Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 12

Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 12
Viðskiptavinir VÍS með F plús fjölskyldutryggingu geta sótt flotta og hlýja húfu með endurskini á næstu þjónustuskrifstofu. Sjáumst með F plús VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS F iskneysla unglinga minnkar verulega þegar þeir hætta í grunnskóla. Líklega er þetta vegna þess að þá hætta þeir að borða fisk í skólamötuneytinu,“ segir Gunn- þórunn Einarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Matís. Hún ásamt Ingunni Jóns- dóttur, stöðvarstjóra hjá Matís, eru skipuleggjendur landsátaks í fisk- neyslu sem hefst formlega síðar í þessum mánuði en markmiðið er að auka fiskneyslu Íslendinga, meðal annars með því að fræða fólk um fisk og sýna fram á óþrjótandi möguleika sjávarfangs. Átakið er styrkt af AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi. Tvisvar í viku er lágmark Matís gerði rannsókn á viðhorfum og fiskneyslu landsmanna á aldrinum 10-80 ára í vor til að hafa samanburð- argögn fyrir rannsókn þegar átakinu lýkur. Þarna voru grunnskólabörn í fyrsta skipti með í neyslukönnuninni. Niðurstaðan var að 10-15 ára börn neyta fisks ríflega 2 sinnum í viku að jafnaði. „Meira en helmingur fisk- neyslunnar fer fram utan heimilis og því má álykta að þau borði um helming þess fisks sem þau borða í skólamötuneytum eða veitingastöð- um,“ segir Gunnþórunn. Næsti ald- urshópur, ungmenni á aldrinum 16-26 ára, neyta fisks hins vegar 1,5 sinnum í viku að meðaltali. Lýðheilsumark- miðin segja til um að fólk eigi að borða fisk minnst tvisvar sinnum í viku þannig að þessar niðurstöður sýna að þessi aldurshópur er ekki að ná þessum markmiðum. Vilja frekar lax en ýsu Börn 10-15 ára voru spurð um hvaða fisk þau borðuðu oftast. Þar var ýsan oftast nefnd og síðan þorskurinn. „Þegar við spurðum hvað þau lang- aði helst að borða nefndu margir eitthvað annað, til dæmis lax. Við getum notað mun fleiri fisktegundir í matreiðslu og því tilvalið tækifæri að kynna krökkum þær tegundir þar sem neysluvenjur þeirra eru enn að mótast,“ segir hún. Matís framleiddi ásamt Sagafilm þættina Fagur fiskur sem fyrst voru sýndir í Ríkissjónvarpinu fyrir tveimur árum. Þættirnir voru styrktir af AVS-rannsóknarsjóðnum, en mark- miðið með þeim er að sýna hvernig matbúa megi hinar ýmsu tegundir af fiski á spennandi og fjölbreytilegan hátt. Ekki voru gerðar sérstakar fisk- neyslukannanir í tengslum við sýn- ingu fyrstu þáttaraðarinnar en verið er að sýna aðra þáttarröðina sem er hluti af fiskneysluátakinu. Að þeim þáttum loknum taka við innskots- þættir á vegum Matís í Kastljósi þar sem Sveinn Kjartansson matreiðslu- meistari mun ásamt börnum elda spennandi fiskrétti. Sérstök áhersla er á börn og ungt fólk í átakinu en almennt er fiskneysla meiri hjá þeim sem eldri eru. Fiskur er góður próteingjafi og hann inniheldur einnig ýmis önnur næringarefni svo sem selen og joð. Feitur fiskur er auðugur af ómega 3-fitusýrum og D-vítamíni. Sér í lagi er mikilvægt fyrir Íslendinga að huga að neyslu D-vítamínríkra matvæla yfir vetrartímann þegar varla sést til sólar. Næringarfræðingar leggja því almennt mikla áherslu á neyslu fisks. Fiskneysla í æsku hefur áhrif Í rannsókn Matís frá 2006 á við- horfum og fiskneyslu var fólk spurt hvað hefði áhrif á fiskneyslu þess. Neysla foreldra á fiski hafði þar mest hvetjandi áhrif, svo og neysla maka, matreiðsluþættir í sjónvarpi, nær- ingarfræðingar og læknar. „Það var einmitt út af þessu sem við réðumst upphaflega í gerð Fagur fiskur, út af áhrifum matreiðsluþátta. Fiskneysla í æsku hefur síðan áhrif á hversu mikið af fiski fólk borðar þegar það verður eldra,“ segir Gunnþórunn. Fiskiðnaðurinn sem slíkur hafði hins vegar letjandi áhrif á fiskneyslu. Hins vegar höfum við fundið fyrir meðbyr frá nýjum stjórnendum í sjávarútvegi þar sem þeir sjá hvað þeir geta gert til að sýna samfélagslega ábyrgð, meðal annars með því að styrkja svona átaksverkefni. Athygli vekur að í þessari rannsókn kemur fram að því fleiri börn sem eru á heimilinu því oftar eru pastaréttir og skyndibitar á boðstólum en fiskur síður. Fiskiátakið verður formlega sett í Smáralind 28. september með sér- stakri opnunarhátíð þar sem sett verður upp viðamikil fiskikynning þar sem fólk getur smakkað ólíkar fisktegundir. Samhliða þessu verður opnuð sérstök heimasíða átaksins með ýmiskonar fræðslu. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Því fleiri börn sem eru á heimilinu því oftar eru pastaréttir og skyndibitar á boðstólum en fiskur síður.  Heilbrigðismál matís eFnir til landsátaks um Fiskneyslu í vetur Fiskneysla minni á íslenskum heimilum Ungmenni á aldrinum 16-26 ára ná ekki lýðheilsumarkmiðum þegar kemur að fiskneyslu. Verulega dregur úr því unglingar borði fisk þegar þeir hætta í grunnskóla – líklega vegna þess að þau hætta þá að fá fisk í skólamötuneytinu. Matís efnir til sérstaks fiskneysluátaks síðar í þessum mánuði þar sem meðal annars er lögð áhersla á að kenna fólki að matbúa fisk. Mikið úrval er í íslenskum fiskbúðum og þó ýsa sé oftast á borðum Íslendinga eru aðrar tegundir í sókn. Ljósmynd/Hari Gunnþórunn Einarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Matís, og Ingunn Jónsdóttir, stöðvarstjóri hjá Matís, eru skipuleggjendur landsátaks í fiskneyslu. Ljósmynd/Kristín Edda Gylfadóttir 12 fréttir Helgin 20.-22. september 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.