslu um þroskahömlun, baráttu
fyrir jafnrétti og baráttu gegn fordómum.
„þetta höfum við gert með því fræða um
líf okkar með þroskahömlun, með að auka
sýnileika okkar og með markvissri vinnu
að sjálfseflingu félaga okkar sem eru
þroskahamlaðir,“ segir aileen soffía svens-
dóttir formaður. -jh
Nýjar brýr yfir Elliðaárósa
verða formlega opnaðar
á morgun, laugardag,
klukkan 11. dagur B.
eggertsson, formaður
borgarráðs og Hreinn
Haraldsson vegamála-
stjóri opna nýju hjóla- og
gönguleiðina formlega og
er athöfnin einn viðburða
samgönguviku. dagur
og Hreinn undirrituðu
fyrir rúmu ári samning
um átak í gerð hjóla- og
göngustíga og fór sú
undirritun fram á sama
stað og nýi hjóla- og
göngustígurinn liggur nú.
„markmiðið er að Reykja-
vík verði framúrskarandi
hjólaborg,“ sagði dagur
við það tækifæri, að því
er fram kemur í tilkynn-
ingu Reykjavíkurborgar.
arkitektar nýju brúnna
eru ánægðir með fram-
kvæmdirnar og finnst
mannvirkjagerðin hafa
tekist mjög vel. „það er
gaman að sjá hvað það
er mikið samræmi milli
hins byggða mann-
virkis og upphaflegu
tölvumyndanna. Helsti
munurinn er að það var
betra veður á tölvumynd-
unum,“ segir Hans-olav
andersen, arkitekt og
einn hönnuða.
landbúnaður einn þriggja mjólkurbænda missti vottun
Engin lífræn mjólk
fáanleg í verslunum
engin lífræn mjólk fæst í verslunum eftir að mannleg mistök urðu til þess að einn þriggja
mjólkurbænda með lífræna vottun missti vottunina. mjólkurbóndinn vinnur að því að fá vottunina
að nýju en finnst viðbrögðin heldur harkaleg. Óvíst er hvenær lífræn mjólk verður aftur fáanleg.
afar strangar kröfur eru til framleiðenda lífrænnar mjólkur og mega engar lyfjaleifar vera í mjólkinni.
lífræn mjólk
inniheldur
meira af omega
3-fitusýrum
og minna af
mjólkursykri en
venjuleg mjólk.
4 fréttir Helgin 20.-22. september 2013