Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Qupperneq 59

Fréttatíminn - 20.09.2013, Qupperneq 59
Helgin 20.-22. september 2013 3 A ð sögn Jóns Snæ- dal, yfirlæknis Minnismóttöku á Landakoti, er misjafnt eftir aldri hver fyrstu einkenni Alzhei- merssjúkdómsins eru. Hjá eldra fólki eru fyrstu einkenni yfirleitt óeðlilegt minnisleysi, sérstak- lega þegar kemur að nýliðnum atburðum. „Þeir yngstu sem koma til okkar eru um fjörutíu og fimm ára en það er mjög sjaldgæft að svo ungt fólk greinist með Alzheimers. Í þeim tilvikum eru fyrstu einkenni sjúkdómsins önnur en hjá þeim eldri og geta birst þannig að fólk á erfitt með að rata og tjá sig ásamt því sem önnur einkenni gera vart við sig.“ Alzheimers er taugahrörn- unarsjúkdómur í heila sem veldur því að efnaferli sem leiða til útfellingar í heilanum fara af stað og afleiðing þess er að taugafrumur visna og týna smám saman tölunni. Jón segir sjúkdómsferlið mismunandi á milli einstaklinga og að líklega séu það nokkrir sjúkdómar sem í dag eru kallaðir Alzheimers og því sé mjög misjafnt hvernig einkennin birtast hjá fólki. „Alzheimerssjúkdómurinn er greindur á grundvelli upplýs- inga sem sjúklingurinn sjálfur og aðstandendur gefa. Síðan eru tekin próf sem meta fyrst og fremst minni og einnig ýmsa aðra þætti. Síðan hafa menn orðið ásáttir um að ýmsar rann- sóknir gefi sterka vísbendingu og þá er annars vegar verið að ræða um að mæla rúmmál á minnisstöðvunum í heilanum með segulómun og hins vegar með því að mæla sérstök eggja- hvítuefni í mænuvökva,“ segir Jón. Lífslíkur Alzheimerssjúk- linga hafa ekki verið rannsak- aðar á síðustu árum en rétt fyrir aldamót voru þær að meðaltali áratugur. Jón segir það þó afar breytilegt á milli einstaklinga og að lífslíkur geti verið allt frá nokkrum árum og í yfir tvo áratugi. Ekki er til nákvæm tölfræði um fjölda fólks með Alzhei- merssjúkdóminn hér á landi en talið er að á bilinu hundrað og fimmtíu til tvö hundruð manns greinist með sjúkdóminn árlega og segir Jón það þýða að um það bil tvö þúsund til tvö þúsund og fimmhundruð manns séu með sjúkdóminn á hverjum tíma. Tíðnin hefur haldist í hendur við hærri lífaldur fólks. „Tíðnin hjá þeim sem eru sjötugir er um það bil fjögur prósent og svo tvöfald- ast hún næstu áratugina þannig að hjá þeim sem eru áttatíu og fimm ára er tíðnin um þrjátíu prósent.“ Alzheimers algengari í sumum ættum Arfgengur þáttur veldur Alzhei- merssjúkdómnum en Jón segir hann ekki eins sterkan og áður var talið en að sjúkdómurinn sé þó algengari í sumum ættum en öðrum. „Í þeim ættum þar sem sjúkdómurinn er algengur eru samt flestir sem sleppa við að fá hann. Það gæti einnig verið hrein tilviljun að hann sé algeng- ari í sumum ættum en öðrum.“ Fólk sem greint er með Alzheimerssjúkdóminn þarf alla jafna á mikilli þjónustu að halda og segir Jón sjúkdóminn því nokkuð kostnaðarsaman fyrir samfélagið. „Eðli máls- ins samkvæmt fer þjónusta við þennan hóp fram í heimahúsum fyrst eftir greiningu en eftir því sem á líður aukast líkurnar á að fólk flytjist á hjúkrunarheimili sem er dýrasti kosturinn sem samfélagið er með fyrir fólk á efri árum.“ Merkar íslenskar rannsóknir Hér á landi hafa verið gerðar þrjár rannsóknir á undan- Vitsmunaleg og andleg starfsemi sem verður fyrir áhrifum við heilabilun svava@alzheimer.is Óeðlilegt minnisleysi hinna eldri en önnur einkenni hjá þeim yngstu. Þjónusta við þennan hóp fer fram í heima- húsum fyrst eftir greiningu en eftir því sem á líður aukast líkurnar á að fólk flytjist á hjúkrunar- heimili sem er dýrasti kosturinn sem samfé- lagið er með fyrir fólk á efri árum. Fyrstu einkenni mismunandi eftir aldri Alzheimers- sjúkdómurinn er taugahrörnunar- sjúkdómur í heila sem um það bil fjögur prósent Íslendinga um sjö- tugt fá. Líkurnar aukast svo með hækkandi aldri og er talið að um þrjátíu prósent áttatíu og fimm ára Íslendinga séu með sjúkdóminn eða einkenni sem líkjast honum. förnum árum sem vakið hafa athygli utan landsteinanna. Ein þeirra snertir erfðafræði sjúkdómsins en hér á landi fannst fyrsta genið sem virðist vera verndandi fyrir sjúkdóminn. „Því geni hefur aldrei verið lýst áður og hlutu niðurstöðurnar því töluverða eftirtekt. Í kjölfarið var þessi erfðaþáttur staðfestur í ná- grannalöndunum,“ segir Jón. Í annarri rannsókn fannst nýr áhættuþáttur sem var sá sterkasti sem fundist hefur í tuttugu ár og er líka búið að staðfesta þann áhættuþátt í nágrannalöndunum. Að sögn Jóns eru þessir þættir sjaldgæfir og því hefur reynst erfitt að finna þá. Fyrirtækið Mentis Cura hefur þróað tækni sem hægt er að nota til að greina Alz- heimerssjúkdóminn snemma. „Við bindum vonir við að sú tækni muni leiða til þess að fleiri geti komist í greiningu því hún er einfaldari og ódýr- ari en aðrar rannsóknir.“ Þá er verið að taka fyrstu skrefin í rannsóknum á tengslum við kæfisvefn sem virðist algengari hjá fólki með fyrstu einkenni Alzheimerssjúk- dómsins og er búið að kynna fyrstu niðurstöður erlendis. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Jón Snædal, yfirlæknir Minnismóttöku á Landakoti, segir að í þeim ættum þar sem sjúkdómurinn er algengur séu samt flestir sem sleppi við að fá hann. Ljósmynd/Hari. FruMStæðni (Primitivisering) Framheilastöðvar HEilA bilun MálStol Tungumálið, tjáning. Mál- skilningur. (Afasi) VErkStol Athafnir, hátterni. Samhæfing. (Apraksi) SkynStol Skynáhrif, úr- vinnsla áhrifa, túlkun, skilningur. Næmni. (Agnosi) GlEyMSkA Minnið, lærdómur. Upprifjun (Amnesi) MunuM Þá SEM GlEyMA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.