Fréttatíminn - 21.09.2012, Síða 56
56 bílar Helgin 21.-23. september 2012
Sparneytni ný kynSlóð af ford Mondeo
Bílarnýr frakki fraMleiddUr Á SpÁni
Citroën C-Elysée væntanlegur fyrir árslok
Citroën C-Elysée er væntanlegur á markað
ytra í lok þessa árs, að því er fram kemur á síðu
umboðsaðila Citroën, Brimborgar. Bíllinn er
með nýrri VTi 72 vél sem er hönnuð til að skila
mikilli afkastagetu, lágri eldsneytisnotkun auk
þess að vera endingargóð, segir þar. „Fram-
hluti bifreiðarinnar er einkennandi fyrir þau
sérkenni sem Citroën bílarnir eru svo þekktir
fyrir og stórt auðkennismerki bílsins úr krómi
fellur einstaklega vel við rifflaða vélarhlífina.
Yfirbyggingin er eftirtektarverð og ein-
kennandi fyrir hið sérstaka útlit sem Citroën
bílarnir eru fyrir löngu orðnir svo þekktir fyrir.
Hjólbarðarnir eru breiðir og svipmikil og ávöl
aurhlífin gefur bílnum einkar glæsilegt yfir-
bragð. Citroën C-Elysée verður fáanlegur í sjö
mismunandi litum. Að innan finna farþegar
fyrir nærveru fágaðrar hönnunar sem er hrein-
lega áþreifanleg. Mælaborðið er í forstjórastíl
og áklæðin eru bæði falleg og vönduð,“ segir
enn fremur.
Val er á milli sex gíra beinskiptingar eða
sjálfskiptingar. Lengd milli hjóla er 2.65 metrar
og farangursrýmið er 506 lítrar. Meðal búnaðar
í bílnum er lyklalaust aðgengi og starthnappur,
GPS- snertiskjár og bakkmyndavél.
Hinn nýi Citroën C-Elysée er framleiddur í
Vigo á Spáni, samhliða Peugeot 301.
Citroën C-Elysée kemur á markað ytra fyrir árslok.
Framúrstefnulegur Nissan Juke
Sportlegi framhjóladrifni bíllinn
frá Nissan, Juke, vekur athygli fyrir
framúrstefnulegt útlit. Bíllinn vakti
enda umtal þegar hann var kynntur
á bílasýningunni í Genf, undir nafninu
Qazana, eins og segir á síðu BL,
umboðs Nissan: „Ekki hafði áður
verið kynntur til sögunnar svo lítill
sportjeppi, lítið stærri en venjulegur
fjölskyldubíll af minni gerðinni en þrátt
fyrir stærðina gaf útlitið til kynna að hér væri á ferðinni eitthvað alveg nýtt sem vert
væri að gefa gaum. Nissan Qazana fékk seinna nafnið Nissan Juke.“
Bíllinn kemur í tveimur gerðum, Visia og Acenta. Visia er á 16 tommu álfelgum og
meðal staðalbúnaðar eru ABS hemlar með EBD hemlajöfnun, ESP stöðugleikastýring,
rafdrifnar rúður og speglar og loftkæling. Aukalega í Acenta útgáfinni eru 17 tommu
álfelgur, samlitir hurðahúnar og speglar, hraðastillir, ljóskastarar í stuðara, útvarps-
stillingar í stýri, Bluetooth símabúnaður, sjálfvirk loftræsting og leðurstýri.
Verð á sjálfskiptum, framhjóladrifnum Nissan Juke Acenta er 3.990.000 krónur.
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
12 volt díóðuljós
12v 1,3w12v 1,3w
12v 2,5w 12v 1,66w 12v 1,66w
12v 1,0w
12v 1,2w 12v 1,0w
Tilvalið fyrir sumarbústaði með sólarorku
Eyða allt að 90% minni orku en halogen
12v 3,0w
f ord fer óhefðbundnar leiðir til að ná fram sparneytni og ríður nú fyrirtækið á vaðið
með að bjóða minnstu vélina, 1,0
lítra, í nýrri kynslóð af rúmgóðum
fjölskyldubíl, Ford Mondeo, að því
er fram kemur á síðu Brimborgar.
„Minnsta vélin er hinsvegar afar
öflug og margverðlaunuð vél sem
skilar heilum 125 hestöflum þó hún
sé aðeins 1,0 lítri að rúmmáli. Þá er
einnig athyglisvert að taka mið af
því að 1,0 lítra vélin leysir af hólmi
1,6 lítra bensínvél sem nú er í boði í
Ford Mondeo en skilar samt meira
af li, betri eldsneytisnýtingu og
minni losun CO2. Með nýju vélinni
ætti Ford Mondeo að verða einn
af visthæfustu bíl-
unum í sínum flokki
með aðeins 130 g/
km af CO2.
EcoBoost 1.0 vélin
var fyrir skömmu til-
nefnd sem vél ársins
(International Eng-
ine of the Year) og er hún minnsta
bensínvél sem Ford hefur smíðað.
Það að vélin fari í 1500 kílóa Ford
Mondeo er til marks um sveigjan-
leika vélarinnar en fyrir vikið getur
Ford boðið sparneytni og fjölbreytt-
an búnað á betra verði en áður.
1,0 lítra vélin var kynnt af Brim-
borg fyrr á árinu í Ford Focus og
hefur henni verið gefin góður
gaumur hjá
þeim viðskiptavinum sem
hafa reynsluekið Focus með þess-
ari vél. Hún þykir með eindæmum
þýð og hún skilar aflinu á skemmti-
legan máta með því að nýta túrb-
ínutæknina á nýjan hátt,“ segir enn
fremur.
Hinn nýi Ford Mondeo verður
kynntur haustið 2013 en enn liggur
ekki fyrir hvenær fyrstu bílarnir
koma hingað til lands.
Stór fjölskyldubíll með
1.0 lítra vél
Nýr Ford Mondeo verður meðal annars fáanlegur með minnstu
bensínvél sem Ford hefur smíðað en engu að síður er hún nógu
öflug til að duga svo stórum bíl. Framendi bílsins er óneitanlega
líkur Aston Martin – og ekki leiðum að líkjast.
Nýr og endurbættur Isuzu C-Max pallbíll
Nýr og endurbættur Isuzu D-Max pallbíll.
Pallbílar sameina kosti jeppa og vörubíla og njóta því vinsælda.
Isuzu D-Max er kominn í nýrri útgáfu, margreyndur jaxl með
mikla getu. Nýja 2,5 lítra dísilvélin skilar meira togi en áður, 400
Nm við 1400-2000 snúninga á mínútu en eyðir jafnframt minna
en eldri vélin, eða frá 6.5 lítrum á hundraðið í utanbæjarakstri,
miðað við beinskiptan bíl, að því er fram kemur á síðu Isuzu
hjá umboðsaðilanum BL. Í blönduðum akstri eyðir beinskiptur
D-Max 7,4 lítrum á hundraðið en sjálfskiptur 8,4 lítrum. Meira
tog fæst nú við lægri snúning sem fæst með því að hafa tvær
forþjöppur og millikæli sem vinna saman að því að hámarka tog
og lágmarka eldsneytiseyðslu við hinar ýmsu aðstæður.
Stjórntakkar fyrir fjórhjóladrifið eru rafstýrðir í mælaborði. Á
pallinn má setja 1080 kíló og dráttargetan er 3000 kíló. Meðal
staðalbúnaðar má nefna aksturstölvu, 6 hátalara, 17 tommu
álfelgur, hraðastilli og spólvörn. Aukalega í Lux-útgáfu eru
meðal annars leðursæti, útvarpsfjarstýring í stýri og símsvörun
í stýri.
Bíllinn fæst einnig með 3 lítra „Common Rail“ vél með millikæli
og VGS tækni (Variable Geometry System) sem skilar allt að 13
prósent betri eldsneytisnýtingu en eldri gerð véla í D-Max, auk
þess sem hún er hljóðlátari.
Verð Isuzu D-Max er frá 6.890.000 krónum og Lux-útgáfu frá
7.190 þúsund krónum.
www.noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t