Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Page 6

Fréttatíminn - 15.03.2013, Page 6
ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2013 Silfurbergi, Hörpu Fimmtudagur 21. mars kl. 14-16 • Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra Ávarp • Bryndís Hlöðversdóttir stjórnarformaður Ávarp • Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Tækifærin í orku framtíðar • Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Áhersla á lækkun skulda - rekstrarniðurstöður 2012 Fundarstjóri: Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Orka til framtíðar Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn í Hörpu þann 21. mars kl. 14. Þar kynnum við fjárhag og framtíðaráætlanir fyrirtækisins og leggjum mat á hvernig til hefur tekist. Allir velkomnir Skráning á www.landsvirkjun.is Mikil upp- bygging í ferðaiðnaði Mikil fjölgun ferðamanna til landsins kallar á aukið gistirými. Hótel spretta upp um alla borg. • Hótel Borg verður stækkað um allt að 43 herbergi með viðbyggingu á baklóð. • Þann fyrsta júní opna Kea- hótel nýtt hótel að Suður- landsbraut 12. Heitir það Reykjavík Lights. Á hótelinu verða 105 herbergi. • Kvosin Downtown Hotel opnar á næstunni í Kirkju- hvoli við Alþingishúsið með hótelherbergjum af stærri gerðinni auk glæsilegra svíta. • Stefnt er að byggingu stórs hótels við hlið Hörpunnar, þó útlit sé fyrir að ekkert verði af því að það tilheyri Marriott-keðjunni eins og til stóð. • Við Hlemmtorg er unnið að því að opna hostel. • Í Landsímahúsinu við Austurvöll er ráðgert að opnað verði hótel með 150- 160 herbergjum. • Unnið er að því að opna hótel í gömlu Heilsuvernd- arstöðinni. O kkar hugmynd hefur alltaf verið að halda uppi sögu Slippsins, alveg frá því við keyptum húsið árið 2003. Ef af þessari stækkun verður getum við fengið að klára þessa hugmyndafræði og það er það sem við erum að vinna að með skipulagsyfir- völdum núna,“ segir Jens Sandholt hjá Slipp- urinn fasteignafélag. Fyrirtækið á húsnæði Icelandair hótel Reykjavík Marina við Mýrar- götu. Greint var frá því í Viðskiptablaðinu fyr- ir skemmstu að til standi að byggja við og stækka hótelið, sem opnað var í fyrra og hef- ur notið mikilla vinsælda. 108 herbergi eru í hótelinu nú en verði af stækkuninni bætast við 60-90 herbergi. Hótelið verður stækkað til vesturs og því vakna upp spurningar hvað verði um tvö eldri hús sem standa við hlið lóðarinnar, hús núm- er 14 og 16 við Mýrargötu. Jens staðfestir að fyrirtæki hans hafi keypt húsin, húsið númer 14 fyrir tæpu ári og hús númer 16 á dögunum. „Þetta er á viðkvæmu stigi en ef við förum út í að stækka er hugmyndin að tengja húsin við hótelið. Þarna verði litlar hótelíbúðir, svít- ur. Undir eldra húsinu er gamall steinkjallari sem gaman væri að gera að huggulegri setu- stofu,“ segir Jens sem ítrekar að allt sé þetta á hugmyndastigi enn sem komið er. Gangi áætlanirnar eftir verður skipulag svæðisins kynnt á næstunni og framkvæmdir gætu haf- ist í haust. Jens reiknar með að þær gætu tekið um 12-14 mánuði. Reykjavík Marina hefur slegið í gegn síðan það var opnað í apríl í fyrra. Veitingastaður hótelsins, Slippbarinn, hefur notið fádæma vinsælda. Að sögn Hildar Ómarsdóttur, for- stöðumanns Sölu- og markaðssviðs Icelandair Hotels, hefur hótelið verið nánast fullnýtt all- an þennan tíma. „Gestirnir hafa verið mjög ánægðir. Þetta sýnir okkur hvað það er mikil- vægt að standa vel að þessari uppbyggingu, að skapa eitthvað sem bæði útlendingum og Íslendingum hugnast. Ferðamennirnir vilja vera þar sem Íslendingarnir eru,“ segir hún. Jens Sandholt og Einar S. Ágústsson, meðeigandi hans, hafa sömuleiðis tröllatrú á svæðinu í kringum Slippinn. „Þetta svæði er á hraðri uppleið. Þarna er mikið mannlíf og það eru að spretta upp áhugaverðir hlutir og fyrirtæki. Við viljum halda í gömlu Slipps- stemninguna, halda í söguna og erum tilbúnir að gera allt til þess. Við höfum safnað gömlum myndum og fréttum um Slippinn og erum með ágætis safn um hann. Því einhvern tímann fer hann og þá er enginn betri en Icelandair Hot- els til að halda minningunni á lofti.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  SkipulagSmál uppbygging við ReykjavíkuRhöfn helduR áfRam Tvö eldri hús verði hluti af Reykjavík Marina Mikil uppbygg- ing hefur verið við Reykjavíkur- höfn síðustu misseri. Veitingastaðir spretta upp og mannlífið er blómlegt. Hót- elið Reykjavík Marina hefur slegið í gegn og nú eru áform uppi um að það stækki til vesturs. Uppbyggingin á hafnar- svæðinu heldur áfram. Áætlanir eru uppi um að Reykjavík Marina þenjist út til vesturs. Tvö eldri hús verða hluti af hótelinu. Ljós- mynd/Hari 6 fréttir Helgin 15.-17. mars 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.