Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 32
Þ að verða fimm félög sem bjóða upp á reglulegt áætlunarflug frá Keflavík í vetur. Þrjú þeirra rukka farþega aukalega fyrir innritaðan farang-
ur og val á sæti. Hægt er að komast hjá því að greiða
fyrir þetta tvennt með því að ferðast með lítinn farangur
og láta vera að taka frá sérstakt sæti. Það er þó ólíklegt
að þeir sem ferðast með öðrum vilji taka áhættuna á
því að vera settir í sæti fjarri förunautunum. Sérstak-
lega þeir sem ferðast með börn. Á heimasíðu breska
lággjaldaflugfélagsins Easy Jet kemur fram að sætum
sé úthlutað af handahófi en reynt sé að láta fólk sem
ferðast saman vera hlið við hlið.
Það er því öruggast að borga fyrir þjónustuna. Hjá
Easy Jet er sætunum skipt upp í nokkra verðflokka og
kosta þau frá tæpum 650 krónum. Hjá Wow Air eru
hefðbundin sæti á 995 krónur en þau sem eru með
meira fótarými eru á 2995 krónur.
Íslensk debetkort duga sjaldan á netinu
Farþegar hér á landi komast ekki hjá kreditkorta-
þóknun erlendu flugfélaganna því íslensk debetkort
eru ekki með númeraröð á framhlið né þriggja stafa
öryggisnúmer. Það er því ekki hægt að greiða með
þeim á netinu. Debetkort sem gefin eru út af bönk-
um í nágrannalöndunum eru hins vegar ekki svona
takmörkuð. Þeir sem bóka far héðan með Norwegian
til Oslóar þurfa því að borga aukalega rúmar átta
hundruð krónur og hjá Easy Jet leggst 2,5 prósenta
kreditkortagjald ofan á farmiðaverðið.
Bókunargjöld eru oftast innifalin en hjá Wow Air
bætist það við fargjöldin og nemur 925 krónum.
Töskurnar dýrar
Það eru sennilega óhætt að fullyrða að búðaráp til-
heyri ferðalögum til útlanda hjá mörgum lesendum.
Það er því ekki víst að handfarangur dugi alltaf og
þeir sem ætla að dvelja úti í viku eða meira komast
varla hjá því að taka með sér stærri tösku. Það kostar
ekki aukalega að innrita farangurinn hjá Icelandair
og SAS en hjá hinum þremur félögunum þarf að
borga fyrir þjónustuna. Norwegian rukkar minnst
eða rúmar fjórtán hundruð krónur og hjá Easy Jet
ræðst verðið meðal annars af eftirspurn og er því
breytilegt eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Hjá Wow Air borga farþegarnir hins vegar 3495
krónur fyrir eina innritaða tösku en farangursgjald
félagsins hækkaði nýverið úr 2900 krónum.
32 ferðalög Helgin 20.-22. september 2013
Fargjöld Borgað Fyrir Þjónustu sem áður var inniFalin
Aukagjöld flugfélaganna
Aukagjöldin
1 innrituð taska aðra leiðina Val á sæti Kreditkortaþóknun Bókunargjald
Easy Jet 2749 til 3477 krónur (17-21,5 evrur) 647 til 2910 krónur (4-17,99 evrur) 2,5% 0
Icelandair 0 0 0 0
Norwegian 1416 krónur (69 norskar) 1211 krónur (59 norskar) 821 krónur (40 krónur) 0
SAS 0 0 0 0
WOW 3495 krónur 995 eða 2995 krónur 0 995 krónur
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Kristján Sigurjónsson heldur úti ferðavefnum Túristi.is
Hjá Norwegian kostar um 1200 krónur að taka frá sæti. Easy Jet go Wow Air rukka einnig fyrir þessa þjónustu og kosta dýrustu
sætin tæpar þrjú þúsund krónur. Mynd/Norwegian
Það færist í vöxt að flugfarþegar þurfi að borga sérstaklega fyrir þjónustu sem áður var innifalin í far-
gjaldinu. Kristján Sigurjónsson kynnti sér gjöldin sem flugfarþegar þurfa nú að taka með í reikninginn.
Hvalaskoðun
HARPA
EXPO SKÁLINN
2012-201320112010
SJANGHÆ - FRANKFURT - REYKJAVÍK
EXPO SKÁLINN Á MIÐBAKKA
360°G R Á Ð U K V I K M Y N D
ÍSLAND Í EINSTÖKU LJÓSI
3 MILLJÓNIR GESTA
Kauptu mida og fádu þér- -
-
-
rjúkandi heitan espresso í bodi okkar
Blanda sem getur ekki klikkad
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
Tækifæri
í september
Kæli- og frystiskápur
KG 36VNW20
Hvítur. Orkuflokkur A+. „crisper-
Box“-skúffa. Hljóðlátur.
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm.
Tækifærisverð:
99.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 129.900 kr.)
Uppþvottavél
SN 45D201SK
12 manna. Fimm kerfi.
Tímastytting þvottakerfa.
„aquaStop“-flæðivörn.
Tækifærisverð:
99.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 139.900 kr.)
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is