Fréttatíminn - 10.05.2013, Blaðsíða 2
Pétur
Gunnarsson
petur@
frettatiminn.is
Er ofnæmið að trufla?
Cetirizin-
ratiopharm
Fljótt að virka
Við einkennum
frá augum og nefi
Við einkennum
langvarandi ofsakláða
Notkunarsvið: Cetirizin-ratiopharm inniheldur cetirizin tvíhýdróklóríð,
ofnæmislyf fyrir fullorðna og börn frá 6 ára aldri; til að draga úr einkennum
frá nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs; til
að draga úr einkennum langvarandi ofsakláða. Frábendingar: alvarlegur
nýrnasjúkdómur, ofnæmi fyrir virka efninu, einhverju öðru innihaldsefni
Cetirizin-ratiopharm eða fyrir hydroxyzini eða píperazín afleiðum. Varúð: Einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi, með
flogaveiki eða sem eiga á hættu að fá krampa skulu láta lækninn vita áður en lyfið er notað. Hætta þarf töku lyfsins þremur
dögum áður en farið er í ofnæmishúðpróf. Meðganga og brjóstagjöf: Forðast skal notkun lyfsins. Skömmtun: Fullorðnir
og unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag. Börn 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er
5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag. Sjá frekari upplýsingar í fylgiseðli. Algengar aukaverkanir: Þreyta, munnþurrkur, ógleði,
niðurgangur, svimi, höfuðverkur, syfja, kokbólga og nefkvef. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Júlí 2012.
Nú 100 töflur án lyfseðils!
Hreinsunarstarf gekk vel í Bláfjöllum
Þ að er stór hópur hér á Seltjarnar-nesinu kominn í kraftlyftingarnar. Þar á meðal eru framakonur með
börn og buru sem hafa orðið alveg heill-
aðar af þessu sporti,“ segir María Björk
Óskarsdóttir, viðskiptafræðingur og rit-
höfundur með meiru.
María er einn skipuleggjenda fyrsta Ís-
landsmeistaramótsins í klassískum kraft-
lyftingum sem haldið verður í íþróttahúsi
Seltjarnarness á morgun, laugardaginn
11. maí klukkan 10. Þetta er í fyrsta sinn
sem keppt er í klassískum kraftlyftingum
hér á landi. „Munurinn á klassískum
kraftlyftingum og þeim hefðbundnu er að
við keppum „á kjötinu“, án alls aukabún-
aðar eins og sérstakra bróka og bola,“
segir María.
Mótið verður fjölmennasta kraftlyft-
ingamót sem haldið hefur verið á Íslandi.
Fimmtíu keppendur eru skráðir til leiks,
sá yngsti er 15 ára strákur en sá elsti er
48 ára kona. Sjálf er María Björk 45 og að
keppa á sínu fyrsta móti eins og margir
keppenda.
„Ég byrjaði fyrir fjórum árum. Þá fór
ég til einkaþjálfara
til að koma mér
í gott form og
lenti hjá Ingi-
mundi Björg-
vinssyni sem
er ótrúlega
flottur kraft-
lyftingakappi.
Þá vaknaði
áhuginn og
ég fór bæði að
stunda ólymp-
ískar lyftingar
og klassískar lyftingar
og náði góðum árangri. Svo
eignaðist ég fjórða barnið inni
á milli. Ég hélt áfram að lyfta
alla meðgönguna en öllum æf-
ingum var stillt í hóf. Nú er ég
búin að æfa markvisst síðan
síðasta haust og er til í slag-
inn þó ég sé líka stressuð.“
Karlmaður
í varðhaldi
grunaður
um morð
Karlmaður situr í
gæsluvarðhaldi á
Egilsstöðum, grun-
aður um að hafa
orðið Karli Jónssyni
frá Galtastöðum að
bana aðfaranótt
þriðjudags. Karl var
með mörg stungusár
og blæddi honum út.
Rannsókn málsins
er í fullum gangi
hjá lögreglunni á
Egilsstöðum. Búið er
að ræða við fjölda
manns sem býr í
sama fjölbýlishúsi og
mennirnir tveir, sem
voru nágrannar. Mað-
urinn sem situr í varð-
haldi hefur ekki játað
aðild að láti Karls.
Hann situr í varðhaldi
til 21. maí og búið er
að taka eina formlega
skýrslu af honum.
Lögregla hefur lagt
hald á ýmsa muni og
verið er að rannsaka
hvort einn þeirra sé
morðvopnið. -eh
Hjörtur
hjálpar
hjartveikum
börnum
Nýtt hjartaóm-
skoðunartæki hefur
formlega verið tekið
í notkun á Barnaspít-
ala hringsins. Tækið
kallast Hjörtur og var
safnað fyrir tækinu í
þjóðarátakinu Á allra
vörum árið 2011. Í
tilkynningu frá Neist-
anum, styrktarfélagi
hjartveikra barna,
segir að tækið geri
læknum kleift að
greina hjartagalla
í fæddum og
ófæddum börnum
bæði fyrr og betur.
Með Hirti er hægt
að skoða hjartað
í þrívídd og eru
myndgæði meiri en
áður hefur þekkst.
Þá eykst hagræði
við gagnavinnslu
og hægt verður
að skoða gögn úr
tækinu hvar sem
er, innan sem utan
spítalans. -eh
Samkeppni um
háskólasvæðið
Jón Gnarr borgarstjóri og Kristín
Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands,
hafa undirritað viljayfirlýsingu um
að borgin og háskólinn standi saman
að samkeppni um framtíðarskipulag
háskólasvæðisins. Áætlað er að sam-
keppninni ljúki síðar á árinu og gert er
ráð fyrir að í framhaldinu verði gert
rammaskipulag af háskólasvæðinu
sem verður hluti af staðfestu aðal-
skipulagi borgarinnar.
Í samkeppninni er jafnframt gert ráð
fyrir að tekið verði mið af stefnumótun
borgarinnar og Háskóla Íslands á sviði
umhverfis-, auðlinda- og samgöngu-
mála og einnig haft til hliðsjónar
markmið Háskóla Íslands og Norræna
hússins um friðland í Vatnsmýri sem
náttúruperlu í borg. Þá á að gera ráð
fyrir allt að 400 nýjum stúdenta-
íbúðum á háskólasvæðinu og bættri
nýtingu vestan Suðurgötu í samræmi
við aldarafmælisyfirlýsingu Háskóla
Íslands og Reykjavíkurborgar. -eh
Ferðalög ari TrausTi guðmundsson á leið í skemmTi- og skoðunarFerð Til suðurskauTslandsins
Þetta verður „impróviserað“ frá degi til dags
Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísinda-
maður og forsetaframbjóðandi, er á leið til
Suðurskautslandsins. Ferðamátinn verður
annar en hjá Vilborgu Önnu Gissurar-
dóttur, sem fór gangandi Suðurpólinn.
Ari Trausti fer með skemmtiferðaskipi og
mun sigla í kringum suðurskautslandið,
virða þar fyrir sér fugla og sjávarspendýr,
ganga á fjöll og sinna fararstjórn fyrir
íslenska ferðafélaga í hópferð á vegum
Bændaferða.
„Ég hef aldrei áður komið til Suður-
skautslandsins,“ segir Ari Trausti, sem
hefur farið víða og stóð á tindi Hengilsins
þegar Fréttatíminn hringdi í hann. Þang-
að var hann kominn eftir göngu með vini
sínum, sem er sendiherra Ítala á Íslandi.
Ari Trausti segir að það verði skemmti-
legt að koma á Suðurskautslandið en
þangað verður siglt með skemmtiferða-
skipi frá syðsta odda Argentínu. Alls verð-
ur skipið 9-10 daga á sjó. „Þetta verður
„impróvíserað“ frá degi til dags og fólk fer
í land þar sem aðstæður á ísnum leyfa,“
segir Ari Trausti.
Það verður hávetur á Íslandi en sumar
á Suðurskautslandinu í janúar: „Þarna
verður lífið að blómstra, selirnir að kæpa
og mörgæsirnar á fullu við að unga út og
töluvert af hvölum og það líf, sem þarna
er, blómstrar akkúrat á þessum tíma,“
segir Ari Trausti, sem vonast til að geta
líka farið á kajak og gengið á fjöll meðan á
ferðinni stendur.
Lífið er löngu farið að ganga sinn vana-
gang hjá Ara Trausta eftir forsetafram-
boðið í fyrra, hann sinnir jarðvísindum og
umhverfismálum, er að leggja lokahönd á
bók um sín ferðalög og undirbýr tökur á
vísindaþáttum fyrir sjónvarp.
Ari Trausti fer með hóp Ís-
lendinga á skemmtiferðaskipi til
Suðurskautslandsins. Ljósmynd/
Ragnar Th. Sigurðsson
kraFTlyFTingar 45 ára Fjögurra barna móðir keppir í kraFTlyFTingum
Ég hélt áfram að
lyfta alla með-
gönguna en
öllum æfingum
var stillt í hóf.
Maður þarf ekki að vera
þungur til að geta lyft þungu
Fyrsta Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum verður fjölmennasta kraftlyfingamót
sem haldið hefur verið á Íslandi. Áberandi margar konur keppa í öldungaflokki. Einn
skipuleggjenda þurfti að breyta æfingum sínum þegar hún gekk með sitt fjórða barn.
Hefurðu einhverja skýringu á því af hverju lyft-
ingar njóta sífellt meiri vinsælda?
„Fólk er bara að uppgötva hversu góðar, alhliða
æfingar þetta eru. Það á sérstaklega við um klass-
ískar kraftlyftingar. Fólk hefur haft þá ímynd að
kraftlyftingar séu bara fyrir stóra menn og miklar
konur en maður þarf ekki að vera þungur til að
geta lyft þungu.“
Keppt er í þremur greinum, hnébeygju, bekk-
pressu og réttstöðulyftu. María hefur sett sér þau
markmið að lyfta 90 kílóum í hnébeygju, 110 í rétt-
stöðulyftu og 55 í bekkpressu. „En svo eru aðrir
sem stefna mun hærra,“ segir hún.
María Björk hefur síðustu misseri unnið að verk-
efninu Nýttu kraftinn ásamt Sigríði Snævarr sendi-
herra. Þær hafa starfað með fjölda atvinnuleitenda
og hvatt þá áfram. „Það er ýmislegt sem maður
nýtir kraftinn í. Kraftlyfingarnar hjálpa, ég kæmist
ekki í gegnum daginn án þess að búa mér til orku.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
María Björk Óskars-
dóttir starfar sem við-
skiptafræðingur og er
annar aðstandenda Nýttu
kraftinn. Hún keppir á
Íslandsmeistaramótinu í
klassískum kraftlyftingum
í íþróttahúsi Seltjarnar-
ness á morgun, laugardag,
klukkan 10. Öllum er frjálst
að fylgjast með mótinu.
Hreinsunarstarf vegna
mengunarslyssins á
vatnsverndarsvæðinu í
Bláfjöllum í fyrradag hefur
gengið vel. 600 lítrar af
dísilolíu runnu niður á
vatnsverndarsvæðið. Óhappið varð þegar
verið var að flytja olíuna frá plani við Blá-
fjallaskála að Þríhnúkagíg. Tankur, sem
flytja átti hana í með þyrlu, losnaði úr krók,
féll til jarðar og brotnaði og innihaldið rann
út. Slökkvilið með mengunarvarnarbúnað
var kallað á vettvang og
grafa og vörubíll til að
leitast við að fjarlægja
mengaðan jarðveg. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
Orkuveitu Reykjavíkur var
kalda vatnið í krönum Reykvíkinga í góðu
lagi, þrátt fyrir óhappið. Í fyrradag voru
fjarlægðir 25-30 rúmmetrar af olíumeng-
uðum jarðvegi á svæðinu. Í gær var unnið
að frekari hreinsun og var búist við því að
það næðist að hreinsa mestalla olíuna upp.
2 fréttir Helgin 10.-12. maí 2013