Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 20.09.2013, Qupperneq 34
34 matur og vín Helgin 20.-22. september 2013 Þ að er ákveðin tilraunamennska með hverri nýrri sort. Við erum ekki mikið fyrir að endurtaka okkur,“ segir Valgeir Valgeirsson, bruggmeistari í Borg brugghúsi. Valgeir og félagar hafa lagt lokahönd á tvo nýja bjóra. Sá fyrri kallast Garún og er númer 19 í röðinni hjá brugghús- inu. Hann er fyrst um sinn hugsaður til útflutnings. Sá númer 20 heitir Teresa og er Októberfest-bjór brugghússins í ár. Þessir bjórar eru fyrstu Borgar-bjór- arnir sem bera kvenmannsnöfn. Bjó til bjór fyrir sjálfan sig Að sögn Valgeirs er Garún 11,5 prósent „Icelandic Stout“ sem er einskonar undirflokkur „Imperial Stout“. Hann segir að það sem helst einkenni „Ice- landic Stout“ sé að þeir séu mýkri og auðdrekkanlegri en hefðbundnir Stout- bjórar í þessum styrkleika. Auk Gar- únar falla í þennan flokk Surtur nr. 8 og Surtur nr. 15 frá Borg og Lava frá Ölvis- holti. Valgeir var áður bruggmeistari Ölvisholts og hefur því komið að þróun allra þessara bjóra. „Þetta er líklega sá stíll sem ég hef bruggað hvað oftast og ég er mjög áhugasamur um hann. Þegar ég bjó til Lava var ég fyrst og fremst að reyna að búa til bjór fyrir sjálfan mig, bjór sem mig langaði að drekka. Ég vissi reyndar vel að það væri markaður fyrir hann úti. Svo þegar ég kom í Borg vorum við Sturlaugur bruggmeistari sammála um að þessi bjórstíll væri tilvalinn fyrir þorrabjórinn og þannig varð fyrsta útgáfa af Surti til. Og af því við erum ekki mikið fyrir að endurtaka okkur hafa komið tvær uppskriftir af Surti og nú Garún.“ Garún fær nafn sitt frá Guðrúnu frá Bægisá, lykilpersónu í Djáknanum á Myrká. Þrátt fyrir þjóðlega vísun er bjórinn fyrst um sinn ekki hugs- aður fyrir heimamarkað. Borg hefur gengið frá samningi við Vanberg & DeWulf sem mun annast dreifingu á Garúnu í Bandaríkjunum. Kynning á Garúnu hefst í október eða nóvember og verður hún til sölu í sérvöruverslunum, á börum og veitingastöðum í Kaliforníu. Valgeir segir að Vanberg & DeWulf sé flott innflutn- ingsfyrirtæki með sérvalda bjóra. Útsendari fyrirtæk- isins hafi heimsótt Borg, prófað bjóra þess og hrifist af ýmsum tilraunum brugg- hússins. „Úr varð að Garún var þróuð sérstaklega til útflutnings.“ Hversu umfangsmikill er þessi útflutningur? „Við byrjum bara rólega og ef það er áhugi þarna þá reynum við að anna eftirspurninni. Þessi markaður er hrikalega stór í Bandaríkjunum og ef við náum til brotabrots af honum þá eru möguleikarnir góðir.“ Með fróðleik í fararnesti Fæðuhringurinn í miðborg Reykjavíkur – saga matar frá landnámi til okkar daga Valitor er stuðningsaðili Ferðafélags Íslands. Allar nánari upplýsingar á hi.is Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða göngu þar sem matur, saga og menning verða meginefnið laugardaginn 21. september. Gangan hefst á horni Aðalstrætis og Túngötu kl. 11 og henni lýkur við gömlu höfnina. Gengið verður um gamla grænmetisgarða, stakkstæði, veitingastaði og verslanir liðins tíma. PIPA R \ TBW A • SÍA • 132679 Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands hafa staðið fyrir fræðandi gönguferðum sem hófust á aldarafmæli skólans 2011. Í áhugaverðum gönguferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess hafa reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands blandast saman. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.  Bjór Tveir nýir Bjórar á markað frá Borg-Brugghúsi Fyrstu stelpurnar í fjölskyldunni Valgeir Valgeirsson og félagar í Borg-brugghúsi senda frá sér tvo nýja bjóra. Garún og Teresa eru fyrstu bjórar brugghússins sem bera kvenmannsnöfn. Garún verður flutt út til Bandaríkjanna en Teresa verður Októberfest-bjór á heimamarkaði. Bruggmeistararnir nota þýska tilraunahumla í Teresu enda er hún brugguð í nýjum bjórstíl. Þýskir humlar í Októberfest-bjór Nú í vikunni var bjór númer 20 frá Borg, Teresa, settur í sölu í Vínbúð- unum. Teresa er Októberfest-bjór Borgar í ár. Teresa Karlotta var kona Lúðvíks fyrsta, krónprins af Bæjaralandi, sem Októrberfest- bjór Borgar í fyrra var einmitt nefndur eftir. Brúðkaup Lúðvíks og Teresu fór fram 17. október árið 1810 og markar upphaf Október- fest-hátíðanna. Teresa er India Red Lager sem að sögn Valgeirs og félaga er „frumsaminn“ bjórstíll frá Borg. India vísar í mikla humlanotkun (í líkingu við India Pale Ale-bjóra), Red vísar í lit bjórsins sem er rauð- tóna og Lager þýðir einfaldlega að um lager-bjór er að ræða eins og tíðkast á Októberfest. „Okkur fannst þetta nafn lýsa bjórnum hvað best en þetta flokk- ast ekki beint undir neinn sérstak- an stíl. Þróunarvinnan hjá okkur er sjaldnast þannig að við gerum bjór eftir ákveðnum stíl. Við erum með bragðpælingar og hugmyndir í kringum þær og þegar við erum komnir með tilbúna vöru þá þarf að setja hana inn í tiltekinn ramma. Það hefur gengið misvel,“ segir Valgeir og hlær. Hann segir að gróskan hjá ör- brugghúsum víða um heim sé svo mikil að erfitt sé að ætla að vera frumlegur í bjórgerð í dag. „Þetta kemur mikið frá Bandaríkjunum, þeir eru öfgarnar uppmálaðar í öllu. Þeir taka eitthvað gamalt og gott frá Evrópu og margfalda það með tíu. Þá verður ýmislegt skemmtilegt til.“ Teresa er þurrhumluð með nýjum þýskum humli, Polaris, sem enn er verið að gera tilraunir með. „Bandaríkjamenn hafa verið sterkir með humlana sína en Þjóð- verjarnir eru að prófa sig áfram. Polaris kemur gríðarlega sterkt í gegn í Teresu. Okkur áskotnuðust nokkur kíló af honum og við urðum bara að prófa hann. Polaris er það öflugur einn og sér að við þurft- um að blanda honum saman við bandaríska humla til að tóna hann aðeins niður. Það er gaman að hafa þýskt þema í þessu, það passar við þennan árstíðarbjór,“ segir Valgeir. Stúfur verður jólabjórinn Að endingu er Valgeir spurður hverju bjóráhugafólk megi eiga von á frá Borg í náinni framtíð. „Við erum að vinna ákveðna hug- myndavinnu fyrir næsta þorrabjór og erum komnir með hugmyndir fyrir sumarbjór sem verða kannski eða kannski ekki að veruleika. Fyrst er það samt jólabjór sem við höfum unnið að síðan í febrúar. Við erum ekki alveg búnir að leggja lokahönd á uppskriftina en ég get sagt að hann mun heita Stúfur. Og hann verður dvergur með mikil- mennskubrjálæði.“ Bruggmeistararnir Valgeir Valgeirsson og Sturlaugur Jón Björnsson í Borg brugg- húsi hafa lagt lokahönd á tvo nýja bjóra, Garúnu og Teresu. Ljósmynd/Hari Teresa India Red Lager 5,5% Kominn í Vínbúðirnar. Garún Icelandic Stout 11,5 % Verður ein- göngu seldur í Bandaríkjunum fyrst um sinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.