Fréttatíminn - 21.09.2012, Side 25
Baltasar hefur nýlokið tökum á
spennumyndinni 2 Guns með Mark
Wahlberg og Denzel Washington í
aðalhlutverkum. Wahlberg og Balt-
asar kynntust við gerð Contraband
og varð svo vel til vina að þeir hyggja
á enn frekara samstarf.
Wahlberg er meðal annars öflugur
sjónvarpsframleiðandi og hann hefur
beðið Baltasar um að leikstýra fyrsta
þættinum í seríunni Missionary sem
gerist í Austur-Þýskalandi á kalda-
stríðsárunum.
„Hann er líka með nokkrar myndir
í huga sem hann hefur verið að bjóða
mér að gera með sér. En ég er líka
með önnur plön.
Við höfum náð rosalega vel saman.
Hann hringdi í mig eftir frumsýn-
inguna á Djúpinu í Toronto. Óskaði
mér til hamingju, sagðist sakna mín
og að hann vildi fara að fá mig heim.
Við spiluðum körfubolta saman um
helgar.“
„Hann er ofboðslega viðkunnan-
legur náungi,“ segir Lilja. „Rosalega
klár gæi.“
„Mark er flottur strákur sem er
búinn að gera það djöfulli gott,“ bætir
Baltasar við.
Spilaði körfu með Wahlberg
Mark Wahlberg lék á móti George Clooney í Perfect Storm þar sem notast
var við tölvugerðan öldugang ólíkt því sem sést í Djúpinu þar sem hafið
við strendur Íslands fær að njóta sín í öllu sínu veldi.
gert með tölvubrellum og vatns-
gusum úr einhverjum fötum. Það
er bara staðreynd. En að hvolfa
bát, vera inni í honum á meðan og
skríða upp á kjölinn þegar hann er
að sökkva. Ég veit ekki til þess að
menn hafi áður farið svona langt
með þetta. Ég er ekki einu sinni
viss um að menn gætu gert þetta
svona annars staðar, til dæmis í
Bandaríkjunum, út af trygginga-
málum. Þegar ég sagði frá þessu
þegar við frumsýndum Djúpið
á Toronto-hátíðinni þá trúði fólk
þessu einfaldlega ekki.“
„Það eru líka ekki allir jafn bil-
aðir og þú. Það er bara þannig,“
segir Lilja og hlær dátt.
Baltasar heldur áfram og lýsir
einu magnaðasta atriði myndarinn-
ar þegar bátnum hvolfir og sjórinn
fossar inn. „Þá vorum við með
myndavél sem var fest á bátinn og
hún fór bara niður á botninn með
honum og við þurftum að kafa eftir
henni.“
Leikarinn Björn Thors verður
fyrir gusunni í myndinni og Balt-
asar var með honum í bátnum
þegar ósköpin dundu yfir. „Við
Bjössi Thors vorum þarna saman
inni í bátnum og þetta var alveg
magnað upplifelsi. Þetta er svo
svakalegt magn af sjó sem kemur
inn á stuttum tíma og þegar maður
er í þessari stöðu áttar maður sig á
hversu vonlaust þetta er.“
Baltasar bendir á að þeir hafi þó
sviðsett sjóslysið uppi við bryggju
en samt hafi hann fundið ógnina
sem felst í því þegar bátur fyllist
af sjó á augabragði. „Við þurftum
beinlínis að gera þetta við bryggju
einfaldlega til að geta velt bátnum
en samt fann maður hversu lítinn
séns þessir menn eiga. Maður verð-
ur svolítið auðmjúkur þegar maður
áttar sig á þessu afli sem maður
á ekkert í þótt maður telji sig yfir-
leitt færan í flestan sjó. Kannski er
maður að segja svona sögur vegna
þess að mann langar til að upplifa
reynslu annarra eða eitthvað álíka.“
Vonin lifir
Baltasar heldur áfram og útskýrir
hvernig hann sér sögu Guðlaugs
í stærra samhengi. „Þegar ég fór
að pæla í þessu þá áttaði ég mig
á að það hefur aldrei verið gerð
mynd um íslensk sjóslys. Samt eru
þau einhver stærsti marbletturinn
á þjóðinni. Allir eiga afa, föður,
bróður, frænda eða einhvern sem
hefur farið í sjóinn þannig að þessi
saga er að mörgu leyti heppilegri
en margar aðrar. Þegar maður
pælir í þessu koma alls konar sjó-
slys upp í hugann en þarna er líka
vonin. Það lifir einhver af. Og með
því að segja að í raun og veru sé það
kraftaverk að einhver lifi af þá ertu
að segja sögu allra hinna. Hversu
litla möguleika þeir hafa átt og við
hvaða aðstæður þeir hafa unnið í
gegnum tíðina. Með því að segja
að það sé kraftaverk að einn lifir af
kemur tilfinningin fyrir því hversu
ofboðslega berskjaldaðir sjómenn
eru. Jafnvel enn þann dag í dag
með alla tæknina og búnaðinn sem
þeir hafa núna.“
Lífsbarátta í grimmu landi
Baltasar fléttar eldgosinu í Eyjum
snilldarvel saman við sögu Guð-
laugs en þegar persóna Ólafs Darra
er að missa móðinn í fimm gráðu
köldum sjónum flæða minningar
um gosið áratug áður fram og ein-
hvern veginn er eins og kraftur
gossins keyri lífsvilja persónunnar
upp. Baltasar hafði ýmsar ástæður
fyrir því að koma gosinu að en ein
þeirra er gamall draumur hans
um að segja sögu úr Eyjagosinu á
filmu.
„Í undirbúningnum las ég allt
sem ég gat fundið um sjóslysið
1984 og öll viðtöl við Guðlaug og
þar kom þetta fram einhvers staðar.
Auðvitað voru minningarnar úr
gosinu sterkustu minningarnar
Framhald á næstu opnu
5 stjörnu FIT
Innifalið:
• Lokaðir tímar 3x í viku
• Leiðbeiningar um mataræði sem er
sérstaklega samsett til að tryggja
þátttakendum 5 stjörnu árangur
• Hvatning, fróðleikur og hollar og góðar
uppskriftir frá Ágústu Johnson og
Guðbjörgu Finns
• Mælingar og vigtun fyrir og eftir
fyrir þær sem vilja
• Dekurkvöld í Blue Lagoon spa
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal
og opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu
- jarðsjávarpotti og gufuböðum
• 10% afsláttur af öllum meðferðum Blue Lagoon spa
Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu til að ná 5
stjörnu formi. Hentar jafnt byrjendum sem vönum.
Verð 25.900 kr. Meðlimir Hreyfingar 16.900 kr.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
tímasetningu og skráningu finnur þú á
www.hreyfing.is
Breyttu línunum og tónaðu
líkamann í sitt fegursta form.
Við höfum sett saman nýtt æfingakerfi byggt á kerfi
sem hefur slegið rækilega í gegn í New York. Það
sameinar margar ólíkar styrktaræfingar sem móta
og tóna vöðva líkamans á áhrifaríkan hátt.
Æfingarnar eru rólegar, krefjandi og gerðar til að
breyta línum líkamans á kerfisbundinn hátt.
Áhersla er lögð á þægilega tónlist.
• Handklæði við hverja komu
• Aðgangur að heitum potti, hvíldaraðstöðu
og afnot af slopp í Blue Lagoon spa
• Kísilleirmeðferð í Blue Lagoon spa
Tilboðsverð 12.590 kr. (fullt verð 20.900 kr.)
5 stjörnu viðbótardekurpakki
40% afsláttur fyrir þátttakendur í 5 stjörnu FIT
Náðu 5
stjörnu formi
viðtal 25 Helgin 21.-23. september 2012