Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 52
52 fermingar Helgin 15.-17. mars 2013
F jölmiðlastjarnan Helgi Seljan fermdist á Reyðarfirði árið 1993. Hann segist aðspurður
ekki trúa á guð í dag. „ Ég trúi Davíð
presti hins vegar,“ segir hann kím-
inn.
Fermingarmyndin af Helga virðist
við fyrstu skoðun fremur hefð-
bundin. Ungur piltur með körfubolta
í annarri gefur lítið annað uppi en
að brennandi áhugamaður og virkur
körfuboltaspilari sé þar á ferðinni.
Svo er hinsvegar ekki. Helgi er ekki
mjög góður í körfu.
„Sko, ég þurfti að fara úr veislunni
minni til þess að fara í myndatök-
una. Ég fór því með afa og sagði við
hann á leiðinni að ég vildi hafa eitt-
hvað með mér, þar sem mér fannst
sem hefðbundin myndataka væri
svo hallærisleg. Ég kom því við á
leiðinni, heima hjá Andra Frey þar
sem enginn var heima. Þau voru auð-
vitað öll í veislunni minni. Hurðin var
ólæst eins og gengur í sveitinni og
ég fór því inn og náði mér í þennan
körfubolta. Þegar ég hugsa betur út
það, þá er ég ekki viss um að ég hafi
nokkurn tímann skilað honum,“ rifjar
Helgi upp.
Hann segir að besta við þetta allt
saman sé að hann hafi aldrei verið
neitt sérstaklega gefin fyrir körfu-
boltaspil, hann hafi hins vegar verið
meira í handbolta.
„Það var bara ekki alveg boðlegt
að vera með handboltann og harpix
klessurnar á fermingarkyrtlinum. En
fyrir vikið halda allir að ég sé mjög
góður í körfu sem er mjög fyndið.“
Fermingarmyndin Helgi Seljan
Skilaði Andra
aldrei boltanum
Fjölmiðla- og Kastljósstjarnan Helgi Seljan fermdist á Reyðarfirði. Hann fór í hefðbundna ferm-
ingarmyndatöku, en ákvað á síðustu stundu að lífga aðeins upp á hana með stolnum körfubolta
sem hann náði í heima hjá útvarpsmanninum Andra Frey Viðarssyni. Það gerði Helgi á meðan
fjölskylda Andra var ennþá í fermingarveislunni hans.
Fyrir vikið halda allir að ég sé mjög góður í körfu sem er mjög fyndið.
Fermingartilboð
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Rúmföt frá 8.390 kr Dúnsæng 24.990 kr
100% Pima bómull 100% andadúnn
Fermingargjöfin
fæst í Líflandi
Lífland hefur að bjóða frábærar gjafir fyrir æsku landsins.
Vandaðar og notadrjúgar flíkur með klassísku sniði.
Fatnaður fyrir unga hestamenn, beisli, hnakkar og aukahlutir í úrvali.
Lífland verslun Akureyri | Lónsbakka 601
Akureyri | sími 540 1150
Lífland verslun Reykjavík | Lynghálsi 3
110 Reykjavík | sími 540 1125
www.lifland.is
Stefán Bogi Gull og silfursmiður Skólavörðustígur 2 S. 552 5445
Margar gerðir af búningasilfri.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur
www.thjodbuningasilfur.is