Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 10
Kringlan er einn fjölsóttasti verslunar- og
þjónustukjarni Íslands og einn fjölmennasti
vinnustaður landsins. Hátt í 1.000 hjálpfúsir
starfsmenn eru þér ávallt innan handar,
þakklátir fyrir innlitið og viðskiptin.
TAKK FYRIR AÐ STYÐJA ÍSLENSKA VERSLUN
Eygló Erla Ingvarsdóttir
Eymundsson
… sjávar-
afurðir eru
mikilvæg-
ur hluti
af fæðu
Íslendinga
og er
neysla
þeirra sú
mesta á
alþjóða-
vísu.
Flensborgarskóli er forystuskóli verkefninu Heilsueflandi fram-
haldsskóli. Ljósmynd/Flensborg
Heilbrigðismál lögð var áHersla á skólabrag í Flensborg
22 framhaldsskólar taka geðrækt fyrir í vetur
„Við lögðum núna mesta áherslu á
skólabrag og líðan,“ segir Bryndís
Jóna Jónsdóttir, mannauðsstjóri Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði. Skólinn er
forystuskóli í verkefninu „Heilsueflandi
framhaldsskóli“ og á síðasta skólaári
var þar sérstök áhersla á geðrækt. Í
verkefninu eru fjögur meginþemu; nær-
ing, hreyfing, lífsstíll og geðrækt, en
að loknu einu undirbúningsári er eitt
viðfangsefni tekið fyrir á hverju skóla-
ári. Því eru viðfangsefnin jafn mörg og
námsár flestra framhaldsskólanema.
Flensborgarskóli er fyrsti skólinn til
að leggja áherslu á geðrækt og segir
Bryndís frá reynslunni á málþingi um
geðrækt í framhaldsskólum sem fer
fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag.
Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnis-
stjóri Heilsueflandi framhaldsskóla
hjá embætti landlæknis, segir að 22
framhaldsskólar taki geðrækt fyrir á
þessu skólaári og því dýrmætt að heyra
af reynslu Flensborgarskóla. Undan-
farin ár hefur Skólapúlsinn staðið fyrir
könnun hjá grunnskólanemendum á
skólabrag, líðan nemenda og fleira.
Embætti landlæknis og Flensborgar-
skóli vinna saman að því að þróa Skóla-
púls fyrir framhaldsskólanema og í vor
var fyrsta könnunin lögð fyrir. Bryndís
segir að niðurstöðurnar séu ekki birtar
opinberlega heldur aðeins fyrir starfs-
menn skólans til að átta sig á stöðunni
og sjá hvað þarf að bæta. Næsta könnun
verður gerði í vetur og fæst þá saman-
burður. „Ef við sjáum að kvíði meðal
nemenda eykst þá getum við brugðist
við því,“ segir hún. Öllum framhalds-
skólum stendur til boða að gera slíka
kannanir í samstarf við Skólapúlsinn,
en þær eru ekki persónurekjanlegar.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
sjávarútvegur skýrsla íslandsbanka
Skuldsetning
dregst saman
Framlegð aldrei meiri. Fyrirtækin greiða um 7 milljarða í sér-
stakt veiðigjald fyrir fisikveiðiárið 2012-2013.
r ekstur sjávarútvegsfélaga á Íslandi er almennt góður og ytri skilyrði hagkvæm þó svo að afkoman sé misgóð milli fyrirtækja.
Þrátt fyrir að nokkuð verðfall hafi orðið á mikil-
vægum fisktegundum hefur greininni tekist vel að
aðlaga sig að þeim aðstæðum. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka sem
kynnt var á miðvikudaginn. Í skýrslunni kemur
fram að forsenda þess að unnt sé að stuðla að frek-
ari framþróun í sjávarútvegi sé að grunnur greinar-
innar verði styrktur og efldur.
Lykilatriði skýrslunnar eru þau að sjávarafurðir
eru mikilvægur hluti af fæðu Íslendinga og er
neysla þeirra sú mesta á alþjóðavísu. Íslenskur
sjávarútvegur var með um 11,5% beint framlag til
vergrar landsframleiðslu árið 2012 og hefur það
farið vaxandi síðustu fimm ár. Rúmlega 12% starfa
á landsbyggðinni er í sjávarútvegi samanborið 1,5%
á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi starfa í sjávarútvegi
hefur aukist um fjórðung síðustu fimm ár. EBITDA
framlegð íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hefur
aldrei verið hærri en árið 2011 og jókst hún um 26%
frá fyrra ári.
Síðustu ár hefur skuldsetning fyrirtækja í sjáv-
arútvegi dregist saman og árið 2011 nam hún 442
milljörðum króna. Sjávarútvegsfyrirtæki greiða um
7 milljarða króna í sérstakt veiðigjald fyrir fiskveiði-
árið 2012/2013 þegar búið er að gera ráð fyrir frá-
dráttarliðum. Greiddur tekjuskattur sjávarútvegs-
fyrirtækja á árinu 2013 (rekstrarár 2012) var um
9 milljarðar króna, samanborið 5,5 milljarða árið
2012 (rekstrarár 2011).
Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam tæpum 269
milljörðum króna árið 2012 og jókst um tæp 7% frá
árinu 2011. Fiskeldi á Íslandi jókst nokkuð á milli
áranna 2011 og 2012. Um 7.800 tonnum var slátrað
árið 2012 en um 5.000 tonnum árið 2011. Að því er
fram kemur í tilkynningu Íslandsbanka er áætlað
að 8.500 tonnum verði slátrað á árinu 2013.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam tæpum 269 milljörðum króna árið 2012 og
jókst um tæp 7% frá árinu 2011.
10 fréttir Helgin 20.-22. september 2013