Fréttatíminn - 21.09.2012, Page 37
Án ofnæmisvaldandi efna
Án efna sem sitja eftir í tauinu
Sérþróað fyrir íslenskt vatn
Í völdum 2 kg pökkum af MILT
þvottadufti eru lukkumiðar sem
innihalda glæsilega vinninga.
Kauptu MILT þvottaduft og þú
gætir dottið í lukkuþvottinn!
Whirlpool þvottavél og Philips
straujárn frá Heimilistækjum,
veglegir balar með frábærum
þvotta- og hreinsiefnum eða
inneign í Skemmtigarðinn
í Smáralind.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Líkamlegur
þroskamunur
Líkamlega eru stúlkur og drengir mjög
áþekk fram að þriggja til fjögurra ára
aldri. Þá fara stúlkurnar fram úr. „Það
getur verið erfitt að vera stór stúlka
en enn erfiðara að vera lágvaxinn
drengur. Strákar eiga að vera stórir og
því erfitt að þurfa að bera sig saman
við stúlku sem er miklu hærri,“ segir
Abigail.
Stúlkur fara mun fyrr á kynþroska-
skeið en drengir, 11-12 ára eru stúlkur
orðnar kynþroska en drengirnir jafnvel
ekki byrjaðir á kynþroskaskeiðinu.
„Þær eru orðnar fullorðnar á meðan
þeir eru ennþá börn. Þau geta lært
það sama en nálgast námsefnið úr
ólíkum áttum. Það er því ósanngjarnt
fyrir bæði kynin að hafa þau saman í
hóp. Þeim gengur betur að læra þegar
upplýsingamiðlunin er miðuð að þeirra
kyni,“ segir Abigail.
Viðbrögð kvenna hafa verið kölluð
„tend-and-befriend“ sem útleggja
má sem annast og vingast.
„Stúlkur frjósa en drengir fyllast
orku við streituvaldandi aðstæður,“
segir Abigail. „Ef ég spyr stúlku
út úr gerist það ósjaldan að hún
frjósi á staðnum en ég læt dreng-
ina meira að segja standa upp til
að svara spurningum í tíma því
streitan er einfaldlega hvetjandi,“
segir hún.
Abigail Norfleet James heldur því fram
að þegar stúlkur og drengir eru saman
í bekk beri þau sig saman við hitt kynið
á sviðum þar sem samanburðurinn er
ósanngjarn vegna þess hversu kynin
eru ólík í eðli sínu.