Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Síða 32

Fréttatíminn - 21.09.2012, Síða 32
- Ekkert um okkur án okkar www.obi.is „Ég hafði gaman af kennslunni, hún var oft krefjandi en það var líka gefandi að vinna með unglingum. Mér leið einnig vel í hópi góðra starfsfélaga. Í dag snýst lífið um að gera það besta úr þeirri litlu orku sem ég hef, finna mér tilgang í félagsstörfum og sinna fjölskyldunni. Ég valdi það ekki að verða öryrki. Það rýrir ekki gildi þitt sem manneskju að geta ekki unnið.“ Þorbera Fjölnisdóttir Langflestir sem verða öryrkjar hafa unnið í áratugi og óska þess að geta tekið virkan þátt í samfélag- inu. Örorka er ekki val eða lífsstíll. Ég borgaði skatta í 22 ár og borga enn Ég valdi ekki að verða öryrki É g veit ekki um neinn ann-an sem hefur haft sigur í Bandaríkjunum og enginn sem ég þekki kannast við það. Þannig að þetta er náttúrlega gríðarlega stór sigur. Ekki bara fyrir mig heldur fólk á Íslandi, bæði konur og karla, sem eru í þessum aðstæðum vegna þess að það er ekkert grín að vinna stóru Amer- íku.“ segir Borghildur sem nýtur þess nú að geta búið áhyggjulaus með sonum sínum á Íslandi. Hún stundar nám á Keili og drengirn- ir, Brian sem verður þrettán ára í nóvember og Andy sem verður átta ára í september, kunna hvergi betur við sig en hér. Átta mánuðir í ótta og kvíða Kvíðinn nagaði Borghildi þá átta mánuði sem dómsmálið tók en hún gaf vonina þó aldrei upp á bát- inn. „Maður er alltaf hræddur og ég hafði heyrt að þetta væri von- laus barátta sem hún vissulega var þangað til ég vann.“ Richard Colby Busching, fyrrverandi eiginmaður Borghildar, er hermaður og þar sem þau bjuggu, í þéttu hersamfélagi í Kentucky, átti hún ekki von á góðri niðurstöðu. „Þar sem við bjuggum í Ken- tucky er samsafn hermanna sem eru komnir á eftirlaun. Síðan er líka stór herstöð þarna þannig að þetta er náttúrlega bara hersamfélag og þegar þú stígur inn í þannig samfé- lag í Bandaríkjunum þá er auðvitað engin spurning í hvaða átt almenn- ingsálitið og jafnvel lögin hallast.“ Borghildur segir mánuðina átta í Kentucky hafa verið langa. „Ég var reyndar það heppin að ég átti hús úti sem ég yfirgaf þegar ég fór aftur til Íslands. Ég vissi ekkert í hvernig ástandi það væri og hafði frétt að það hefði verið brotist inn í húsið, vissi að einhverju hefði verið stolið og að stormur hefði eyðilagt þakið. En þetta var það eina sem ég hafði og þegar ég kom út leit þetta nú ekki jafn skelfilega út og við héld- um. Sem betur fer. Við höfðum því þetta húsaskjól og pabba strákanna var gert að borga af húsinu til að halda þaki yfir höfði okkar á meðan við vorum þarna.“ Þegar Borghildur er spurð hvort hún hafi aldrei misst vonina segir hún spurninguna vera stóra og svarið ekki einfalt. „Ég sagði aldrei upphátt að það væri möguleiki að ég myndi tapa. Ég gerði það aldrei. En í hljóði, ein með sjálfri mér, þá datt mér ekki annað í hug en að þetta færi illa. En ég var ekki að fara að segja það upphátt og reyndi bara sem minnst að hugsa út í þann möguleika. Maður má líka bara ekki gera það ef maður ætlar að halda andlegri heilsu. Maður verð- ur að vera með hnefann á lofti og ef maður fer að tala um uppgjöf eða vonleysi þá er maður náttúrlega ekkert að berjast þannig séð.“ Bar- áttan hefur samt tekið sinn toll og í heildina hafa málaferlin kostað Borghildi á áttundu milljón. „Ég er ekki búin að borga alla súpuna en maður sér fyrir endann á þessu.“ Sanngirni skilar meiru en frekja Richard fór fram á fullt forræði og að Borghildur mætti hitta syni sína einu sinni á ári undir eftirliti. Niður- staðan varð sú að lögheimili drengj- anna er hjá Borghildi en forsjáin er í raun sameiginleg. „Hann hefur enn heilmikið að segja og ég vildi að við hefðum sameiginlega forsjá og að hann hefði strákana á sumr- in og önnur hver jól. „Þetta er eitt- hvað sem ég talaði alltaf um og hélt til streitu enda er þegar til lengri tíma er litið miklu betra að einhver sýni sanngirni frekar en frekju. Ég held líka að það skipti rosalega miklu máli að elska börnin sín að- eins meira en maður hatar fyrr- verandi. Hann hefur ekki fullnýtt þennan rétt sinn, eins og ég þóttist nú vita. Hann tók strákana í ellefu vikur fyrsta sumarið, sex vikur það næsta og ekkert nú síðast. Og hefur aldrei verið með þá um jól.“ Borghildur segist ekki fá betur séð en kerfið í Bandaríkjunum sé um margt hagstæðara börnum en hér heima. „Dómarinn gerir auðvi- tað ráð fyrir að hann sé að gera það Uppgjöf kom aldrei til greina Mál Borghildar Guðmunds- dóttir vakti mikla athygli fyrir nokkrum misserum en henni var þá gert með dómsúr- skurði að yfirgefa Ísland og mæta barnsföður sínum og fyrrverandi eiginmanni í for- ræðisdeilu fyrir bandarískum dómstóli. Blönk og hrædd fór hún út í óvissuna en eftir átta mánaða baráttu hafði hún sigur og sneri aftur til Íslands með syni sína tvo. Hún veit ekki betur en að það sé nánast einsdæmi að útlendingur hafi sigur í forræðisdeilu í Banda- ríkjunum og lítur á niður- stöðuna sem stórsigur. Ekki aðeins fyrir sig heldur alla sem standa í þeim sporum sem hún var í. Borghildur hefur skráð sögu sína í bókinni Ég gefst aldrei upp sem kemur út á næstu vikum. Borghildur Guðmundsdóttir vann forræðisdeilu gegn fyrrverandi eiginmanni sínum í Bandaríkjunum. Baráttan var tvísýn og hún óttaðist á stundum hið versta. Hún segir sögu sína í bókinni Ég gefst aldrei upp sem kemur út á næstu vikum. 32 viðtal Helgin 21.-23. september 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.