Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Side 71

Fréttatíminn - 20.09.2013, Side 71
 7ÍSLENSKT GRÆNMETIHAUST 2013 Hnúðkálið snyrt, afhýtt ef það er ekki nýupptekið, og síðan skorið í um 1 cm þykkar sneiðar. Vatn hitað í potti, saltað og síðan eru hnúðkálssneiðarnar forsoðnar í 3-4 mínútur. Teknar upp og látið renna af þeim á eldhúspappír. Olían hituð á stórri pönnu. Hvítlaukurinn saxaður smátt og látinn krauma í 1/2 mínútu og síðan eru hnúðkálssneiðarnar settar á pönnuna, kryddaðar með kryddjurtum, pipar og salti og látnar krauma við meðalhita þar til þær hafa tekið góðan lit og eru meyrar. Bornar fram með salati eða fersku grænmeti og e.t.v. sósu úr sýrðum rjóma eða jógúrt, söxuðum vorlauk og kryddjurtum. Nanna Rögnvaldardóttir Steikt hnúðkál 2 íslenskt hnúðkálshöfuð (einnig má nota gulrófur) salt 3 msk ólífuolía 1-2 hvítlauksgeirar nýmalaður pipar 1 tsk herbes de provence eða oregano rauðkál Íslenskt snemmsprottið hvítkál kemur á markaðinn um miðjan júlí en það hefur takmarkað geymsluþol og þarf því að seljast jafnóðum. Seinsprottið kál er uppskorið í september og október og geymist fram í lok febrúar. Íslenskt hvítkál er því fáanlegt frá því um miðjan júlí fram í lok febrúar. Hvítkál hefur verið þekkt við suðaustanvert Miðjarðarhaf í um 5 þúsund ár. Það var ræktað á dögum Forn-Egypta mörg þúsund árum fyrir Kristburð, bæði til matar og ekki síður vegna lækningamáttar. Með Rómverjum barst það til Mið-Evrópu og síðan með víkingum til Norður-Evrópu þar sem það hlaut heitið kál eftir latneska heitinu Caulis. Ræktun hvítkáls verður ekki almenn hér á landi fyrr en um miðja síðustu öld. Hvítkál er náskylt öðrum káltegundum svo sem kauðkáli, blöðrukáli, rósakáli, blómkáli og spregilkáli. Eins og flestar káltegundir er hvítkál í raun stórt brum þar sem blöðin sitja á stuttum stöngli og leggjast hvert yfir annað og mynda höfuð. Þetta er tvíær tegund og seinna árið teygist úr stönglinum og plantan blómstrar gulum blómum í klasa. Oft má sjá að stöngulinn hefur lengst á káli sem hefur verið lengi í geymslu. Þrátt fyrir nafnið á hvítkál ekki að vera hvítt á litinn heldur grænt eða ljósgult. Blöðin verða ljósari eftir því sem þau sitja innar í höfðinu. Lögun höfuðsins er allbreytileg. Litur höfuðsins á að vera jafn og ekki má bera á áverkum eða gulnun á ytra borði. Höfuðin eiga að vera þéttvaxin og blöðin stíf og safarík, ekki má bera á linum blöðum og blaðstilkum. NæriNgargildi Hvítkál er meðal mikilvægustu grænmetistegunda sem við neytum. Það er trefjaríkt og mikilvæg og ódýr uppspretta A og C vítamína auk þess er í kálinu fólasín, kalk og kalíum. Eins og hjá öðrum káltegundum eru það ystu blöðin sem eru næringarríkust og því grænni sem þau eru þeim mun meira er í þeim af vítamínum og járni. Hvítkál er ómissandi hluti af hollu og fjölbreyttu fæði. Í 100 gr. af hvítkáli eru aðeins 30 hitaeiningar ( kcal). geymsla Hvítkál geymist vel í kæli og gallalaus höfuð af snemmsprottnu káli ættu að geta geymst í nokkrar vikur í kæli við 0 – 5°. Seinsprottið kál geymist enn lengur eða allt í 5 mánuði ef hitinn er rétt yfir frostmarki og rakinn mikill. Kál er viðkvæmt fyrir etýlen en það veldur því að blöðin gulna og detta af. Tómatar, epli og perur gefa t.d. frá sér etýlen. Kínakál var nánast óþekkt hér á landi þar til fyrir um 20 árum en er nú ein algengasta káltegundin á borðum landsmanna. Kínakál er mikilvæg matjurt í Austur-Asíu, meðal annars í Japan. Þar hafa verið gerðar miklar kynbætur á kínakáli sem meðal annars hafa gefið af sér yrki sem henta til ræktunar á norðlægum slóðum. Ræktun kínakáls hefur aukist jafnt og þétt hér á landi enda kunna landsmenn vel að meta það. Kínakál er ættað frá Kína eins og nafnið gefur til kynna. Kínakál hefur verið ræktað í um 6.000 ár, en frá þeim tíma hafa fundist fræ af kínakáli. Heimildir herma að kínakál hafi verið algeng fæða í suðurhluta Kína á 5. öld. Kínakál er enn þann dag í dag talið ómissandi í flesta austurlenska rétti. Elstu rituðar heimildir um kínakál í Evrópu eru frá 1751, en talið er að það hafi borist mun fyrr með trúboðum sem komu frá Austurlöndum. Kínakál er mjög mikið notað í austurlenska rétti. Það náði þó ekki almennri hylli í Evrópu fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina. Kínakál er mildara á bragðið og í því er minna af trefjum en í öðrum káltegundum. Það hentar vel í ýmsa hráa rétti eins og salat. Til eru margar gerðir af kínakáli sem eru mismunandi að lit og lögun. Þyngd hausanna er einnig breytileg en oftast 0,5 – 1,5 kg. NæriNgargildi Kínakál er næringarríkt og ódýr uppspretta fyrir A og C vítamín ásamt steinefnum. Eins og gildir um káltegundir almennt þá eru það ystu blöðin sem eru hvað næringarríkust. Í grænu blöðunum er bæði meira af steinefnum og vítamínum en í þeim ljósari. Þar sem kínakál er ekki eins trefjaríkt og annað kál er það betur hæft til að nota hrátt. Við suðu tapast ætíð nokkuð af vítamínum og steinefnum. Kínakál er hitaeiningasnautt, aðeins 18 hitaeiningar (kcal) í 100 g. geymsla Kínakál geymist fremur vel við 0-2°C, en er þó næmt fyrir áhrifum etýlens. Mikilvægt er að geyma það ekki nálægt vöru sem myndar mikið etylen eins og eplum, tómötum og perum. Gott er að geyma kínakálið í plasti til að halda í því raka. kíNakál Á hátíðaborðið Hér á landi er rauðkál einungis ræktað til að selja það ferskt, en erlendis fer stór hluti uppskerunnar í niðursuðu. Rauðkál er tvíær tegund og seinna árið teygist úr stönglinum og plantan blómstrar gulum blómum í klasa. Rauðkál er náskylt hvítkáli og var þekkt í Noregi á víkingatímanum. Það er af krossblómaættinni og er því náskylt öðru kálmeti. Rauðkál er afbrigði af höfuðkáli og getur verið jafn breytilegt í lögun og hvítkál. Í öllum tegundum af höfuðkáli er rautt litarefni í einhverjum mæli en óvenju mikið af því gefur kálinu dökkrauðan eða fjólubláan lit. Neysla á rauðkáli er mest hér á landi um jól og áramót. NæriNgargildi Rauðkál er hitaeiningasnautt, aðeins 27 heitaeiningar (kcal) í 100 gr. Það er mjög góð uppspretta C-vítamíns. Auk þess er í því járn og kalk. Ystu blöin eru vítamínríkust. Rauðkál er mjög trefjaríkt. Það er gott hrátt og fínt skorið í salat. Einnig má smjörsteikja það á pönnu. Með hátíðamat um jól og áramót er algengt að nota það soðið með lauk, eplum, ediki, sykri, salti og negul. Hæfilegt er að sjóða það í 10 til 15 mínútur ef það er fínt skorið. geymsla Rauðkál geymist vel í kæli við 0 – 5 ° C. Þar sem ferskt rauðkál er á markaði hluta ársins er gott að frysta það. Það er skorið í mjóa strimla og snöggsoðið í 3 mínútur. Frystið það í plastpokum þegar það hefur kólnað. í alla austurlenska rétti Trefjarík næringarbomba hvítkál

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.