Fréttatíminn - 21.09.2012, Qupperneq 28
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda.
Net fang: baekur@simnet . is
Til bókaútgefenda:
Bókatíðindi 2012
Skráning nýrra bóka í Bókatíðindi
2012 er hafin.
Útgefendur eru hvattir til að skrá bækur
sínar sem allra fyrst en lokaskil vegna
kynninga og auglýsinga er 19. október.
Bókatíðindum verður sem fyrr
dreift á öll heimili á Íslandi.
Frestur til að leggja fram bækur vegna
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2012 er til 8. október nk.
www.bokautgafa. is
Íslensku
bókmenntaverðlaunin
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Handklæði
40% afsláttur
Margar gerðir
Einstök mýkt
þá kemur svo mikið af sálarlausu
drasli þaðan að það er með ólík-
indum. Við sjáum bara toppinn. Það
besta. Og sumt af því er meira að
segja leiðinlegt.“
Öruggt skjól á Íslandi
„Þetta er miklu meira upp á líf og
dauða í Bandaríkjunum. Ég er í
algerri lúxusstöðu vegna þess að
ef það gengur ekkert frábærlega
þar þá get ég alltaf komið heim í
allan þennan pakka og gert myndir
hér. Ef þetta fólk þarna gerir ein
mistök. Eitt flopp. Þá er það bara
farið og þetta er búið. Þú færð þá
ekkert vinnu. Þetta gefur þeim líka
ákveðinn slagkraft og nauðsynina
til að gera myndir sem ná til fólks.
Ég ber virðingu fyrir þessu. Ég ber
virðingu fyrir því að bíómyndir séu
gerðar fyrir fólk. Þetta er list fyrir
fjöldann. Alveg eins og leikhús og
það er frekar dapurlegt þegar það
er enginn í salnum.
Mér er alveg sama hvað fólk seg-
ir. Hver einn og einasti sem telur
sig vera stórlistamann og talar um
að það skipti hann ekki máli hvað
áhorfendum finnist um myndirnar
sínar. Það er allt lygi. Ég veit að það
líður engum kvikmyndagerðar-
manni vel að koma inn í stóran sal
og sjá bara tíu manns í sætum. Það
er alveg á hreinu. Þetta er hræði-
legasta tilfinning í heimi. Þetta er
aldrei góð tilfinning alveg sama
hvernig þú reynir að ljúga að þér
að þú sért stórkostlegur listamað-
ur. Bíóhús eru gerð stór og með
mörgum sætum vegna þess að það
er gott að fylla þau.“
Þegar talið berst að fagmennsku
almennt segir Baltasar Íslendinga
vera fremstu röð. „Það er rosalega
fært fólk hérna og ég finn fyrir því
þegar ég er að vinna úti með fólki,
sem er með Óskara í öllum vösum,
að fólkið hérna er alveg sambæri-
legt við þessa margverðlaunuðu
listamenn að mörgu leyti.“
Tætingslegt vertíðarlíf
Baltasar og Lilja eru að vonum á
miklum þeytingi enda vart við öðru
að búast þegar þau halda heimili í
Skagafirði en Baltasar sinnir kvik-
myndagerð í Hollywood. „Þetta
er svolítið tætt líf og stundum
situr maður einn í einhverri íbúð,
sem kemur manni ekki við, eða á
hótelherbergi og spyr sig af hverju
maður sé að þessu.“
Lilja gerir heldur lítið úr um-
kvörtunum eiginmannsins: „Það
hefur aldrei komið fyrir,“ segir hún
og hlær. „Jú, jú. Þetta hefur komið
fyrir en ekkert rosalega oft,“ svarar
Baltasar og glottir. „Það hljómar
bara vel að segja þetta, kemur vel
út á prenti,“ heldur Lilja áfram og
ætlar ekki að sleppa eiginmann-
inum af önglinum svo glatt.
„En svona í alvöru talað þá koma
stundum þessi augnablik þar sem
maður spyr sig til hvers maður sé
að leggja þetta á sig. En svo þegar
maður er í Skagafirðinum og er
búinn að vera þar lengi þá kemur
löngunin til þess að fara út og gera
eitthvað.“
„Þetta er gott í bland,“ segir Lilja.
„En þegar þetta eru orðnir fimm,
sex mánuðir í burtu eins og síðasti
Smugutúr var hjá þér þá er þetta
orðið dálítið erfitt.“
Hjónin reyna eftir fremsta megni
að stytta þann tíma sem fjölskyld-
an getur ekki verið saman. „Við
reynum að fylgjast að í þessu og
Lilja var úti hjá mér með strákana í
tvo mánuði þegar ég var að undir-
búa Contraband. En svona hefur
margur sjómaðurinn lifað alla
sína ævi... “ segir Baltasar og Lilja
botnar. „Þetta er bara óvenju langir
Smugutúrar.“
Hengdi Denzel Washington upp
á löppunum
Lilja var einnig með Baltasar í
sumar þegar hann tók upp spennu-
myndina 2 Guns með þeim Mark
Denzel Washington var tregur í taumi til að byrja með en Baltasar tókst áður en yfir
lauk að fá að láta hann hanga á hvolfi í tvo daga.
Baltasar og Lilja hafa ástæðu til þess að brosa. Djúpið hefur fengið fína dóma í
útlöndum og spennandi verkefni hrannast upp.
Helgin 21.-23. september 2012