Fréttatíminn - 20.09.2013, Side 44
44 skák og bridge Helgin 20.-22. september 2013
Skákakademían Úti er ævintýri ÖSkubuSku frá Úkraínu...
Drottning endurheimtir ríki sitt
k ínverska skákstúlkan Hue Yifan vann hug og hjörtu Ís-lendinga þegar hún mætti
til leiks á N1 Reykjavíkurskák-
mótinu í fyrra. Þá var hún ríkjandi
heimsmeistari kvenna, aðeins 17
ára gömul, eftir að hafa árið áður
orðið yngst allra í sögunni (bæði
karla og kvenna) til að ná heims-
meistaratign. Hún þurfti að sjá á
eftir titlinum í desember í fyrra,
þegar hin úkraínska Anna Us-
henina sigraði óvænt á útsláttar-
móti FIDE um titilinn. Anna, sem
er 28 ára, var aðeins í 17. sæti á
stigalista kvenna, og því ekki bein-
línis sannfærandi heimsmeistari.
Hue Yifan er hinsvegar næststiga-
hæst kvenna í heiminum – aðeins
goðsögnin Judit Polgar er hærri.
(Judit, 37 ára, hefur aldrei tekið
þátt í keppni um heimsmeistara-
titil kvenna.)
Anna Ushenina hefur verið köll-
uð Öskubuska skákheimsins, eftir
að hafa öllum að óvörum komist til
æðstu metorða. En nú er draum-
urinn úti – eða svo gott sem. Hinn
11. september hófst einvígi hennar
við Hue Yifan í kínversku borginni
Taizhou. Þar hefur vinkona okkar
frá Kína sýnt mátt sinn og megin,
og bókstaflega tætt Önnu í sig.
Eftir sex skákir hafði Hue Yifan
unnið þrjár – allar með svörtu! –
en öðrum skákum lokið með jafnt-
efli. Yifan þarf því aðeins 1 vinn-
ing úr fjórum síðustu skákunum
til að endurheimta kórónuna. Og
það verður örugglega létt verk og
löðurmannlegt fyrir geðþekku
snilldarstúlkuna frá Kína.
Skákin blómstrar á Selfossi
Selfoss er að verða einn helsti
skákbær landsins, eftir að hið
kraftmikla skákfélag heimamanna
eignaðist heimavöll í Fischerssetr-
inu á Austurvegi 21. Þar er hægt að
skoða margvíslega muni sem tengj-
ast þessum ættleidda syni Íslands,
ekki síst úr einvígi Fischers og
Spasskys í Reykjavík 1972. Sunn-
lendingum þykir greinilega vænt
um skákfélagið sitt, og í vikunni
færði Dagmar Una Ólafsdóttir á
Selfossi skákfélaginu styrk upp á
400 þúsund krónur, sem verða not-
aðar til skákkennslu í skólunum
í Árborg. Megi þessi myndarlegi
styrkur verða öðrum innblástur!
Fróðleiksmoli vikunnar
Sumir álíta að búið sé að rannsaka
allar skákbyrjanir ofan í kjölinn. En
það er nú öðru nær. Á Vísindavefn-
um hafa menn reiknað út mögu-
legar stöður á taflborðinu eftir að-
eins þrjá leiki: Í upphafsstöðunni
getur hvítur valið úr 20 leikjum og
svartur hefur líka úr 20 leikjum að
velja þegar hann svarar. Mögulegar
stöður eftir fyrsta leik eru því 400.
Eftir annan leik hvíts eru 5.362
stöður mögulegar og 71.852 þegar
svartur hefur svarað. Eftir þriðja
leik hvíts eru 809.896 stöður mögu-
legar og eftir að svartur hefur leik-
ið sinn þriðja leik, eru mögulegar
stöður á borðinu orðnar 9.132.484.
Og nú geta okkar góðu lesendur
tekið við keflinu – meðalskák er
svona kringum 40 leikir...
J ón Baldursson og Þorlákur Jónsson hafa spilað saman sem par um árabil en Jón Baldursson og Sigurbjörn Har-
aldsson hyggja á samstarf sem par á næsta
keppnistímabili. Óhætt er að segja að Jón og
Þorlákur hafi endað með sæmd. Þeir unnu
næsta öruggan sigur 207 impar gegn 156 á
sveit J.E. Skjanna í úrslitaleik bikarsveita-
keppninnar sem háður var sunnudaginn 15.
september. Jón og Þorlákur voru í sveit Lög-
fræðistofu Íslands með Bjarna Einarssyni,
Aðalsteini Jörgensen, Sverri Ármannssyni
og Steinari Jónssyni. Sveit Lögfræðistofunn-
ar atti kappi við sveit SFG (Sölufélag garð-
yrkjumanna) í undanúrslitum og vann þar
góðan sigur, með 177 impum gegn 99. Sveit
Lögfræðistofunnar græddi heila 13 impa
á þessu spili. Samningurinn var sá sami á
báðum borðum, 3 grönd. Munurinn var sá
að Jón Baldursson var sagnhafi í vestur, en
samningurinn spilaður á austurhöndina á
hinu borðinu. Sagnir tók fljótt af hjá Jóni og
Þorláki. Norður gafari og AV á hættu:
Eftir pass norðurs, opnaði Þorlákur á 2
hjörtum í austur sem sýndi 11-15 punkta og
stuttan tígul með lengd í öllum hinum litun-
um. Jón lauk fljótt sögnum með 3 gröndum.
Útspil norðurs var spaði, Jón reyndi kóng í
blindum sem kostaði ás og suður tók slag á
spaðagosa. Suður spilaði síðan tígli. Jón tók
ás og kóng og það nægði til að koma samn-
ingnum heim. Á hinu borðinu opnaði austur
á 1 laufi eftir pass norðurs, vestur sagði einn
tígul og norður doblaði til að sýna lengd í
hálitum (eftir pass í upphafi). Suður sagði
hjarta og vestur sagði 3 hjörtu til að spyrja
austur um stöðvara í litnum. Útspil suðurs,
gegn 3 gröndum austurs, var hjartadrottn-
ing og útlitið verra fyrir sagnhafa. Hann gaf
tvisvar, drap á ás, tók laufslag, tígli á ás og
reyndi spaða á kóng. Vörnin tók þá sína upp-
lögðu 5 varnarslagi.
Naumur sigur í lokamóti sumarbridge
Birkir Jónsson og Kristján B. Snorrason
unnu nauman sigur í lokamóti sumarbridge
sem haldið var föstudagskvöldið 13. septem-
ber. Þátttakan var 36 pör. Lokastaða efstu
para varð þannig:
1. Birkir Jón Jónsson – Kristján Snorrason 60,8%
2. Magnús Sverrisson – Halldór Þorvaldsson 60,3%
3. Bergur Reynisson – Stefán Stefánsson 58,6%
4. Kristján Már Gunnarsson – Gunnlaugur Sævarsson 57,3%
5. Júlíus Sigurjónsson – Ragnar Magnússon 55,2%
Oddur Hannesson skoraði mest af brons-
stigum í sumarbridge í sumar, 302 stig. Í
öðru sæti kom bróðir hans Árni með 223
stig, Halldór Þorvaldsson skoraði 214 stig,
Stefán Stefánsson 207, Hermann Friðriks-
son 205 og Bergur Reynisson 202 brons-
stig. Mikil keppni var um besta meðalskorið
í sumarbridge. Hlutskarpastur var Krist-
ján Már Gunnarsson með 58,32% skor að
meðaltali. Lokastaða 5 efstu varð þannig:
1. Kristján Már Gunnarsson 58,32%
2. Gunnlaugur Sævarsson 57,42%
3. Árni Hannesson 57,13%
4. Kjartan Ásmundsson 56,88%
5. Birkir Jón Jónsson 56,12%
Keppnin hafin um Bermúdaskálina í Balí
Heimsmeistaramótið í bridge er nýhafið í
Bali í Indónesíu. Mótið verður spilað dag-
ana 16.-29. september og spilað um Bermú-
daskálina í opnum flokki, Venice bikarinn
í kvennaflokki og D‘Orsi verðlaunin í eldri
flokki. Íslenska landsliðið er þar ekki á
meðal keppenda en Ísland á samt einn full-
trúa í þessari keppni, Hjördísi Eyþórsdóttur,
atvinnuspilara í Bandaríkjunum, sem er í
kvennaliði USA2. Eftir 3 umferðir í undan-
keppni af 21 var sú sveit efst með 48,10 stig
(mest hægt að vinna 20-0) í leik þegar þessi
orð voru skrifuð. Til að fylgjast með skori
er hægt að nota þennan hlekk: http://world-
bridge.org/repository/tourn/bali.13/micro-
site/Results.htm
bridge Jón baldurSSon og Þorlákur JónSSon hafa Spilað Saman Sem par um árabil
Sterkt par skorar á lokasprettinum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Hakomatic B 115R
gólfþvottavél
Skiptitilboð á ræstivögnum, gólfþvottavélum og sópvélum
Hako Jonas 980 E
sópvél
Hako Hamster 500E
sópvél
Hakomatic B30 CL
gólfþvottavél
Hako gólfþvottavélar og sópvélar
Hafðu samband við ráðgjafa eða sölumenn RV og fáðu tilboð í þá Hako vél sem hentar þér.
♠ D10842
♥ K743
♦ D4
♣ 43
♠ ÁG
♥ DG98
♦ 9863
♣ 865
♠ 76
♥ 102
♦ ÁKG752
♣ ÁD10
♠ K953
♥ Á65
♦ 10
♣ KG972
N
S
V A
Spilarar í úrslitaleiknum í sveitum Lögfræðistofunnar og J.E.Skjanna. Frá vinstri í aftari röð eru
Þorlákur Jónsson, Bjarni Einarsson, Karl Sigurhjartarson, Jón Baldursson, Snorri Karlsson, Steinar
Jónsson, Sigurbjörn Haraldsson, og Anton Haraldsson. Í fremri röð eru Sævar Þorbjörnsson, Aðalsteinn
Jörgensen, Sverrir Ármannsson og Pétur Guðjónsson.
Efnilegur skákmeistari og stoltir foreldrar: Gagnaveitumótið – Haustmót Tafl-
félags Reykjavíkur er komið á fullan skrið og er teflt í fjórum flokkum. Hinn ungi
og efnilegi Róbert Luu, sem er í 3. bekk í Álfhólsskóla í Kópavogi, tekur þátt í sínu
fyrsta stórmóti og í 2. umferð vann hann snaggaralegan sigur á Pétri Jóhannes-
syni í aðeins 24 leikjum. Róbert er einn af lærisveinum Lenku Ptacnikova, bestu
skákkonu Íslands, sem gert hefur Álfhólsskóla að Íslands- og Norðurlandameist-
urum. Framtíðin er björt í Kópavogi. Ljósmynd/HJ
Hue Yifan. Heimsmeistari kvenna á
ný! Ljósmynd/HJ