Fréttatíminn - 10.05.2013, Blaðsíða 70
6 hjólreiðar Helgin 10.-12. maí 2013
KYNNING
H vellur á 25 ára afmæli í ár og er því ein elsta reiðhjólaverslunin hér á
landi. Eigendur Hvells flytja sjálfir
inn allar vörur sem boðnar eru í
versluninni og er mikil áhersla
lögð á gæði og þjónustu. „Allar
vörurnar okkar eru prófaðar og
viðurkenndar, bæði í Bandaríkj-
unum og á Evrópska efnahags-
svæðinu. Þá bjóðum við upp á
viðgerðarþjónustu fyrir allar teg-
undir reiðhjóla og erum með stór-
an lager af vara- og aukahlutum
fyrir reiðhjól,“ segir Guðmundur
Tómasson, framkvæmdarstjóri og
eigandi Hvells.
Flytja líka inn snjókeðjur
Guðmundur segir stærsta vöru-
liðinn í versluninni vera reiðhjól
af öllum stærðum og gerðum
sem henta fólki á öllum aldri. En
verslunin selur líka sláttuvélar
og vélaorf í nokkrum tegundum
ásamt snjókeðjum. „Hvellur hefur
til margra ára verið umfangsmik-
ill innflutningsaðili á snjókeðjum
fyrir allar stærðir hjólbarða ásamt
tengdri varahluta- og viðgerðar-
þjónustu. Við seljum snjókeðj-
urnar OFA frá Finnlandi, RUD
frá Þýskalandi og VERIGA frá
Slóveníu.“
Hvellur selur mörg háklassa
hjólamerki. „Við erum til dæmis
með merkið FUJI sem kemur
upprunalega frá Japan þar sem
fyrirtækið hóf fjöldaframleiðslu
á reihjólum árið 1899, fyrst allra,
en merkið er nú orðið bandarískt.
Þá erum við með merkið PUKY
sem er þýskt og framleiðir barna-
hjól, hlaupahjól og jafnvægishjól
Hvellur Mið tekið af ólíkuM þörfuM viðskiptavina
25 ára reiðhjólaverslun
Verslunin Hvellur er ein elsta reiðhjólaverslun landsins. Eigendur Hvells flytja sjálfir inn allar vörur í versluninni.
í miklu úrvali. Við erum einnig með
danska merkið KILDEMOES sem hefur
lengi fengist í Hvelli og KED sem fram-
leiðir og hannar öryggishjálma af öllum
gerðum, þá sérstaklega reiðhjólahjálma,
skíðahjálma og reiðhjálma,“ segir Guð-
mundur.
Ólíkar þarfir viðskiptavina
Starfsemi Hvells hófst í Grenivík í
Eyjafirði um miðbik níunda áratugarins,
sem verktakafyrirtæki í eigu frænd-
anna Ásgeirs Kristinssonar og Óskars
Valdimarssonar. „Árið 1988 skildu leiðir
þeirra, en þá flutti Óskar til Reykjavíkur
og tók nafnið með sér inn í nýjan rekstur
sem fólst í sölu á snjókeðjum og slíkri
þjónustu. Þegar frá leið bættust garð-
sláttuvélar og reiðhjól við vörur sem
verslunin seldi. Þrátt fyrir að vægi snjó-
keðja hafi minnkað, í seinni tíð, vegna
aukinnar notkunar vetrar- og nagla-
dekkja, þá er hlutur þeirra enn mjög
ríkulegur í starfseminni, en þjónustan er
þó orðin sérhæfðari,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir mikilvægt að tekið
sé mið af ólíkum þörfum viðskiptivina
ásamt því halda vörunum á ásættanlegu
verði. „Sumir sækjast eftir reiðhjólum
sem daglegu farartæki, á meðan aðrir
vilja eingöngu nota þau sem holla af-
þreyingu. Þá eru enn aðrir sem nýta sér
hjólið sem líkamsræktartæki.“ Hann seg-
ir mikilvægt að rétt hjól sé valið eftir því
hvernig á að nota það. „Helstu breytur
sem skilja á milli hjóla snúast um þæg-
indi, endingu, lit, áferð, efnisval og styrk-
leika þar sem grófleiki dekkja, dempun
ásamt bremsu- og gírbúnaði skiptir
mestu máli. Þá geta stell eða grindur ver-
ið breytilegar að lögun, stærð
og lit, auk þess sem hnakkar
eru fyrirliggjandi í mismunandi
áferðum og stífleikum.“
Verslun, varahlutalager og
verkstæði Hvells er staðsett að
Smiðjuvegi 30 í Kópavogi. Þá
má nálgast vöruúrval versl-
unarinnar á www.hvellur.is.
Áhugasamir geta haft samband
við starfsmenn Hvells í síma
5776400 eða með tölvupósti
á netfangið hvellur@hvellur.
com. -ss
Guðmundur Tómasson, framkvæmdarstjóri og eigandi Hvells. Við erum til
dæmis með merkið FUJI sem kemur upprunalega frá Japan þar sem fyrir-
tækið hóf fjöldaframleiðslu á reihjólum árið 1899, fyrst allra. Ljósmyndir/Hari
Gæðahjól frá FUJI
Smiðjuvegi 30 - 577 6400 - 200 Kópavogur
Fujibikes.com - hvellur.com - hvellur@hvellur.com
Verðin eru frábær
Landsþekkt viðgerðarþjónusta
Hjólað
u í vin
nuna
á
FUJI g
æðah
jóli
frá Hv
elli
Aðeins
77.583
Aðeins
67.880
Aðeins
59.857
Aðeins
38.177
138.768
99.061
52.108
86.626
Fuji Nevada 1.9
D Fjallahjól
Álstell 21 gír
Shimano, D
iskabremsur
120 mm Fram
dempari still
anlegur
Fuji Dynamite
24
Álhjól 24” 8
– 10 ára, 21
gír Shimano
Fuji Traverse 1.
1 Hybrid
Álstell 700 (2
8”), 27 gíra S
himano
Deore, Gluss
a diskabrem
sur
Fuji Crosstown
3.0
Álstell 700 (2
8”) 21 gír Sh
imano
Comfort me
ð dempara í
hnakk
SE Qadangle
Park freestyl
e
SE Wildman Pr
o
Dirt/Street fr
eestyle
Fuji Traverse 1.
3 Hybrid
Álstell 700 (2
8”) 24 gíra
Shimano Ac
era
Fuji Fazer
20 tommu 6
–8 ára, álhjó
l,
fótbremsa, h
andbremsa
Fuji Classic Lux
fótbremsan gó
ða
Mikill öldi d
ömu og herr
ahjóla með
fótbremsu o
g innbyggðu
m 7 gírum.
25 ÁRA
1988 - 2013
Gæðahjól frá FUJI