Fréttatíminn - 07.12.2012, Page 80
74 matur Helgin 7.-9. desember 2012
Jólin koma alvöru kæfa úr íslensku hreindýrakJöti
Kæfa jólaandans
Jól lJúfmeti á boðstólum um Jólin
Matarmarkaður í
Nóatúni á morgun
KJÖTPAKKAR BEINT Í FRYSTINN
PAKKI 1
10 KG NAUTAHAKK
2 KG NAUTAGÚLLAS
2 KG NAUTASNITSEL
VERÐ KR. 22.464
EÐA 1.604 kr/kg
PAKKI 2
15 KG NAUTAHAKK
4 KG NAUTAGÚLLAS
4 KG NAUTAFILE
4 KG NAUTASNITSEL
VERÐ KR. 48.145
EÐA 1.783 KR/KG
PAKKI 3
30 STK HAMBORGARAR
( 90 GR )
8 KG NAUTAHAKK
4 KG NAUTAGÚLLAS
VERÐ KR. 23.535
EÐA 1.601 KR/KG
PAKKI 4
15 KG NAUTAHAKK
VERÐ KR. 20.925
EÐA 1.395 KR/KG
Pakkað í þá stærð sem fólk vill
½ ungnautaskrokkur verð kr/kg
1.750 inniheldur; lund, le, ribeye,
mínútusteikur, gúllas, snitsel og
hakk
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
HEIMSFRUMSYNING Á ÍSLANDI
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SVARTIR SUNNUDAGAR:
Kl. 20 sunnudag. Aðeins
þessi eina sýning.
Osta- og ljúfmetisbúðin Búrið í Nóatúni
stendur fyrir stærðarinnar jólamatarmark-
aði í samstarfi við Beint frá býli á morgun,
laugardag. Markaðurinn stendur frá klukkan
12-16 í Nóatúni 17 og verður bæði í stóru tjaldi
fyrir utan Búrið og innandyra þar sem
Tölvulistinn var áður til húsa.
32 framleiðendur kynna og
selja vörur sínar í tjaldinu en
þetta er annað árið í röð sem
markaðurinn er haldinn. Í
fyrra komu um þrjú þúsund
gestir en ekki gekk allt
áfallalaust fyrir sig, eitt
tjaldið fauk í burtu og
ljósin virkuðu ekki. Nú
er markaðurinn mun stærri og
girnilegri og skipuleggjendur lofa því
að tjöldin verði kirfilega fest!
Matarmarkaðurinn heppnaðist vel þrátt fyrir slæmt veður.
Eirný
Sigurðar-
dóttir í
Búrinu sér
um skipu-
lagningu.
Hreindýrapaté
Aðferð
Brytjið og hakkið allt sem hægt er
að hakka. Bætið við því sem þið
treystuð ykkur ekki til að hakka og
hrærið vel saman. Kryddblandan
ætti að gefa ykkur jafnan botn í
þetta en ég ráðlegg fólki að smakka
á þessu stigi. Fljótlegast er að taka
góða skeið af kæfuefni, fletja út á
undirskál og skella í örbylgjuna í
örstutta stund. Bætið við salti og
kryddi eftir þörf.
Að sjóða niður
Venjulega ættu menn ekki að sjóða
niður kjötmeti nema notast við
hraðsuðupott, „pressure cooker“.
En það eru nú einu sinni að koma
jól þannig að við látum okkur vatns-
baðið nægja. Kæfugerðarfólk gæti
mögulega lent í því að missa eina
krukku, en öll þurfum við að færa
fórnir fyrir hátíðarnar.
Veljið krukkur sem henta til niður-
suðu, helst með innsigli eða gúmmí-
hring. Sótthreinsið krukkurnar með
því að sjóða þær í vatni í 10 mínútur.
Hellið á krukkurnar og skiljið um 1
cm eftir að lokinu. Raðið í pott, hellið
yfir vatnið þannig að það rétt hylji
lokin. Látið suðuna koma upp, setjið
lok á pottinn, lækkið hitann þannig
að suðan rétt haldist og sjóðið í 2
1/2 klukkustund. Fjarlægið varlega,
látið kólna og geymið í ísskáp. Ágætt
er að geyma þetta í mánuð til þess
að leyfa bragðinu að þroskast.
Til þess þarf þó að hafa myndast
undirþrýstingur í krukkunni og lokið
smollið niður. Ef ekki er fínt að borða
þetta fljótlega. Annars ætti þetta að
geymast í einhverja mánuði.
Uppskrift
• 1 kg íslenskt hreindýrahakk –
helst feitt
• 500g hreindýralifur
• 300g smjör
• 7 hvítlauksrif
• 2 laukar
• 4 egg
• 250ml rjómi
• 250ml portvín
• 20 einiber
• 30g salt
• 2 msk ferskt blóðberg
• 1 msk fennel fræ
• 1 tsk hvítur pipar
• ½ tsk engifer
• ½ tsk mace
• ½ tsk kóriander
Nú þegar búið er að kveikja á fyrsta kertinu í aðventukransinum er kominn tími til að fara að
huga að jólakæfunni. Fréttatíminn fékk Jón Þór Finnbogason, verkfræðing og matreiðslumann, til
að reiða fram uppskrift að hreindýrapaté.
Jón Þór undir-
býr lifrina fyrir
hakkavélina.
Ljósmyndir/Hari
Hráefnið fer allt í gegnum hakkavélina.
Það er síðan sett á krukkur og þær eru
að síðustu soðnar í vatni í tvær og hálfa
klukkustund. Ljósmyndir/Hari