Fréttatíminn - 10.05.2013, Blaðsíða 62
B ítlaæðið æddi ekki fram hjá Ís-landi og áhrif hljómsveitarinnar bárust alla leið til Flateyrar þar
sem unga fólkið áttaði sig á að til væru
fleiri og öðruvísi stjörnur en sjómenn.
Nokkrir ungir menn í plássinu tóku sig
til, fjárfestu í hljóðfærum og byrjuðu að
glamra án þess að kunna nokkurn skap-
aðan hlut. Eftir miklar æfingar stigu þeir
síðan á svið byltingarárið mikla 1968 og
hljómsveitin Æfing varð til. „Við vorum
aldrei besta band í heimi en við kunnum
að skemmta okkur og öðrum,“ segir
Siggi Björns.
„Það skipti engum togum að bandið
lagði ballamarkaðinn á Vestfjörðum
undir sig og drottnaði yfir honum næstu
tuttugu árin.“ Siggi steig fyrst á svið
með Æfingu árið 1971 aðeins fjórtán
ára gamall en stóri bróðir hans var í
sveitinni.
„Æfingarárin einkenndust af frelsi,
mikilli vinnu, drykkju, slagsmálum og
kappökstrum,“ segir Siggi. „Þetta var
í þá daga þegar skipin voru úr tré og
karlarnir úr stáli og stemningin fylgdi
Æfingu sama hvar hún tróð upp.“
Til eru ótal sögur af yfirfullum félags-
heimilum þar sem fólk skreið meðal
annars inn um klósettglugga til þess
að komast að eftir að allt var orðið fullt.
Enda var þetta í þá daga þegar ekki
tíðkaðist að svipta hús öllum leyfum
fyrir að vera skemmtileg, eins og Siggi
orðar það.
Siggi segir Æfingu hafa starfað með
hléum en hún hafi þó aldrei lognast
alveg útaf. „Málið er svo að við komum
saman til þess að minnast Danna tromm-
ara, Kristjáns Jóhannessonar, sem hafði
látist rúmu ári fyrr. Þá birtist bara svo
mikið af fólki til að hlusta á okkur, alls
konar lið sem maður hafði ekki séð í
áratugi. Þá varð mér ljóst félagslegt gildi
hljómsveitarinnar og ég fór að semja lög
og athuga hvort ég ætti eitthvað í skúff-
unum sem ætti við. Við ákváðum svo að
henda í plötu í tilefni af 45 ára afmæli
sveitarinnar.“
Æfingarmenn fengu Fjallabróðurinn
Halldór Gunnar Pálsson til liðs við sig og
hafa skemmt sér konunglega. „Hann er
snillingur, mikið ljúfmenni og fær tón-
listarmaður þannig að þetta er búið að
vera helvíti skemmtilegt ferli. Við eigum
eftir að gera eitthvað meira. Hann losnar
ekkert við mig á næstunni,“ segir Siggi
sem hefur búið í Þýskalandi í tíu ár en
kemur á æskuslóðirnar um hvítasunn-
una en Æfing treður upp á Flateyri
laugardaginn 18. maí.
Siggi hvetur alla Flateyringa, hvar sem
þeir eru staddir, til þess að drífa sig heim
í tæka tíð og upplifa stemninguna sem var
í þorpinu í þá daga þegar allt gekk vel og
hver dagur var öðrum betri. „Textarnir
fjalla mikið um stemninguna á þessum
árum,“ segir gullaldarpopparinn Siggi
Björns og er hvergi nærri hættur.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Æfing Hressir ellismellir frá flateyri
Vorum aldrei
besta band í heimi
Flateyri varð ekki útundan þegar bítlaæðið gekk yfir heimsbyggðina. Nokkrir ungir menn í
þorpinu drukku í sig söngva fjórmenninganna frá Lifrarpolli, keyptu sér hljóðfæri án þess að
kunna nokkuð fyrir sér. Þeir köstuðu síðan upp á hver ætti að spila á hvaða hljóðfæri og hljóm-
sveitin Æfing var til. Siggi Björns hefur verið aðalsprautan í bandinu síðustu áratugi og til þess
að fagna 45 ára afmæli sveitarinnar, sem tryllti lýðinn fyrir vestan á árum áður, hefur hann
gefið út plötu með félögum sínum. Flateyringum og nærsveitarmönnum til ómældrar ánægju.
Æfingar-
árin ein-
kenndust
af frelsi,
mikilli
vinnu,
drykkju,
slags-
málum
og kapp-
ökstrum.
Æfing eins og hún er í dag. Skipuð Árna Benediktssyni, einum stofnendanna, Jóni Ingiberg Guðmundssyni, Sigga Björns, Ás-
birni Þ. Björgvinssyni og yngsta meðlimnum Halldóri Gunnari.Listamaðurinn Atli
Viðar Engilbertsson
sýnir verk sín, sem
hann vinur meðal
annars úr pappa, á
sýningunni List án
landamæra á Akureyri
en hann er listamaður
þessarar hátíðar þetta árið. List
án landamæra er árlegur við-
burður sem miðar að því að kynna
verk fólks með fötlun og koma á
samstarfi milli fatlaðs og ófatlaðs
listafólks.
„Ég er ekki fatlaður lengur en
glímdi við andlega röskun,“ segir
Atli Viðar sem var mjög þunglynd-
ur. Hann segist ekki síst hafa unnið
sig upp úr þunglyndinu með tíðum
greinaskrifum í Morgunblaðið og
víðar um meðal annars geðheil-
brigðismál og pólitík.
Hann sinnti list sinni, myndlist
og tónlist, þegar hann átti góð tíma-
bil í þunglyndinu en er nú kominn á
fleygiferð og lætur ekkert aftra sér.
„Ætli það megi ekki segja að ég
notist mest við hráefni sem aðrir
líta á sem rusl en ég vinn mikið
með pappa.“ Atli Viðar
sýnir meðal annars
forláta pappakórónur á
sýningunni í Síðuskóla
en þar getur einnig að
líta forláta gítar sem
í raun sameinar tvö
helstu áhugamál hans.
„Ég var búinn að búa til pappa-
gítar sem leit út eins og rafgítar en
vildi fara alla leið og geta látið heyr-
ast í honum. Ég átti gamlan rafgítar
sem ég tók og breytti útlitinu á
honum í þessum anda.“
Atli Viðar segist fikta við gítar-
spil en trommur séu hans hljóð-
færi og hann hefur trommað síðan
í æsku. „Ég er búinn að semja hell-
ing af tónlist og hef sett eitthvað
af því á netið en er ekki enn búinn
að gefa út plötu, hvað sem síðar
verður.“
Atli Viðar segist ekki hafa skrif-
að blaðagrein lengi en þau skrif
hans hafi þróast út í leikritaskrif.
„Það er gaman að segja frá því að
Leikfélag Akureyrar stefnir að því
að setja saman með mér dagskrá
næsta haust.“ -þþ
eyþór ingi Hress í malmö
Læri kannski að syngja seinna
Undankeppni Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva hefst á þriðjudagskvöld
þegar fyrri forkeppnin fer fram. Eyþór
Ingi, fulltrúi Íslands, stígur á svið í
seinni forkeppninni á fimmtudagskvöld
og freistar þess að syngja sig í aðal-
keppnina með laginu Ég á líf eftir Örlyg
Smára og Pétur Örn Guðmundsson.
Eurovisiongeggjararnir á vefsíðunni
Esctoday eru mættir til Malmö og þeir
náðu tali af Eyþóri eftir fyrstu æfingu.
Okkar maður var hress og sagðist
aðspurður aldrei hafa lært söng en
kannski kæmi að því að hann myndi
gera það síðar. Hann sagðist einfald-
lega hafa komist þangað sem hann er
með æfingunni og að hann reyndi að
endurtaka sig aldrei. Fari allt að óskum
mun hann þó í það minnsta syngja lagið
tvisvar fyrir framan sjónvarpsvélarnar
og ætla má að þjóðin muni meira eða
minna öll sitja límd við skjáinn þegar
Eyþór tekur lagið á fimmtudaginn en
keppnin nýtur hvergi í heiminum meiri
vinsælda en á Íslandi.
Samkvæmt rafrænum mælingum
horfðu 92,3% þjóðarinnar á Jóhönnu
Guðrúnu flytja Is it True? árið 2009 sem
er Íslandsmet en samkvæmt mælingum
síðustu fimm ára jaðrar við að Íslend-
ingar eigi heimsmet í Eurovision-glápi.
Ríkissjónvarpið tekur vitaskuld
mið af þessu og byrjar Eurovision-
veislu sína um helgina með tvöföldum
skammti af þættinum Alla leið á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Leiðin til
Malmö, tveir þættir um undirbúning og
ferð íslenska hópsins til Svíþjóðar, verða
sýndir á mánudags- og miðvikudags-
kvöld og á föstudagskvöld hita Euro-
visionstjörnurnar Friðrik Ómar, Regína
Ósk og Selma Björnsdóttir upp fyrir
stóru stundina á laugardagskvöld með
því að syngja helstu Eurovisonperlur
sögunnar í þættinum Saga Eurovison.
Örlygur Smári, höfundur Ég á líf, smellti þessari mynd af Eyþóri
Inga og föruneyti hans á fyrstu æfingunni í Malmö.
atli Viðar skrifaði sig upp úr þunglyndi
Skapar list úr pappa
Atli Viðar í góðri
sveiflu með breytta
rafgítarinn sem er
orðinn að sannköll-
uðu listaverki.
62 dægurmál Helgin 10.-12. maí 2013