Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 48
48 bíó Helgin 20.-22. september 2013
Forest
Whitta-
ker
leikur
Cecil
á sinn
látlausa
og yfir-
vegaða
hátt.
Frumsýnd The BuTler
C ecil Gaines ólst upp á plantekru í Suð-urríkjunum við kröpp kjör í kringum 1920. Eftir að hafa þjónað húsbænd-
um sínum með prýði um árabil liggur leið
hans til Washington. Hann er ráðinn til starfa
í Hvíta húsinu í stjórnartíð Eisenhowers og
veður upp frá því vitni að sögulegum atburð-
um sem eiga sér stað í og í kringum Hvíta
húsið. Saga hans er því um leið saga þjóðar-
innar í stjórnartíð Eisenhowers, Kennedys,
Johnsons, Nixons og Reagans og ekki síst
réttindabaráttu þeldökkra í Bandaríkjunum.
Cecil hóf störf í Hvíta húsinu 1952 og vann
sig upp í stöðu yfirþjóns forseta og þjónaði
fyrrnefndum forsetum sem slíkur áratugum
saman en hann vann í forsetabústaðnum í ein
34 ár þar til hann lét af störfum 1986.
Lee Daniels leikstýrir The Butler sem
vakti síðast athygli og aðdáun með hinni
áhrifaríku mynd Precious. Hann virðist
ekki síður hitta á réttan tón með The Butler
sem gagnrýnendur í Bandaríkjunum hafa
almennt tekið vel.
Forest Whittaker leikur Cecil á sinn lát-
lausa og yfirvegaða hátt en í raun hefur borið
meira á spjallþáttadrottningunni Oprah Win-
frey í kringum myndina en hún þykir fara á
kostum í hlutverki eiginkonu Cecils, Gloriu.
Aukaleikararnir eru heldur ekki af verri end-
anum en Robin Williams leikur Eisenhower,
James Marsden leikur John F. Kennedy, Liev
Schreiber túlkar Lyndon B. Johnson, John
Cusack leikur Richard Nixon og breski önd-
vegisleikarinn Alan Rickman leikur Ronald
Reagan. Þá leikur Jane Fonda Nancy Reagan
auk þess sem Vanessa Redgrave, söngkonan
Mariah Carey, Cuba Gooding Jr og Lenny
Kravitz láta að sér kveða.
Cecil fylgdist ekki síst með afskiptum for-
setanna af réttindamálum afrískra Amerík-
ana en miklar væringar voru í þeim málum
um miðbik aldarinnar. Sonur hans blandar
sér í baráttuna af mikilli einurð og lendir
meðal annars í klónum á Ku Klux Klan í
Suðurríkjunum eftir að Kennedy náði kjöri.
Hann hætti störfum í stjórnartíð Reagans
en lifði þann merkis atburð þegar Barack
Obama náði kjöri og varð fyrsti þeldökki for-
seti Bandaríkjanna.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,5, Rotten Tomatoes: 73%
Kvikmyndin The Butler byggir á sögu Cecil Gaines, sem mátti þola fordóma og mótlæti á fyrri
hluta síðustu aldar, rétt eins og aðrir Bandaríkjamenn sem áttu ættir að rekja til Afríku. Hann
lét ekki bugast og barðist gegn straumnum og ávann sér vinsemd og virðingu nokkurra Banda-
ríkjaforseta á langri starfsævi sem bryti í Hvíta húsinu. Forest Whitaker leikur Cecil í myndinni
sem gagnrýnendur ytra hafa ausið lofi.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Saga brytans í Hvíta húsinu
Forest Whittaker leikur Cecil Gaines sem starfaði sem yfirþjónn nokkurra Bandaríkjaforseta á sögulegum tímum í lífi þjóðarinnar.
Leikarinn Vin Diesel vakti fyrst
verulega athygli árið 2000 þegar
hann lék glæpamanninn Riddick
í hinum ágæta geimhrolli Pitch
Black. Þar tókst hann á við mann-
ætuskrímsli sem fóru á stjá að
næturlagi en svo heppilega vill til að
Riddick sér í myrkri. Og munaði nú
um minna í þeim hildarleik.
Saga Riddicks hélt áfram fjórum
árum síðar í The Chronicles of Rid-
dick, frekar slappri mynd sem gerði
lítið fyrir leikarann. Diesel hefur
gengið illa að ná fótfestu utan Fast
and the Furious-bálksins og hefur
einnig viljað halla sér að Riddick og
hans fornu frægð á ný. Hann hefur
lengi barist fyrir því að koma þess-
ari þriðju mynd alla leið og lagði allt
undir til þess að hún gæti orðið að
veruleika.
Riddick verður ekki í hel komið
en hér er hann skilinn eftir nær
dauða en lífi á skrímslaplánetu og
hann er ekki fyrr kominn á kreik
fyrr en hausaveiðarar og víga-
menn eru komnir á hæla hans.
Einhverjir þeirra eru mjög áfram
um að kála honum en aðrir hugsa
sér gott til glóðarinnar og ætla að
fá verðlaunafé fyrir að handsama
hann, enda Riddick að sjálfsögðu
eftirlýstur maður víða.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,0, Rotten Tom-
atoes: 59%, Metacritic: 48%
Frumsýnd riddiCk
Geimútlagi í hefndarhug
Vin Diesel er loksins mættur til leiks á
ný í hlutverki hins haukfrána geimskúrks
Riddick.
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing:
Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af
natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint
inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af
kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít
(sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á
meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára
og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum
sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að
fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir
virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og
varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög
saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve
inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun,
nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá
sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta
klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt
læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218)
og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega
síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem
þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized,
Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling
by Over-the-Counter Heartburn Treatments.
2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over
Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium-
Aluminum Antacid Gel.
Ert þú með
brjóstsviða?
• Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1
• Virkar í allt að 4 tíma 2
Mixtúra Cool Mint 300 ml
Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt.
Galieve Peppermint
Tuggutöflur með piparmintu bragði