Fréttatíminn - 11.11.2011, Page 2
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Láglendisvegir til skoðunar vestra
Flugslysaæfing á
Keflavíkurflugvelli
Umfangsmikil flugslysaæfing verður á
Keflavíkurflugvelli á morgun, laugardag.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum,
almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og
Isavia efna til hennar, að því er Víkurfréttir
greina frá. Æfingin er almannavarnaæfing
þar sem allir viðbragðsþættir fyrstu
klukkustundir eftir slys eru prófaðir. Líkt
er eftir flugslysi við lendingu á Keflavíkur-
flugvelli og æfð samvinna viðbragðsaðila.
Þátttakendur eru frá Suðurnesjum og
höfuðborgarsvæðinu, flugvallarstarfs-
menn, slökkvilið, lögregla, landhelgis-
gæsla, björgunarsveitir, sjúkrahús, Rauði
krossinn, flugrekendur og flugafgreiðslu-
aðilar, prestar og rannsóknaraðilar
ásamt samhæfingarstöð almannavarna
í Reykjavík. Sjálfboðaliðar munu leika
flugfarþega og aðstandendur, alls tæplega
300 manns. - jh
128 milljarðar til
fræðslumála
Heildarútgjöld til fræðslumála á síðasta
ári námu 128,2 milljörðum króna eða 8,3
prósentum af landsframleiðslu. Þar af var
hlutur hins opinbera 116,7 milljarðar króna
en hlutur einkaaðila 11,5 milljarðar eða
9,0 prósent af útgjöldunum. Af heildar-
útgjöldum hins opinbera árið 2010 runnu
16,2 prósent til fræðslumála. Sem hlutfall
af landsframleiðslu hafa heildarútgjöld
til fræðslumála hækkað úr ríflega 7,4
prósent af landsframleiðslu 1998 í rúmlega
8,3 prósent á árinu 2010, að því er fram
kemur í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Af
heildarútgjöldum til fræðslumála árið 2010
runnu um 11,5 prósent til fræðsluhluta
leikskólans, 42,7 prósent til grunnskólans,
17,3 prósent til framhaldsskóla, 20,9
prósent til háskólastigsins og 7,6 prósent
til stjórnsýslu menntamála og þátta sem
ekki tilheyra ákveðnu skólastigi. -jh
Matthías Á. Mathiesen
látinn
Matthías Á. Mathiesen, fyrrverandi
ráðherra og alþingismaður, lést í fyrradag
á Hrafnistu í Hafnarfirði, áttræður að aldri.
Hann var kjörinn á Alþingi árið 1959 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og var þingmaður
Reyknesinga samfleytt til 1991. Hann var
fjármálaráðherra 1974-78, viðskiptaráð-
herra 1983-85, utanríkisráðherra 1986-87
og samgönguráðherra 1987-88. -jh
Fasteignir FjárFestar utan evrópska eFnahagssvæðisins
Blokkarkaup í gíslingu ráðuneytis
Innanríkisráðuneytið hefur haldið kaupum
erlends fjárfestahóps á lúxusblokkinni við
Tryggvagötu 18 í gíslingu undanfarnar vikur
að sögn seljenda. Hópurinn, sem samanstend-
ur af mönnum hverra þjóðerni liggur utan
evrópska efnahagssvæðisins, lagði inn umsókn
um kaupin til ráðuneytisins fyrir tveimur
mánuðum en enn bólar ekki á svari. Ástráður
Haraldsson, skiptastjóri þrotabús Eignamiðj-
unnar ehf., sem á blokkina, segir í samtali við
Fréttatímann að málið sé á borði ráðuneytisins
og hann skilji ekki hvað tefji að það sé klárað.
Eignamiðjan var áður í eigu Karls Steingríms-
sonar, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum.
Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi
innanríkisráðuneytisins segir, í samtali við
Fréttatímann, að þessi mál taki yfirleitt nokkar
vikur. „Tíminn ræðst meðal annars af því hvort
nægar upplýsingar berist með umsókn og oft
þarf að kalla eftir frekari gögnum og þá eru
nokkrar vikur fljótar að líða,“ segir Jóhannes.
Sex mál eru nú til meðferðar hjá ráðuneytinu
að meðtaldri Grímsstaðaumsókn Kínverjans
Huang Nubo sem varða fjárfestingar erlendra
aðila. Þar fyrir utan hafa borist fyrirspurnir
í síma og með tölvupósti en engar formlegar
umsóknir komið í kjölfarið. -óhþ
Tryggvagata 18 bíður nýrra eigenda.
„Þegar horft er til
þess að það varð
eldgos, bankahrun,
gengishrap og fleiri
ferðir hingað til lands,
þá er barnalegt að
halda því fram að
herferðin hafi ein og
sér skilað þessari
aukningu“
herFerðir inspired by iceland
Óvíst um ágóða hundruða
milljóna króna herferðar
Aðjúnkt við Háskóla Íslands gagnrýnir að ekki hafi verið mældur nákvæmlega árangur af Inspired
by Iceland-herferðinni áður en farið var af stað með nýtt átak sem kostar skattgreiðendur níu
hundruð milljónir.
Þ að hefur ekkert komið fram sem segir til um hver árangur-inn af Inspired by Iceland var.
Við vitum hreinlega ekki hvort þetta
var peningasóun eða ekki. Það er
gallinn,“ segir Friðrik Eysteinsson,
aðjúnkt við viðskiptafræðideild Há-
skóla Íslands, í samtali við Frétta-
tímann. Friðrik hélt fyrirlestur í Há-
skólanum á þriðjudag þar sem hann
gagnrýndi litlar sem engar mælingar
á árangri herferðarinnar sem kostaði
350 milljónir.
„Miðað við þau gögn sem ég hef
séð og þær þrjár kannanir sem birtar
hafa verið þá sýna þær ekki neitt. Það
er alveg ljóst að það gerist eitthvað
og ferðamönnum fjölgar en það er
ekki hægt að setja þetta eingöngu í
samhengi við herferðina. Það hefði
verið hægt ef ekkert annað hefði
gerst en það varð eldgos og það varð
bankahrun. Þegar landið hefur verið
í heimsfréttum mánuðum saman þá
hefur það áhrif,“ segir Friðrik.
Hann segir menn hafa montað
sig af 34 milljarða tekjuaukningu og
þakka það herferðinni en sú nálgun
haldi ekki vatni. „Eldgosið var ekki
hættulegt og fældi ekki frá ferða-
menn líkt og hryðjuverk eða mat-
areitrun hefði gert. Þegar horft er til
þess að það varð eldgos, bankahrun,
gengishrap og fleiri ferðir hingað til
lands, þá er barnalegt að halda því
fram að herferðin hafi ein og sér skil-
að þessari aukningu. Ég var nú bara
að benda á það,“ segir Friðrik.
Á fundinum á þriðjudag var hann
harkalega gagnrýndur af aðilum
innan ferðaþjónustunnar. „Það er
skiljanlegt. Það eru miklir hags-
munir í húfi og þeir eru allir í þá átt
að fegra hlutina til að ná sem mestum
pening út úr hinu opinbera í markaðs-
setningu og kostnað henni samfara.
Ég veit hins vegar að margir innan
ferðaþjónustunnar eru sammála mér
og finnst að það hefði ekki átt að fara
í þetta þriggja ára verkefni Ísland allt
árið án þess að hafa betri hugmynd
um árangur Inspired by Iceland. Það
mun kosta 900 milljónir af peningum
skattborgara og ég held því óhikað
fram að sú ákvörðunartaka sé ekki
byggð á traustum grunni,“ segir Frið-
rik.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Friðrik Eysteinsson gagnrýnir hversu litlar upplýsingar liggja fyrir um raunveruleg áhrif Inspired by Iceland. Ljósmynd/Hari
Auglýsingaherferðin Inspired by Iceland er margverðlaunuð.
Rætt var um vegagerð á sunnanverðum
Vestfjörðum í sérstakri umræðu á Al-
þingi. Minnt var á þau sjónarmið heima-
manna að vegur um Gufudalssveit skuli
lagður um láglendi. Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra sagði Vegagerðina
nú kanna mögulegar leiðir í því sam-
bandi, að því er innanríkisráðuneytið
greinir frá. Ráðherrann sagði nokkra
kosti í stöðunni, meðal annars jarðgöng
gegnum Hjallaháls, líka þveranir fjarða.
Ýmir kostir kæmu til greina meðal annars
þverun Þorskafjarðar utarlega og annar
kostur væri leiðin frá Reykhólasveit með langri þverun við mynni Þorskafjarðar,
Gufufjarðar og Djúpafjarðar. Ögmundur taldi leið um Teigsskóg út úr myndinni en
aðrar láglendistillögur væru til skoðunar. -jh
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi
Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is
2 fréttir Helgin 11.-13. nóvember 2011