Fréttatíminn - 21.09.2012, Qupperneq 14
Tapaði fyrir Teiti
Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi
forstjóri Kögunar, tapaði meiðyrðamáli sem
hann höfðaði vegna
skrifa bloggarans
Teits Atlasonar.
Gunnlaugi og
eiginkonu hans
var gert að
greiða Teiti 1,5
milljónir króna í
málskostnað. Þau
íhuga að áfrýja
dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Sagan af Brio lestinni
Stelpur og strákar og strákastelpur
É g á tvær dætur og einn son (auk þriggja stjúpbarna af báðum kynjum). Sjálf er ég svokölluð stráka
stelpa sem gekk aldrei í kjólum, fannst
skemmtilegast í stærðfræði og lék mér
aldrei með dúkkur. Ég held ég hafi eign
ast fyrstu háhæluðu skóna mína 28 ára
þó svo að nú hafi ég lagt alla háa hæla á
hilluna (þeir eru bara svo óþægilegir).
Ég var heilbrigð, orkumikil,
sjálfstæð íþróttastelpa sem átti
auðvelt með að læra.
Ég eignaðist eldri dóttur
mína 25 ára og gerði ráð
fyrir því að hún væri eins og
ég. Safnaði Brio lestum og
boltum og púslum handa henni
og hlakkaði til að leika við
hana með þessu áhugaverða
dóti. Hún hafði nákvæmlega
engan áhuga. Þegar hún var níu
mánaða var hún farin að hafa
skoðun á því í hvaða fötum hún
væri. Ég var 25 og mér var alveg
sama hverju ég klæddist sjálf.
Boltar vöktu engar tilfinningar
með henni og Brio lestin lá óhreyfð ofan
í skúffu árum saman. Hún neitaði að
ganga í buxum þangað til hún var sjö ára
og fór alla leið í hlutverkaleikjum með
vinkonum sínum þar sem kvenleikinn
var bara eitt: þær voru mömmur.
Svo liðu níu ár og ég eignaðist aðra
dóttur og son tveimur árum þar á eftir.
Ég varð því þeirra gæfu aðnjótandi að
fá að ala upp saman dreng og stúlku.
Og hvílík lífsreynsla. Stúlkan bar þess
fljótlega merki að hún yrði eins og ég.
Var farin að skríða fimm mánaða (ég
sver það) og var afskaplega lítið kjurr.
Þarna var strákastelpan mætt. Eldklár
og fljót að öllu, búin að læra alla stafina
tveggja ára og farin að stauta í gegnum
orð þriggja ára og segja heilu sögurnar.
Teiknaði fólk og dýr og hin minnstu
smáatriði fjögurra ára. Afskaplega
dugleg.
En hún hafði engan áhuga á boltum.
Og Brio lestin vakti engan áhuga. Ég
skildi þetta ekki.
Svo kom drengurinn. Ég var farin
að hafa smá áhyggjur af greind hans
um tveggja ára aldurinn því hann hafði
engan áhuga á að læra stafina. Hann
kunni varla að halda á blýanti þriggja ára
og fjögurra ára fékk ég heim myndir úr
leikskólanum sem voru bókstaflega bara
krot í hringi.
En hann kann að sparka í bolta. Og
loksins sýnir einhver Brio lestinni
áhuga. Hann getur leikið sér með bíla
klukkutímunum saman og búið til hin
ótrúlegustu hljóð þegar árekstrar verða
eða stórslys eða sprengingar.
Og vegna þess að hann á tvær eldri
systur nálægt í aldri ólst hann upp við
prinsessumyndir (því þær vildu aldrei
neitt annað). En þrátt fyrir það hefur
hann gríðarlegan áhuga á byssum og
sverðum og skjöldum og spjótum og
bogum og hnífum og nánast hvaða vopni
sem hugsast gat.
Svo að ég ákvað að ræða við leikskóla
kennarann um þessar teikningar hans.
„Elskan mín, hafðu engar áhyggjur.
Drengir teikna hreyfingu á meðan
stúlkur teikna fólk,“ sagði kennarinn. Ég
fór heim og skoðaði myndirnar með syn
inum og spurði hann hvað væri á þeim.
„Stormur,“ sagði hann um eina. „Haust
og laufin að fjúka,“ sagði hann um hina.
Þetta var uppgötvun. Og ég fór að
hugsa.
Ég er alin upp í femínismanum sem
sagði okkur að það væri enginn munur á
kynjunum. Konur og karlar væru eins –
það væri einungis samfélagið sem skip
aði þeim í ólík hlutverk. Hin síðari ár
hefur þetta breyst og nú hafa framfarir
í tækni sýnt fram á að heili stúlkna og
drengja þroskast með mismunandi hætti
þó svo að sumir fræðimenn, líkt og Lise
Eliot, taugasérfræðingur í læknadeild
Rosalind Franklin University, haldi því
fram að munurinn sé fyrst og fremst
umhverfislegur.
Ég veit það ekki. Auðvitað eru for
eldrar ekki einu áhrifavaldarnir í lífi
barna en ég reyndi eins og ég gat að
gera strákastelpu úr elstu stelpunni
minni. Ekki séns. Það er enn smá von
með hina yngri. Hún er allavega byrjuð
á fótboltaæfingum gegn því að fá líka að
vera í fimleikum.
Og sonurinn... strákur fyrir allan
peninginn.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Dómi fagnað
Bloggarinn Teitur Atlason kom því í
stuttu máli að á Facebook að hann hefði
haft betur í dómsmáli sem Gunnlaugur
Sigmundsson höfðaði gegn honum.
S I G U R !!!!
Teitur Atlason
Gleðitárin streyma. Til hamingju Teitur og
Ingunn! Frábær niðurstaða. Tek ofan fyrir
Þórði S. Gunnarssyni, dómara.
Lára Hanna Einarsdóttir
Jei og jibbýkóla, þetta eru góðar fréttir. Vel
gert Rut.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Frábært, innilega til hamingju!
Guðríður Haraldsdóttir
Réttlætið sigrar
Pálmi Gunnarsson
HeituStu kolin á
Í skjóli verjenda
Gleðin var öllu minni í stöðuupp-
færslum á Facebook þegar fréttist
að Baldur Guðlaugsson starfaði á
lögfræðistofunni LEX á meðan hann
lýkur afplánun fangelsisdóms fyrir
innherjasvik.
Það er hægt að galdra fram peninga
(löglegt) en svo er líka hægt að baldra fram
peninga (ólöglegt).
Anna Helgadottir
Væri kannski gagnlegt og í anda
gagnsæis að fá nákvæma útlistun á því
hvað það er nákvæmlega sem hann
gerir á LEX sem flokkast undir sam-
félagsþjónustu?
Birgitta Jónsdóttir
Mér finnst að fólk megi gera örlítið meiri
siðferðilegar kröfur til sjálfs sín og dylgja
ekki um að Baldur Guðlaugsson hafi
framið lögbrot með því að selja ríkis-
skuldabréf sín þegar hann fór í afplánun.
Ekkert bendir til þess að hann hafi haft
meiri upplýsingar en aðrir um umrædda
lagasetningu. Jafnvel má telja það sér-
staklega ólíklegt að sá þröngi hópur sem
um þetta makkaði hafi upplýst hann
um það.
Gunnlaugur Jónsson
Fær einróma lof fyrir Djúpið
Djúpið, kvikmynd Baltasars Kormáks, sem forsýnd
var um síðustu helgi og frumsýnd verður í kvöld,
föstudag, hefur fengið einróma
lof gagnrýnenda. Þá hefur
leikstjórinn tryggt sér
kvikmyndaréttinn á
tveimur af höfuðverkum
Halldórs Laxness,
Gerplu og Sjálf-
stæðu
fólki.
Góð vikA
fyrir
Baltasar Kormák kvikmyndaleikstjóra
Slæm vikA
fyrir
Gunnlaug M. Sigmundsson,
fyrrverandi forstjóra Kögunar
Ég reyndi eins og ég gat
að gera strákastelpu úr
elstu stelpunni minni.
Ekki séns.
100% HÁGÆÐA PRÓTEIN
HLEÐSLUSKYR ER HOLL NÆRING. ÞAÐ HENTAR
VEL Í BOOST-DRYKKI EÐA SEM MÁLTÍÐ OG ER
RÍKT AF MYSUPRÓTEINUM. SMAKKAÐU ÞAÐ
HREINT EÐA BRAGÐBÆTT.
NÝTT
Ríkt af
mysupróteinum
Lífið er æfing - taktu á því
ÍS
L
E
N
SK
A
S
IA
.IS
M
S
A
6
04
35
0
7/
12
14 fréttir Helgin 21.-23. september 2012 vikunnar