Fréttatíminn - 10.05.2013, Blaðsíða 13
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-0
5
2
2
NÝSKÖPUN EYKUR
VERÐMÆTI
Arion banki styður við nýsköpun í atvinnulífinu
Fjölmörg fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka hafa nýsköpun
að leiðarljósi í sinni viðskiptaþróun og eru að ná eftirtektar-
verðum árangri.
Við bjóðum þér á námskeið
Mörg framsæknustu fyrirtæki heims nota Business Model Canvas
við að þróa starfsemi sína og efla nýsköpun. Við bjóðum þér á
námskeið um Business Model Canvas í höfuðstöðvum Arion banka
30. maí nk. kl. 9–10.30.
Skráning og nánari upplýsingar á arionbanki.is.
NEYÐARLÍNAN 112
NÝTT SNJALLSÍMAFORRIT
EYKUR ÖRYGGI FERÐAFÓLKS
Bjarni Benediktsson
„Bjarni gerði margt ágætlega í þessari kosningabaráttu, hann er
frambærilegur en þarf að slípa til hvernig hann talar. Hann nær
ekki alveg nógu vel til fólks en sýndi í nokkur skipti að hann getur
það alveg, sérstaklega gekk honum það vel í frægu viðtali við
RÚV.
Þegar hann leyfir sér að vera svolítið ófullkominn þá nær
hann vel til fólks og þarf að leyfa sér það oftar. Ég held að hann
geti náð mjög mikilli tengingu við fólk ef hann fer að hugsa þetta
markvisst. Einlægur og geislandi getur hann verið hrífandi en
lengi vel í kosningabaráttunni var hann það ekki. Einlægnin er
hans sterkasta vopn, jafnvel í meiri mæli en hjá öðrum. Þegar
Katrín Jakobsdóttir er einlæg þá bætir hún litlu við, því menn eiga
engu öðru en venjast frá henni. En Bjarni getur litið á þetta sem
markvissa leið.
Ástæðan fyrir því að útkoma Bjarna varð ekki betri en raun bar
vitni - þetta var næstlélegasta útkoma flokksins í þingkosningum
- er kannski fyrst og fremst sú að það brunnu mál úr fortíðinni á
Bjarna, líkt og á Árna Páli. Fólk var hugsandi eftir landsfundinn
um hluti eins og þá hvort Sálfstæðisflokkurinn ætlaði virkilega að
fara að taka upp trúargildi eins og bandaríska teboðshreyfingin.
Sjálfstæðismenn náðu aldrei að svara þessu. Bjarni átti að
taka þessi mál upp og tala um þau opinskátt og viðurkenna
umræðuna.
Þegar fólk skynjar að leiðtoginn hefur styrk til að tala um
vandamálin, þau pirra hann ekki og hann vill tala um þau; þann
daginn byrjar leiðtogi að yfirstíga vandann og vinna ný lönd.
Bjarni brást pirraður við þegar talað var um þátt sjálfstæðis-
manna í hruninu í stað þess að taka umræðuna og
sýna fólki að flokkurinn væri að vinna fyrir almenn-
ing en ekki gamlar klíkur.
Fólk skynjaði að það var eitthvað óhreint þarna
og var kannski í vafa um hvort Bjarni væri að stjórna
eða hvort gamlar klíkur væri að voma yfir. Það
ætti að vera auðvelt fyrir hann að tala um
þessi mál og viðurkenna að það eru margir
gamlir kallar í Sjálfstæðisflokknum sem
eru vanir að stjórna en þurfa að átta sig
á að það er ný kynslóð að taka við.
Almenningur gerir ekki mjög
miklar kröfur til leiðtoga, þeir þurfa
ekki að vera fullkomnir og krafan
er ekki sú að þeir megi ekki tengjast
neinu neikvæðu heldur fyrst og fremst
að þeir sýni viðleitni, horfist í augu við
hlutina og séu á réttri leið.“
Guðmundur Steingrímsson
„Ein af stóru spurningunum, sem mér finnst ósvarað, er af hverju
fékk Björt framtíð svona mikið fylgi? Ég get ekki greint að það sé neitt
sem tengist forsvarsmönnunum beint; það er erfitt að sjá að þeir
séu persónulega með sterka ímynd sem er ástæða fyrir fylginu. Það
eina sem ég get greint út frá ímyndarfræðum er að Björt framtíð var
heppin með tímasetningu, kom fram þegar andúð á gömlu flokkunum
var í hámarki og fólk var leitandi að nýjum valkosti og áður en flóðið af
nýjum framboðum kom fram.
Ég held að aðstæður og tímasetningin vegi þyngst enda kom í ljós
að fylgið dalaði þegar nær leið kosningum og fram komu fleiri val-
kostir til þess að veita neikvæðum tilfinningum í garð flokkakerfisins
farveg. Björt framtíð bætti reyndar aðeins við sig á lokasprettinum.
Að hluta til held ég að þau geti þakkað Árna Páli fylgisaukningu
síðustu dagana. Árni Páll náði ekki að gefa fólki nógu góða tilfinningu
og það ýtti undir að kjósendur færu í auknum mæli af Samfylkingunni
yfir á Bjarta framtíð.“
Hvernig leiðtogi er Guðmundur Steingrímsson?
„Framan af áttuðu sig ekki allir á hvort hann væri leiðtoginn eða
Heiða Kristín Helgadóttir, eða jafnvel Róbert Marshall. Það var engin
hrein leiðtogaímynd. Það var fyrst síðustu tvær vikur baráttunnar sem
fólk áttaði sig almennt á að Guðmundur væri leiðtoginn á landsvísu.
Guðmundur er þess vegna ennþá með frekar hlutlausa ímynd, hann
hvorki hrífur fólk né skapar neikvæða ímynd þegar hann talar. Hann
fær prik fyrir það að hann gerði ekkert sem hafði neikvæð áhrif í kosn-
ingabaráttunni, hélt sjó og komst hjá því að gera sérstök mistök.
En Guðmundur þarf sterkari ímynd, hún er ennþá stráksleg. Það
er ennþá svolítið háskóla- og Röskvuyfirbragð yfir
honum. Hann þarf að þroskast sem leiðtogi og fá meiri
þungavikt til að fólk trúi að hann geti stýrt og stjórnað.
Það er mikilvægt fyrir leiðtoga að kunna að koma fyrir
sig orði, ég tala ekki um ef þeir eru hrífandi og hnyttnir.
Þetta er ekki öllum gefið en það er hægt tileinka
sér þetta upp að ákveðnu marki.
Guðmundur hefur ákveðna for-
gjöf vegna pabba síns og afa sem
báðir voru forsætisráðherrar.
Ennþá er lítið farið að reyna
á þetta. Ef Guðmundur kann
að nýta sér þetta gæti það
hjálpað til en því aðeins að
ímyndin sé sterk að öðru
leyti. En ef ímyndin er ekki í
lagi gæti samanburðurinn orðið
neikvæður.“
Katrín Jakobsdóttir
„Katrín gerði margt mjög vel. Aðalgallinn
fyrir VG var sá að hún kom svo seint fram
sem formaður. Hún hefur þá náðargáfu
að vekja traust og góða tilfinningu. Hún
hefur góða nærveru og það er gott að
hlusta á hana, það geislar af henni og hún
kann vel að koma fyrir sig orði, er hrífandi
þegar hún talar og án þess að vera með
mesta hávaðann kemur hún stundum með
veigamestu setningarnar; hún kann að tala
í þungavikt, það kemur ekki frá henni nein
froða, hún talar og fólk hlustar og hún
virkar vel á fólk langt út fyrir sinn flokk.
Það vantar ennþá svolítið á hennar
þungaviktarímynd en líklega fyrst og
fremst hjá þeim sem eru ósamála henni.
Ég hef trú á að hún geti öðlast það sem á
vantar. Það eru enn á ferð gömul gildi karl-
rembu, sem eru sem betur fer á útleið úr
samfélaginu; til marks um þau var þegar
Davíð Oddsson talaði um Katrínu sem
“gluggaskraut”. Ég held að það hafi alls
ekki hitt í mark enda er ekkert í hennar
ímynd sem tengist yfirborðsmennsku. Al-
veg óháð stjórnmálaskoðunum tengir fólk
hana ekki við það. Ég held að fleiri og fleiri
séu að uppgötva að það er jafnvel
enn meira í Katrínu spunnið
en menn hugðu í byrjun.
Það má segja að hún hafi
mesta náttúrutalentinn af
stjórnmálaleiðtogunum;
hún og reyndar
Sigmundur Davíð.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
„Sigmundur hefur töluvert af náttúrutalent
og hefur margt til brunns að bera sem
leiðtogi. Hann hefur áheyrilegan talanda
og er viðkunnanlegur; hefur mikla mál-
greind, kann að koma fyrir sig orði og
halda ró sinni.
Hann verður jafnvel enn rólegri þegar
hann talar um erfið mál sem vekur traust.
Sjónvarpsreynsla hjálpar honum áreiðan-
lega en þetta er samt ákveðin náðargáfa
sem ekki er hægt að búa til úr engu þótt
hægt sé að styrkja hana mikið. Guðmundur
Steingrímsson getur til dæmis átt talsvert
inni með því að bæta sig á þessu sviði.
Þannig að ég tel að sá þáttur sé í góðu
lagi hjá Sigmundi að flestum finnst hann
aðlaðandi þótt margir hafi hlutlausari eða
neikvæðari mynd gagnvart því – og ég
gæti trúað að fleiri konur en karlar væru í
þeim hópi.
Hvað varðar það hvort hann hafi þá
þungavikt sem þarf til að stýra þjóðarskútu
þá tel ég að hann hafi jákvæða ímynd að
því leyti og að fólk trúi að hann geti það.
Hann er hins vegar óskrifað blað að því
leyti og á ekki mikla inneign þannig að
hann má ekki misstíga sig
mig mikið án þess
að ímyndin
geti þróast á
annan veg.“
fréttaskýring 13 Helgin 10.-12. maí 2013