Fréttatíminn - 15.03.2013, Qupperneq 28
Gegn krabbameini í körlum
Nicotinell er
samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
®
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg . nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur
úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja,
að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má
nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki og ekki má reykja samhliða notkun Nicotinell Fruit. Ráðlagður
skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með
mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja
með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20
sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt
í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds,
tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í
upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1 2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf.
Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg
lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá
skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á
sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til
þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur
ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur.
Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða
meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð.
Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef
þú hefur: ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins,fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki,
ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár eða
gervitennur. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í
fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur
valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
N
IC
13
01
02
Í mars renna 100 kr. af hverjum
seldum pakka af Nicotinell beint
til átaksins Mottumars.
Mundu að það eru bláu pakkarnir
frá Nicotinell sem styrkja gott
málefni.
100 KRÓNUR
og útliti kvenna og karla. Slíkt megi greina
í fjölmiðlum, á bloggsíðum, í auglýsingum.
Hún nefnir sértaklega bloggfærslu eftir
þekkta blaðakonu um söngkonuna Adele
þar sem höfundur sagði það í lagi að benda
á holdarfar söngkonunnar, því hún væri jú
feit. „Fitufordómar eru einu staðalmynda-
fordómarnir sem eru samþykktir. Það þykir
eðlilegt að rakka niður feita. Ef einhver er
með kynþáttafordóma þá, sem betur fer,
rísa allir gegn því. En það er eins og það sé
samt í lagi að hafa fordóma gagnvart þeim
sem eru feitir eða örlítið þéttari. Það kemur
til dæmis engum við að söngkonan Adele
sé feit. Það að einblína á holdarfar hennar,
sem er reyndar langt frá því að vera eitt-
hvað óheilbrigt eða hættulegt, er gott dæmi
um hve rótgrónir þessi fordómar eru. Og
þegar það er verið að benda á að hún sé feit
þá er það alltaf á þann hátt að það sé henni
til smækkunar. Það er nefnilega ekki verið
að segja; „hún er feit og líka ótrúlega margt
annað frábært“. Þvert á móti þá þykir það
slæmt. En af hverju? Hún er frábær söng-
kona, móðir, heilbrigð, hamingjusöm og á
toppi ferils síns. Fyrir það er hún aðdáunar-
verð. Það kemur engum við hvernig líkami
hennar er.“
Júlía fékk tíma hjá heimilislækni á 25 ára
afmælisdaginn sinn þegar hún var loks búin
að taka ákvörðun um að leita sér hjálpar.
Hún sat því á biðstofu, full kvíða en þó með-
vituð um það að hún væri að taka risavaxið
skref í átt að heilbrigði. Það var alls ekki
átakalaust.
„Ég sat þarna hjá lækni á afmælinu mínu
og fór að setja í samhengi við fyrri afmælis-
daga. Ég var vön að baða mig í athygli vina
og ættingja, borða góðan mat og skemmta
mér ærlega. Núna sat ég hinsvegar og beið
þess að ræða uppköst og svelti við lækninn
minn. Mér fannst þetta svo brenglað og velti
því fyrir mér hvað mér hefði fundist um ná-
kvæmlega þessa senu nokkrum árum áður.“
Eftir að hafa ráðfært sig við lækni segir
Júlía að henni hafi létt talsvert. Á leiðinni
heim hitti hún fyrir manneskju sem hún
þekkti. Sú manneskja hrósaði henni fyrir
útlitið og bað hana um ráð um hvernig losna
mætti við „aukakílóin“.
„Ég var í andlegu sjokki eftir læknisheim-
sóknina á leið minni heim þegar ég mæti
manneskju sem ég þekki. Ég vissi það um
leið hvað hún væri að fara að segja. Hún var
sigri hrósandi og voða glöð fyrir mína hönd.
Sagði mig alveg óþekkjanlega og ég þekkti
ræðuna sem á eftir kom. Hún spurði mig
hvernig ég hefði farið að þessu en ég hafði
verið spurð svo oft að því áður. Samt er ég er
augljóslega síðasta manneskjan til þess að
gefa megrunarráð. Fólk er velviljað, og hún
hélt bara að þetta væri uppbyggilegt hrós.
En ég hugsaði oft um hvað myndi gerast ef
ég svaraði bara hreinskilið og segði að mér
liði ógeðslega illa og hefði farið hryllilega
og óheilbrigða leið sem ég óskaði engum að
gera við að ná þessu markmiði sem virðist
vera það göfugasta sem þekkist, að grenn-
ast.“
Þarf að uppræta líkamsfordóma
Júlía segir það mikilvægt að knýja fram
hugarfarsbreytingu í samfélaginu til þess
að uppræta líkamsfordóma og koma þannig
í veg fyrir sjúkdóma af þessu tagi. Það
sé valdið sem breyti samfélagsálitinu og
það þykir ekki bara fallegt að vera mjór af
ástæðulausu. Það sé vegna þess að einhver
hafi ákveðið að svo væri.
„Ég veit ekki hvort þú manst eftir mynd
sem að gekk milli manna í netheimum af
stjörnum frá 6. áratugnum sem voru með
þéttar línur og allir dáðu. Á sömu mynd voru
konur á sama stalli, nokkrum áratugum
síðar. Munurinn er sláandi. Þær eru miklu
mjórri nú en áður og þarna sést það vel
hvernig fegurðarmat er ákveðið, og það er
hættulegt. Ég er samt alls ekki að segja að
það sé óheilbrigt að vera mjór, það er óheil-
brigt að vera vannærður.“
Júlía segir að heilbrigði felist í því að sætta
sig við það sem maður sé. „Það er fallegt að
sættast við líkama sinn, það er fegurð og
það að vilja uppræta fitufordóma snýst um
að uppræta þá hugmynd um að allir eigi að
passa inn í eitthvað eitt mót. Ef að maður er
grannur og heilbrigður þá er það bara fínt
svoleiðis líka ef þú ert feitur og heilbrigður.
Það er svo vont að samfélagið skuli ýta undir
að fólk skuli endalaust vilja breyta sjálfu sér.
Ég vildi að ég hefði ekki fundið mig knúna
til að breyta mér. Þess vegna vil ég að samfé-
lagið breytist.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Lystar-
stol herjar
aðallega á
stúlkur eða í
90% tilfella.
„Það er svo vont að samfélagið skuli ýta undir að fólk skuli endalaust vilja breyta sjálfu sér. Ég vildi að ég hefði ekki fundið mig
knúna til að breyta mér. Þess vegna vil ég að samfélagið breytist.“
28 úttekt Helgin 15.-17. mars 2013