Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 16
H ann er voða rólegur þessi elska og þetta er bara búið að vera rosa ljúft,“ segir útvarpskonan Gunna Dís um
son sinn, Magnús Hlíðar, sem er að verða
fjögurra mánaða. Gunna Dís hefur verið fjarri
hljóðnemanum og félaga sínum í þættinum
Virkir morgnar á Rás 2 þessa mánuði en nú
styttist í endurkomu hennar.
„Hann er bara hérna á brjósti og er þar
öllum stundum þannig að þetta er löngu hætt
að vera feimnismál,“ segir Gunna Dís og
hlær. „Tíminn hefur flogið og það er eiginlega
svakalega skrýtið að vera að fara að vinna
eftir þrjár vikur. En þetta er bara að bresta á.“
Gunna Dís stefnir þó ekki að því að mæta
með þann stutta á brjósti í hljóðver. „Nei, ég
reikna nú ekki með því. Ætli hann þurfi ekki
bara að fara að verða sjálfstæður?“ Segir hún
og hlær. „Nei, nei. Nú tekur bara pabbinn við
og við ætlum bara að skiptast svona á.“
Gunna Dís hefur fylgst nokkuð vel með
Andra Frey í sumar með því að hlusta á þátt
inn þeirra. „Já, já. Ég er að hlusta á Andra
og Dodda núna, að bjóða upp skóna hans
Sigmundar Davíðs. Ég er eiginlega búin að
fylgjast með þessu í allt sumar, samt ekki
alveg. Ég kúplaði mig út kannski svona fyrstu
tvo mánuðina en nú fer maður að þurfa að
vera tilbúinn í slaginn aftur.“
Gunna Dís segist ekki hafa fundið neina
sérstaka þörf fyrir að grípa fram í fyrir Andra
Frey eða svara honum þegar hann hefur
skellt á skeið í fjarveru hennar. „Nei, nei. En
það hefur alveg komið fyrir að ég sendi hon
um SMS. Annars stendur hann sig vel þessi
elska og spjarar sig fínt. Doddi litli er líka
góður með honum. Enda vanur maður.“
Fínt að komast út úr húsi
Gunna Dís mætir til leiks á ný í annarri viku
október og segir tilfinninguna óneitanlega
sérkennilega. „Það eru bara þrjár vikur
þangað til maður þarf að fara að stilla vekjara
klukkur í fyrsta skipti í einhverja fjóra mán
uði. Það verður frekar skrýtið. Heldurðu að
það verði ekki viðbrigði?
Það verður reyndar fínt að komast út úr
húsi. Þetta er náttúrlega búið að vera, held
ég, versta sumar í Reykjavík í ein 30 ár. Ég
var svo heppin að lenda í fæðingarorlofi á því
sumri. Þannig að ég get ekki sagt að maður
sé búinn að vera mikið að spóka sig úti með
barnavagninn. Fara niður í bæ eða gera neitt.
Maður er bara búinn að hafa það kósí heima
og hlusta á útvarpið, þannig að það verður
kannski fínt að komast út úr húsi.“
Gunna Dís segir þó að sjálfsögðu nauðsyn
legt að taka hringinn með vagninn og sýna
sig þannig en tækifærin hafi verið fá. „Mann
hefði bara annað hvort rignt niður eða fokið
eitthvað. Þetta er búið að vera dálítið þannig.“
Sá sólina fyrst á Egilsstöðum
Gunna Dís segir þetta sólarlitla sumar í fyrstu
hafa valdið sér umtalsverðu hugarangri. „Ég
vældi eins og stunginn grís til að byrja með
og fannst þetta alveg ömurlegt. Svo er ég bara
búin að taka nýjan pól í hæðina og líta bara á
þetta sem frábæran tíma sem ég hef átt inni
í rólegheitum með barninu. Njóta þess bara
að vera með honum. Og svo drífur maður sig
bara út þegar prógrammið byrjar upp á nýtt.“
Gunna Dís lagði land undir fót með Magnús
litla í sumar og yfirgaf suddann í Reykjavík.
„Jájá. Við fórum bara hringinn í kringum
landið með krakkann. Maður er náttúrlega
utan af landi. Hann sá sól í fyrsta skipti þegar
við fórum á Egilsstaði. Þá var hann orðinn
sjö eða átta vikna en það er nú svosem ekkert
slæmt að sjá hana í fyrsta skipti á Egilsstöð
um. Það gæti verið verra.“
Andri sér um kristilegt uppeldi
Gunna Dís segist gera sér vonir um að Andri
Freyr hafi saknað hennar eitthvað í fæðing
arorlofinu. „En ég efast samt stórkostlega
um að hann sé að telja dagana. Ég held ég sé
ekki það ómissandi. Hann kíkir líka í kaffi
annað slagið. Strákurinn er náttúrlega guð
sonur Andra, þannig að hann hefur ákveðnar
skyldur og á að koma hér og sjá um kristilegt
uppeldi barnsins. Þannig að hann kíkir í kaffi
til okkar reglulega og það er nú ekki leiðin
legt að hann hafi þessu hlutverki að gegna.“
Gunna Dís segir óhjákvæmilega dálítinn
aðskilnaðarkvíða hafa gert við sig þegar fríið
er farið að styttast svona í annan endann.
„Ég held reyndar að það sé alltaf smá kvíði í
konum. Bara til að byrja með, en svo held ég
að þetta sé miklu minna mál en maður heldur.
Þegar þú ert búin að loka þig af, innan veggja
heimilisins, og tileinka þig þessu alveg þá
er rosalega skrýtið að fara að stíga út fyrir
rammann. Það er bara einhvern veginn þann
ig.“ Segir Gunna Dís sem er þó að komast í
gírinn og verður til í slaginn með guðföður
sonar síns þegar ballið byrjar á ný.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Gunna Dís hefur notið lífsins með Magnúsli litla Hlíðari síðustu fjóra mánuði og lagði meðal annars land undir fót í sumar til þess að barnið fengi að sjá sólina
í fyrsta sinn. Það gerðist á Egilsstöðum þegar drengurinn var um tveggja mánaða gamall. Mynd/Hari
Andri Freyr hefur
ákveðnar skyldur
og á að koma hér
og sjá um kristilegt
uppeldi barnsins.
Útvarpskonan vinsæla Gunna Dís
hefur verið fjarri góðu gamni á
Virkum morgnum á Rás 2 síðustu
fjóra mánuði sem hún hefur eytt
með nýfæddum syni sínum. Andri
Freyr, félagi hennar í þættinum,
hefur staðið vaktina á meðan en
nú styttist í endurkomu Gunnu
Dísar. Hún hefur þó fylgst náið með
Andra Frey og hlustað á þáttinn
með barnið á brjósti. Hún vonast til
þess að Andri hafi saknað sín eitt-
hvað þótt hún efist um að hann telji
dagana þangað til hún kemur aftur.
Gefur barninu ekki
brjóst í stúdíóinu
16 viðtal Helgin 20.-22. september 2013