Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 41

Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 41
12.30 Setning og hádegisverður 13.00 Ávarp: Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 13.20 Ræða formanns SVÞ: Margrét Kristmannsdóttir 13.45 Digital Society and Digital Business: Are you ready? Dr. Sandra Sieber prófessor við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona 14.45 Kaffihlé 15.05 Afhending gagna fyrir aðalfund 15.15 Hefðbundin aðalfundarstörf skv. 13. gr. og 20. gr. samþykkta SVÞ 15.45 Dagskrárlok Fundarstjóri: Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta hf. Skráning á svth@svth.is eða í síma 511 3000. VIÐSKIPTI Í BREYTTU UMHVERFI Aðalfundur SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, verður haldinn fimmtudaginn 21. mars kl. 12.30 í Gullteigi, Grand Hóteli Reykjavík. Margrét Kristmannsdóttir Steingrímur J. Sigfússon Dr. Sandra Sieber Steinn Logi Björnsson Um rannsókn GUðrúnar sesseljU Meginmarkmiðið var að athuga hvort um ólíka hópa gerenda væru að ræða eftir því hver tengsl þeirra við þolendur voru. Rannsóknin er liður í að auka þekkingu á kynferðisbrotum en mikil- vægt er að hafa í huga að niðurstöðurnar lýsa aðeins þeim kynferðisbrotum sem fara fyrir dóm og takmark- ast við upplýsingar sem gefnar eru upp í dómsskjöl- um hverju sinni. Ekki ætti að alhæfa um kynferðisbrot á Íslandi út frá þeim. Börn sem Brotamenn Samkvæmt rannsókn Ólafs Arnar Bragasonar báru gerendur yngri en 18 ára ábyrgð á 26 kynferðisbrotum á Íslandi árið 2010 (þar af 92% drengir). Miðað við afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra frá því sama ári er það 8% af þeim heildarfjölda brota það ári. að flest brotin eiga sér stað innan fjölskyldu og þá eiga gerandi og þolandi sameiginleg heimkynni. En ástæður fyrir því að algengt er að brotið sé gegn börnum á þeirra eigin heimilum eru væntanlega þær að börn verja mestum tíma á heimilum sínum og ef gerandi hefur aðgang að heimilunum þá er hann líklegur til að koma sér í þá aðstöðu sem hann kýs. Um 6 % gerenda höfðu framið kynferðisbrot áður. Tæplega einn af hverjum fimm gerendum hefur gerst sekur um annarskonar alvar- leg brot. Hótanir sem beinast að börnum snúast í flestum tilfellum um að börnin þegi yfir brotunum (hót- un/þagmælska) Þegar um lokkun var að ræða, kom í ljós að í 21,5% tilfella sem beindust að börnum hafði gerandi beitt einhverskonar lokkun. Líkamlegt ofbeldi við verknaðinn var í 6,7% tilfella þar sem þolendur voru börn. Um tveir af hverjum fimm játaði verknað sinn fyrir dómi. Að sögn Guðrúnar Sesselju er möguleg skýring á því hvers vegna þeir sem brjóta gegn börnum játi frekar en þeir sem brjóta gegn fullorðnum sú að þeir sem brjóta gegn börnum hafa framið brot sem eru að engu leyti réttlætanleg og þeir sjái jafn- vel eftir þeim. Fáir leita sér hjálpar Erfitt er að meta hversu stór hluti kynferðisbrotamanna leitar sér meðferðar við vanda sínum, að sögn Guðrúnar Sesselju, en miðað við það sem kom fram í niðurstöð- unum þá höfðu þeir sem ákærðir voru fyrir brot gegn börnum frekar leitað sér meðferðar heldur en þeir sem höfðu verið ákærðir fyrir brot gegn fullorðnum og al- gengast var að sú meðferð væri hjá sálfræðingi. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að algengt er að tæplega helmingur þeirra sem höfðu brotið gegn barni upplifðu mikinn kvíða í kjölfar brotanna þó svo að ekki hafi verið komið upp um þá. Þegar tekin eru saman brot gegn börnum þar sem gerandi brýtur einungis á þolendum innan fjölskyldu, þá má sjá að í 39 af 67 tilfellum var um blóðtengsl að ræða. Það gerir meirihluta tilfella eða 57,8%. Þá kom í ljós að hlut- fallslega notuðu gerendur oftar lokkun þegar þeir höfðu ekki fjöl- skyldutengsl við þolendur. Athyglisvert var að í einum af hverjum tíu dómum voru börn á einhverjum tímapunkti undir áhrifum áfengis þegar brotið var gegn þeim. Börn sem voru undir áhrifum vímuefna þegar brotið var gegn þeim voru allt stúlkur á aldrinum 11 - 17 ára og voru tengsl þeirra við gerendur ýmiskonar. Í tilfelli yngstu stúlkunnar, sem var 11 ára, hafði 16 ára frændi hennar margsinnis haft samræði við hana og einnig gefið henni vímuefni, hann var fundinn sekur. Ein stúlka, 12 ára að aldri, hafði farið í partý til 20 ára geranda þar sem hann gaf henni áfengi og hafði svo samræði við hana þrátt fyrir neitun hennar. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is tenGsl 145 Algengast er að gerandi og þolandi þekkist eða í játuðu brot gegn börnum. 41,3% játninGar úttekt 41 Helgin 15.-17. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.