Fréttatíminn - 10.05.2013, Blaðsíða 16
Þú getur tekið þátt í að uppræta ofbeldi gegn konum
Hryllilegur pistill
O kkur er eðlislægt að bægja frá okkur því sem er óþægilegt. Líf-ið er svo miklu einfaldara þegar
við hugsum bara um það sem er gott.
Ég vara þig núna við: Það verður
erfitt að lesa þennan pistil.
Einhverjum finnst það kannski
fjarstæðukennt en einmitt núna
eru konur í Indlandi að reyna að
finna lífsgleðina eftir að sýru var
hellt yfir andlit þeirra. Sumar
þeirra misstu sjón, aðrar málið.
Allar eru þær svo afskræmdar að
börn óttast þær, enginn vill ráða
þær í vinnu og því síður giftast
þeim. Sumum þessara kvenna
hefur tekist að finna andlegan
styrk til að vinna á sorginni
og brosa á ný. Tvær íslenskar
kvikmyndagerðarkonur segja frá
því hér í Fréttatímanum að þær
eru að vinna heimildamynd um
þessar konur og hvernig þær heilluðust
af gleði þeirra.
Heimsbyggðin hefur beint kastljós-
inu að Indlandi að undanförnu í kjölfar
hrottalegrar hópnauðgunar í strætis-
vagni í Nýju-Delhi þar sem konan lést
síðar af áverkunum. Við höfum lesið
fréttir um að fjögurra ára telpu hafi verið
nauðgað og henni síðan fleygt eins og
hverju öðru rusli nálægt líkbrennslu.
Hún dó í lok apríl. Þegar þú lest þessar
línur er fimm ára stúlka á sjúkrahúsi
á Indlandi eftir nauðgun. Henni var
rænt og hún hafði verið pyntuð í tvo
sólarhringa þegar hún fannst grátandi
í læstri íbúð. Eigandi íbúðarinnar hefur
verið handtekinn. Hann segist hafa flúið
því hann hélt að stúlkan væri dáin.
Roskin kona sem ég ræddi við um
þessa hræðilegu atburði nýverið sagði
að Indverjar væru algjörir villimenn.
Það væri bara greinilegt. Ég benti henni
á að það væri einfaldlega þannig að
þessi morð á sál og líkama rötuðu núna
í fréttir í Indlandi í stað þess að vera
áfram þaggaðir niður. En þeir eiga sér
stað víða um heim. Því get ég lofað þér.
Sautján ára stúlka fannst látin á bygg-
ingarsvæði í Jóhannesarborg fyrr á
þessu ári. Nokkrir menn höfðu nauðg-
að henni og limlest. Suður-Ameríka er
samt ekki heldur sér á báti þegar kemur
að voðaverkum gegn konum.
Í nýjum fréttum frá Bandaríkjum
lesum við um þrjár konur sem var haldið
föngnum í áratug sem kynlífsþrælum
Castro-bræðranna þriggja sem eru á
sexugsaldri. Ein konan eignaðist dóttur
í ánauðinni. Litla stúlkan er sex ára
gömul en lögreglan óttast að bræðurnir
hafi gert konurnar oftar óléttar.
Evrópa er ekki undanskilin. Við mun-
um öll enn eftir stúlkunni sem Wolfgang
Priklopil rændi tíu ára gamalli og hélt
fanginni í sérútbúnum klefa í kjallara
húss hans í nágrenni Vínar.
„Skrímslið frá Amstetten“ var hann
kallaður, Joseph Fritzl sem beitti dóttur
sína kynferðisofbeldi frá því hún var ell-
efu ára gömul, læsti hana ofan í kjallara
í á þriðja áratug og eignaðist með henni
sjö börn sem sum höfðu aldrei á ævinni
farið út úr kjallaranum þegar upp komst
um Fritzl.
Þú heldur kannski að þú getir ekki
gert neitt í þessu. Kannski treystir þú
þér ekki til að gera heimildamynd. Ef
svo er getur þú allavega gengið í Systra-
lag UN Women. Með því að láta upp-
hæð að eigin vali renna til Systralagsins
tekur þú þátt í að uppræta ofbeldi gegn
konum og stúlkum í víða um heim.
Minna má það ekki vera.
Þegar þú lest þessar línur er fimm
ára stúlka á sjúkrahúsi á Indlandi eftir
nauðgun.
Legugreining
Frí legugreining
Heilsurúm
Stillanleg
rafmagnsrúm
Rúmgott er eini
aðilinn á Íslandi
sem býður upp
á legugreiningu.
20-50%
afsl. af öllum
heilsurúmum
Þér er boðið í
fría
legugreiningu
Betri svefn - betri heilsa
Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus), Kópavogi • sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
sjónarhóll
16 viðhorf Helgin 10.-12. maí 2013