Fréttatíminn - 21.09.2012, Qupperneq 30
Það sem átti að taka sex vikur tók
sex mánuði að jafna sig. Viku áður
en ég átti að mæta til vinnu fékk
ég blóðtappa. Það var barningur
á bráðamóttökunni, því senda átti
mig heim af henni með „harðsperr-
ur“, en ég fann að það var eitthvað
meira að,“ segir hún enda hafi hún
lítið geta hreyft sig vegna verkja.
Smátt og smátt þetta sumar segir Eva
Björk að hún hafi fundið hvernig kraftur-
inn þvarr. Hún gat orðið sofið 18 tíma á
sólarhring og átti í erfiðleikum með
að ganga upp tröppur. „Ég fékk alls
konar sýkingar, lungnabólgur og
var í rusli sumarið 2010. Ég hrein-
lega hryn niður um miðjan júlí. Þá
fór mér að versna mikið og aðra
helgina í ágúst greinist ég með
þennan blóðtappa. Þá fór allt ferlið af
stað. Blóðþynningar, blóðmælingar
og fingurinn var ekkert að jafna sig,“
segir hún.
Með vanvirkan skjaldkirtil
„Frá þessu sumri er ég búin að kljást við
endalaus veikindi. Endalausar kvef-
pestir og „systemið“ ekkert að
jafna sig. Svo greinist ég fyrir
þremur mánuðum, loksins
eða 10. júní, með vanvirkan
skjaldkirtil. Ég hef verið að drekka joð-
blöndu og hef misst upp undir tuttugu kíló
á þremur mánuðum. Nærri tuttugu kíló af
bjúg,“ leggur hún áherslu á og lýsir því að
hún sé rétt farin að passa aftur í fötin sín.
„Ég hef aldrei verið feit og alltaf í þokka-
legu formi. Þegar kílóin hlóðust á mig og
vanlíðanin helltist yfir mig hélt ég að feitu
fólki liði svona illa. En málið var að ég var
ekki bara með fitu utan á mér, ég var stút-
full af vatni. Ég gat varla lyft höndum en var
samt að borða í mesta lagi fimm hundruð
til þúsund kaloríur á dag. Ég var eiginlega
hætt að borða, því ég þurfti að leggja mig
eftir hverja máltíð,“ segir hún.
„Mér leið ömurlega. Mér leið eins og
ég væri búin að labba á alla veggi sem ég
gæti í þessu velferðarkerfi. Það hefur ekki
staðið sig gagnvart mér, hvort sem það er
peningalega- eða heilsufarslega séð. Það
stendur sig ekki gagnvart fólki í minni
stöðu sem fær enga greiningu. Svarið er að
dæla í okkur þunglyndislyfjum. Því hafnaði
ég alfarið.“
Nú nærri tuttugu kílóum léttari líður
henni betur en hún greindist ekki fyrr en
að líkamshiti hennar fór niður í 36,2 um
hásumar. „Mér var alltaf kalt. Ég hélt að
hitakerfið í íbúðinni minni væri bilað. Ef
ég fór út veiktist ég. Ég svaf í vetur með
alla glugga lokaða, ofna í botn og með
húfu og í hettupeysu. Þetta var erfiður
pakki.“
Ætlar af krafti út í lífið
Eva Björk ætlar ekki að enda á kerfinu.
„Ég ætla að enda í lífinu. Ég ætla ekkert
að enda eins og kerfið ætlar að bjóða mér
að enda í dag. Engar úrlausnir eða hjálp að
fá. Það þarf að vera hægt að velja
úr fleiri kostum í kerfinu fyrir
fólk sem missir fæturna tíma-
bundið undan sér,“ segir hún.
„Eftir að ég kynntist myndavélinni hefur
hún orðið besti vinur minn. Við verðum að
komast út saman,“ segir hún í gríni. „Þetta
er hætt að vera áhugamál. Hún er nefnilega
ávanabindandi. Ég er hætt að sjá lífið öðru
vísi en í gegnum vélina. Ég sé form. Það er
skemmtilegt.“
Nú líður henni eins og erfiðasti hjallinn
sé yfirstaðinn. „Fyrir þremur árum hljóp
ég tíu kílómetra á undir 43 mínútum. Ég
var algjör orkubolti en bætti á mig mörgum
stærðum af fötum því ég gat ekki hreyft
mig. Það er bjart fram undan og ég hef átt
góða að. Ég á góða vini og ömmurnar mínar
standa fast við bakið á mér. Ég hef notað
ljósmyndunina til að komast út. Hver vill
vera innilokuð með kettinum sínum. Ég
ætla ekki að enda sem eitthvert stofustáss.
Ég ætla að taka þátt í lífinu. Hvar ég enda
verður þó að koma í ljós.“
KYNNTU ÞÉR MÁ
LIÐ NÁNAR!
É g hafði aldrei smellt af myndavél þegar ég tók að mér að mynda EM kvenna í fótbolta 2009,“ segir Eva Björk Ægis-
dóttir, 35 ára kona sem býr með kisunni sinni
Ninju Björk í bjartri blokkaríbúð í Grafarvogi.
Hún vinnur nú fyrir sér sem freelance-ljós-
myndari í kjölfar óljósra veikinda sem rifu
hana úr þremur, ólíkum vinnum og gerðu
hana óvinnufæra í rúm tvö ár áður en þau
skýrðust. Hún var sölufulltrúi hjá heildsölu
Halldórs Jónssonar, ræstitæknir í Engidals-
skóla og knattspyrnuþjálfari hjá Fjölni, síðan
Val.
Það var í léttu gríni að hún tók að sér að
mynda við fréttaskrif vinkonu sinnar, Mistar
Rúnarsdóttur, á þessu eftirminnilega stór-
móti. Báðar höfðu þær skrifað fyrir vefinn
Fótbolti.net en vinkonan lengur og valdi að
skrifa. Eva Björk tók því myndirnar í þessari
ferð.
„Mánuði áður en ég fór út hringir fram-
kvæmdastjórinn í mig og biður mig að æfa
mig að mynda. Þrátt fyrir að vera í þremur
vinnum gaf ég mér tíma til að æfa mig. Ég
hafði ekkert skynbragð á uppbyggingu ljós-
mynda yfir höfuð. Vildi bara fá fría utanlands-
ferð og fylgja eftir íslensku stelpunum sem
höfðu staðið sig frábærlega. Þetta var meira
svona ævintýra en að þetta ætti að verða eitt-
hvað.“
Fann kraftinn þverra
Þær vinkonur voru duglegar og skiluðu
miklu af sér frá mótinu. „Svo fór þetta að vera
þannig að ég var með myndirnar sem hæfðu
fréttunum. Og þegar ég fór fyrir ári síðan að
mynda af alvöru fyrir Fótbolta.net náði ég
þeim vinklum sem þeir vildu eða gátu skrifað
fréttir í kringum.“
Nú tekur Eva Björk ljósmyndir fyrir frétta-
vef RÚV, Moggann og hafa myndir hennar
líka ratað á síður Fréttatímans; prýddi forsíðu
blaðsins rétt eins og á tímariti Morgunblaðs-
ins eftir að Jón Margeir Sverrisson vann gull-
ið á ólympíumóti fatlaðra í London. Þar var
hún. Myndir Evu Bjarkar eru einnig á bókar-
kápu Víðis Sigurðssonar, Íslensk knattspyrna
2009. Þá var hún á Akureyri þegar Þór/KA
stelpurnar lönduðu Íslandsmeistaratitli.
„Ég byrjaði sem óskrifað blað og gerði mitt
besta. Væntingarnar voru aldrei aðrar en þær
að okkur langaði að gera vel fyrir stelpurnar
í Finnlandi,“ segir hún og að þær hafi báðar
þjálfað og fylgst með kvennaknattspyrnunni í
mörg ár. Hún hjá Stjörnunni, Val, Breiðabliki
Haukum og Þrótti.
Það var ekki af góðu að Eva Björk lagði ljós-
myndun fyrir sig. Hún veiktist og missti af
lest daglegrar rútínu. „Ég er með barnasjúk-
dóm sem lýsir sér í góðkynja æxlamyndunum
í beini og kallast Ollier. [Þegar ég var sjö
ára var æxli fjarlægt úr vísifingri og stálvír
þræddur upp fingurinn. Hann var svo fjar-
lægður úr fingrinum vorið 2010. Allir vöðvar
í fingrinum voru teknir í sundur til að setja
hann í rétta stöðu. Ég var lengi að jafna mig
eftir þess aðgerð,“ segir hún.
„Það er eins og líkaminn hefði fengið eitt-
hvert sjokk eða yfirkeyrst á þessu tímabili
[fyrir og eftir aðgerðina]. Og í kjölfarið var ég
með miklar sýkingar og bólgur í fingrinum.
Tuttugu kíló af eftir skjaldkirtilsskoðun
Eva Björk Ægisdóttir,
hálffertug kona sem
hafði glímt við óút-
skýrð veikindi í tvö
ár, finnur nú hvernig
heilsan er að skríða
saman. Hún hefur á
tveimur mánuðum
misst hátt í tuttugu
kíló. Frá tíunda júní
hefur hún drukkið
joðblöndur til að
vinna á vanvirkum
skjaldkirtli og joð-
skorti. Uppfull af
bjúg og verkjum,
og með ör á fingri
sem greri ekki eftir
aðgerð, þurfti hún að
láta frá sér vinnurnar
þrjár sem hún
sinnti. Hún breytti
um stefnu og er nú
fréttaljósmyndari
fyrir hina ýmsu miðla
á meðan hún jafnar
sig.
Eva Björk að mynda gulldrenginn Jón Margeir Sverrisson í og eftir tattúeringu eftir ólympíumót fatlaðra, fyrir Morgunblaðið.
Mynd/Hari
Skortur á skjaldkirt-
ilshormóni sem hefur
áhrif á flest líffæri.
Samkvæmt Vísindavef
Háskóla Íslands koma
einkennin oftast hægt
og sígandi. Þau geta
staðið lengi án þess
að nokkur átti sig á
að um sjúkdóm sé
að ræða. Fyrstu ein-
kenni eru þróttleysi,
þreyta, verkir í vöðv-
um og liðum, sina-
dráttur, óþol gagnvart
kulda, höfuðverkur
og tíðatruflanir. Húð-
in verður oft þurr og
föl, neglur þunnar og
brotna auðveldlega og
hárið þynnist. Alvar-
legri einkenni koma
síðar; eins og bjúgur,
blóðleysi, heyrnar-
skerðing, þykk tunga,
hjartastækkun og
hægur púls, andnauð
og lækkaður líkams-
hiti. Samkvæmt grein
Belindu Burma um
vanvirkan skjaldkirtil
á vefnum Heilsu-
hringnum telja sumir
læknar að allt að 15-
40 prósent mannfólks-
ins þjáist af vanvirk-
um skjaldkirtli.
Skjaldkirtill. Ljósmynd/
Nordic Photos/Getty Images
Vanvirkni skjaldkirtils. Hvað er það?
Vangaveltur
Getur verið
að Íslendingar
hafi þyngst
vegna joð-
skorts?
Ekki er hægt að sýna
fram á að joðskortur hafi
neitt með aukna offitu
landsmanna almennt
að gera, segir Ingibjörg
Gunnarsdóttir, matvæla-
og næringarfræðingur,
spurð hvort joðskortur
geti skýrt stöðuga
þyngdaraukningu
þjóðarinnar. Hún segir
að Rannsóknarstofa í
næringarfræðum hafi
skoðað slíkt sérstaklega
en ekkert hafi bent til
þess. Rannsóknir hafi
sýnt að joðbúskapurinn
sé hjá flestum innan
þeirra marka sem Al-
þjóðaheilbrigðisstofn-
unin setur upp fyrir
joðhag.
Joðmagn
í míkró-
grömmum
í 100 g:
Salt (joðbætt) 3000
Sjávarfang 66
Grænmeti 32
Kjöt 26
Egg 26
Mjólkurafurðir 13
Brauð og kornmeti 10
Ávextir 4
Heimild: Heilsubankinn
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
30 viðtal Helgin 21.-23. september 2012