Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 61

Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 61
Helgin 20.-22. september 2013 5MUNUM ÞÁ SEM GLEYMA Málstofa um „Réttindi og lögræði í heilabilun“ Árlega er alþjóðlega Alzheimersdagsins hinn 21. september minnst um heim allan. Umræður og fyrirlesarar munu svara fyrirspurnum. Málstofustjóri verður Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður og fyrrverandi heilbrigðisráðherra Allir eru velkomnir Dagskrá: • Heilabilun og skert ármálafærni. Ásrún Eva Harðardóttir, lögfræðingur hjá sia- og skiptastofu sýslumanns Reykjavíkur. • Lífeyrir og tengdar bætur frá Tryggingastofnun. Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri á samskiptasviði tryggingastofnunar ríkisins. • Hvaða aðstoð getur þú fengið á þjónustumiðstöðum sveitarfélaganna. Árdís Antonsdóttir, félagsráðgja á þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness • Baráttan við kerð- sagan endalausa. Ragnheiður K. Karlsdóttir, aðstandandi og varaformaður FAAS FAAS mun í tilefni dagsins standa fyrir málsstofu á Grand Hóteli laugardaginn 21. september 2013 kl. 17-19 undir heitinu Réttindi og lögræði í heilabilun Félag áhugafólks og aðstandenda- Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma Hátúni 10b, 105 Reykjavík - Sími: 533 1088 - netpóstur: faas@alzheimer.is - netfang: www.alzheimer.is kom fyrir að fólk sem Ragn- heiður hafði sagt frá veikindum móður sinnar efaðist um hún væri að segja satt. „Í samræð- um smeygði hún sér frá því að ruglast og náði oft vel að halda línunni og fólk velti fyrir sér hvaða vitleysa þetta væri að hún væri með Alzheimers.“ Persónuleiki ástvinar hverfur „Alzheimers er hræðilegur sjúk- dómur. Það er bara eina orðið yfir þetta. Maður horfir á þann sem manni þykir vænt um hverfa frá manni. Persónuleikinn er það sem gerir okkur að því sem við erum en hann hverfur eftir því sem sjúkdómurinn ágerist. Á óvænt- um stundum verði fólk svo það sjálft aftur. Slíkt gerðist til dæmis daginn sem móðir hennar flutti af heimili sínu og á hjúkrunar- heimili. Ákvörðunin hafði verið þeim aðstandendum gríðarlega erfið en þau ákváðu að fara eftir ráðleggingum lækna sem töldu best að hún myndi leggjast inn á hjúkrunarheimili á meðan hún hefði enn getu til að mynda tengsl. „Það var svo skrítið að daginn sem hún fór á hjúkrunarheimilið mundi hún varla hvað hún hafði borðað kvöldið áður en gerði sér á einhvern hátt grein fyrir því sem var að gerast. Hún sagði við okkur á leiðinni út í bíl að hún vissi að hún væri að fara eitthvert og kæmi ekki aftur til baka. Að við værum að senda hana í burtu. Maður var með krumpað hjarta og með áhyggjur af því að hún væri að fara af heimilinu sínu of snemma.“ Eftir á telur Ragnheiður að móðir hennar hefði kannski átt að fá að vera lengur heima því eftir að hún fluttist á hjúkrunarheimilið hrak- aði henni hratt og náði ekki að mynda þau tengsl sem búist hafði verið við. „Það hvenær á að senda fólk á hjúkrunarheimili er gríðarlega erfið ákvörðun fyrir aðstandendur. Þegar um Alzheimerssjúklinga er að ræða er álagið á makann mikið. Svolítið eins og að vera með lítið barn. Á endanum þarf þó alltaf að hugsa fyrst og fremst um hags- muni og öryggi þess sem er með sjúkdóminn.“ Undir það síðasta var móðir Ragnheiðar orðin mjög veik og augun voru tóm og litlu sambandi hægt að ná við hana. „Á þessum tíma gat hún ekkert tjáð sig. Þetta var erfitt að horfa upp á en hún var mjög mikið veik síðustu tvö til þrjú árin og persónuleikinn hennar kom æ sjaldnar í ljós.“ Eftir andlátið segir Ragnheiður Elín að nokkuð stórmerkilegt og óvænt hafi gerst. „Þegar ég sá hana liggja látna í rúminu og búið var að leggja hana til þá var eins og karakterinn kæmi aftur í and- litsdrættina. Eins og mamma væri komin aftur. Ég veit ekki hvort þetta er eitthvað sem aðrir hafa upplifað líka,“ segir Ragnheiður. Var óþolinmóður unglingur Eins og áður sagði var Ragn- heiður aðeins rúmlega tvítug þeg- ar móðir hennar veiktist og segist hún því miður stundum hafa verið óþolinmóð við móður sína. „Ég var bara dæmigerður unglingur sem, eins og svo margir á þeim aldri, finnst að heimurinn snúist um sig. Ef það er einhver eftirsjá tengd þessum tíma þá er það sú að hafa ekki verið þolinmóðari og nær- gætnari við mömmu.“ Á þessum tíma hafi hún eflaust verið að gera sér grein fyrir því að hún væri með sjúkdóminn og verið farin að finna fyrir óöryggi og minnkandi getu. Fyrri stig sjúkdómsins séu erfiðari fyrir sjúklinginn sjálfan en með tímanum hverfi hann svo inn í sinn eigin heim og þá verði ástandið mun erfiðara fyrir aðstandendur sem horfi á ástvin sinn hverfa og geti ekkert að gert. „Ef það er eitthvað sem ég á að ráðleggja aðstandendum Alzhei- merssjúklinga þá er það að sýna þolinmæði og aftur þolinmæði. Það er öllum fyrir bestu að leika bara leikritið og svara sömu spurningunum aftur og aftur og láta viðkomandi líða vel. Þessu ástandi verður ekki breytt með sífelldum leiðréttingum. Þá verða líka allir argir og viðkomandi líður enn verr.“ Aðstandendur gæta hagsmuna ástvina sinna Móðir Ragnheiðar fór á hjúkrunar- heimili í Grindavík og fór einhver fjölskyldumeðlimur í heimsókn til hennar á hverjum degi og segir Ragnheiður það fyrst og fremst hlutverk aðstandenda að vera hagsmunagæsluaðilar og hjálpa fólki að vera áfram persónan sem það var. „Mamma vildi alltaf vera fín til fara. Hárgreiðslukonan hennar var alveg yndisleg og fór alltaf reglulega til hennar og setti í hana permanent og við pössuðum upp á að hún fengi reglulega hand- snyrtingu og væri klædd í föt sem féllu að hennar smekk.“ Ragn- heiður segir móður sína hafa notið umönnunar góðs fólks á hjúkrun- arheimilinu og að allir hafi passað upp á það til dauðadags að allt væri í takt við það sem móðir hennar hefði viljað. Ragnheiður Elín borðar ekki agúrkur og hefur tekið loforð af sínum nánustu þess efnis að fái hún einhvern tíma Alzheimers verði hún ekki látin borða agúrkur. „Ég sit nú á alþingi fyrir Suður- kjördæmi sem er mikið agúrku- ræktarsvæði en bæti það upp með því að borða því mun meira af tómötum,“ segir hún og hlær. „Í fjölskyldunni og vinahópnum er mikið grín gert að því hversu illa mér er við agúrkur. Ef sá dagur rennur upp að ég borði agúrkur verð ég sennilega komin með Alzheimers en treysti á að fólkið mitt komi í veg fyrir að eitthvað sem er svo mikið úr takti við minn smekk verði að veruleika,“ segir Ragnheiður og brosir. Óttast sjálf að fá Alzheimers- sjúkdóminn Margir í móðurfjölskyldu Ragn- heiðar Elínar hafa greinst með Alzheimerssjúkdóminn og veltir hún sjálf því stundum fyrir sér hvort það sama bíði hennar. „Þetta er mjög ríkjandi í minni fjölskyldu. Systir mömmu er núna veik. Amma fékk sjúkdóminn sem og bróðir hennar. Pabbi bendir mér þó iðulega á að þau standi nú tvö að mér en hans fólk verður manna elst og er hresst fram á síðasta dag.“ Íslenska fyrirtækið Mentis Cura býr yfir tækni sem greinir Alzheimers og önnur minnisglöp á fyrri stigum og ætlar Ragnheið- ur Elín að nýta sér þá þjónustu á næstu árum. „Ég vil fá að vita hvort ég eigi eftir að fá Alzheimers eða ekki. Ég hugsa að mamma hefði gert sumt öðruvísi ef hún hefði vitað að þegar þau pabbi færu á eftirlaun og ætluðu að hafa það gott saman yrði hún mjög veik. Ég tel að maður skipuleggi sig öðruvísi og lifi lífinu á betri hátt ef maður veit að maður verður ekki hundrað ára.“ Húmorinn er lífsnauðsynlegur Þó aðstæður Alzheimerssjúklinga og aðstandenda þeirra séu oft mjög erfiðar segir Ragnheiður nauðsynlegt að gleyma því ekki að hafa húmor fyrir hlutunum. Það sé beinlínis nauðsynlegt til að lifa af. „Þetta ferli er svolítið eins og dra- maleikrit. Stundum er það ofboðs- lega sorglegt en stundum getur það líka verið fyndið.“ Móðir Ragnheiðar kom í heim- sókn til hennar til Bandaríkjanna þegar hún var að ljúka námi þar og á sama tíma kom til þeirra pípari vegna bilunar í íbúðinni á næstu hæð fyrir ofan. „Mér leist ekkert allt of vel á píparann, stóð í einhverju stappi við hann og vildi ekki skilja hann eftir einan í íbúðinni minni. Á meðan á þessu stóð sat mamma á milli systra minna í sófanum og sagði ákveðin: „Í hvert sinn sem ég kem hingað er þessi karl hérna og ég þoli hann ekki.“ Hún hafði þó aldrei komið áður í þessa íbúð til mín,“ segir Ragnheiður. Eftir að hafa búið í Reykjavík í nokkur er Ragnheiður nú flutt aftur til Keflavíkur í heimabæinn sinn og er heimili fjölskyldunnar í næstu götu við kirkjugarðinn. „Nú erum við nálægt mömmu og ég get kíkt út um gluggann og séð legstaðinn hennar. Það er gott að finna fyrir nærveru hennar á þann hátt.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Ragnheiður Elín ársgömul í fangi móður sinnar, Hólm- fríðar Guðmundsdóttir. Vinstra megin situr móður- amma Ragnheiðar, Helga Kristjánsdóttir. Hægra megin er svo móðursystir Ragn- heiðar, Gerður G. Bjarklind. Ljósmynd/úr einkasafni. Mæðgurnar saman á þrítugsafmælisdegi Ragnheiðar Elínar. Ljós- mynd/úr einkasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.