Fréttatíminn - 10.05.2013, Page 10
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Við bjóðum ölbreytt úrval innlánsreikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
M
ið
að
v
ið
ú
tg
ef
na
v
ax
ta
tö
flu
M
P
b
an
ka
1
1
. a
pr
íl
2
0
1
3
.
Fastir vextir á innlánsreikningum
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Óverðtryggðir2,5 6,3
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtumVerðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
NÝJUNG Í
LANDSLAGINU
R aungengi íslensku krónunnar hækkaði um 5,3 prósent í apríl frá fyrri mánuði á mælikvarða hlut-
fallslegs verðlags. Það er þriðji mánuður-
inn í röð sem raungengi krónunnar þróast
í þessa átt og stendur það nú í 81 stigi, sem
er hæsta gildi þess frá því í september árið
2008. „Þessa miklu hækkun á raungeng-
inu nú má nánast að öllu leyti rekja til
hækkunar á nafngengi krónunnar um 5,2%
á milli mars og apríl miðað við vísitölu
meðalgengis. Líkt og búast mátti við þá
voru verðlagsáhrifin lítil, enda hækkaði
vísitala neysluverðs um 0,2% á milli mars
og apríl sem svipar til þeirrar verðlags-
breytingar sem er að jafnaði í okkar helstu
viðskiptalöndum,“ segir Greining Íslands-
banka í mati sínu á raungengi krónunnar
miðað við þau gögn sem Seðlabanki Ís-
lands birti fyrr í vikunni.
„Hækkandi raungengi getur verið
nokkuð tvíbent sverð fyrir íslenskt hag-
kerfi um þessar mundir,“ segir enn fremur.
„Þörf er á verulegum afgangi af vöru- og
þjónustujöfnuði til að afla gjaldeyris til
greiðslu vaxta og afborgana af erlendum
skuldum. Hærra raungengi rýrir sam-
keppnisstöðu útflutningsgreina og eykur
innflutta neyslu, hvort sem er í formi utan-
landsferða eða meiri kaupa á innfluttum
varningi. Ef raungengi hækkar verulega til
viðbótar gætu þessi áhrif farið að segja til
sín í minni afgangi af utanríkisviðskiptum,
sem svo aftur leiðir á endanum til gjaldeyr-
isútflæðis og veikari krónu. Sígandi lukka
er því best í þessum efnum, frekar en
raungengið styrkist hratt á meðan enn eru
gjaldeyrishöft og ekki hefur verið rekið
smiðshöggið á uppgjör þrotabúa gömlu
bankanna, endurfjármögnun skuldabréfa
Landsbankans og fleiri mál sem talin eru
forsenda þess að hægt sé að aflétta höft-
unum.“
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu
Íslands fyrir apríl 2013 var útflutningur
51,8 milljarðar króna og innflutningur
46,7 milljarðar króna. Vöruskiptin í apríl
voru því hagstæð um 5,1 milljarð króna.
Vöruútflutningur í apríl var í grófum drátt-
um í takti við síðustu mánuði. Verð helstu
útflutningsafurða landsins, sjávarafurða
og áls, hefur átt undir högg að sækja á al-
þjóðamörkuðum, en útflutningur sjávaraf-
urða hefur aukist nokkuð vegna aukinna
aflaheimilda.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Alls fóru 45.800 erlendir gestir frá
landinu um Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar í apríl, 8.100 fleiri en þeir voru
í apríl í fyrra. Fjölgunin á milli ára
nemur rúmlega 21 prósent. Ferða-
mannaævintýrið heldur áfram því um
er að ræða fjölmennasta aprílmánuð
frá upphafi hvað erlenda ferðamenn
varðar. Met er slegið mánuð eftir
mánuð. Brottfarir erlendra ferða-
manna voru 167.900 á fyrsta þriðjungi
ársins, samanborið við 125.300 á
sama tímabili í fyrra – sem var algert
metár. Jafngildir þetta 34% aukningu,
að því er fram kemur í tölum Ferða-
málastofu Íslands. Umtalsverður
árangur hefur því náðist í að laða
fleiri ferðamenn hingað til lands utan
háannar að sumri til.
Heldur færri Íslendingar héldu utan
í apríl en í sama mánuði í fyrra, 28.100
en 28.900 á sama tíma í fyrra. Nemur
fækkunin á milli ára tæplega 3%. Alls
héldu 99.600 Íslendingar utan fyrstu
fjóra mánuði ársins miðað við 100.000
á sama tíma. Lítilsháttar fækkun
hefur því orðið milli ára. Greining
Íslandsbanka telur þó líklegt að þró-
unin á brottförum Íslendinga taki
aðra stefnu á næstu mánuðum þannig
að það fari að fjölga í hópi þeirra Ís-
lendinga sem leggja land undir fót.
„Hér spilar eðlilega sú mikla styrk-
ing sem orðið hefur á gengi krónunn-
ar, og þá að sama skapi kaupmætti
landans á erlendri grundu, stóra
rullu,“ segir Greiningin. „Líklega
hefur áhrifa af þessu byrjað að gæta
í mælingu Capacent Gallup í mars sl.
á því hversu líklegir Íslendingar eru
til þess að ferðast til útlanda á næstu
12 mánuðum. Sú vísitala hækkaði þá
um tæp 17 stig frá síðustu mælingu
sem framkvæmd var í desember sl.
Mældist vísitalan 137 stig í mars, sem
er næsthæsta gildi hennar á eftir-
hrunsárunum. Töldu rúmlega 60%
svarenda það mjög eða frekar líklegt
að þeir myndu halda [utan] á næstu
12 mánuðum, en rúmlega 29% frekar
eða mjög ólíklegt.
Ef marka má þessa niðurstöðu
virðist ferðagleði landans hafa aukist
að nýju, og eru landsmenn nokkuð
líklegri nú að láta undan útþrá sinni
næsta árið en þeir hafa að jafnaði gert
á síðustu misserum.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
FeRðamannaævintýRi apRíl enn einn metmánuðuRinn
Erlendir ferðamenn streyma til landsins utan háannar
Nýliðinn aprílmánuður
sló enn eitt metið í komu er-
lendra ferðamanna hingað
til lands.
GenGi KRónan styRKtist um 5,3 pRósent í apRíl
Þörf er á
verulegum
afgangi af
vöru- og
þjónustu-
jöfnuði til að
afla gjaldeyr-
is til greiðslu
vaxta og
afborgana
af erlendum
skuldum.
Raungengi krónunnar
ekki verið hærra frá hruni
Hækkun raungengis krónunnar gæti farið að segja til sín í minni
afgangi af utanríkisviðskiptum, sem svo aftur leiðir á endanum
til gjaldeyrisútflæðis og veikari krónu.
Hækkandi
raungengi
getur verið
tvíbent
sverð fyrir
íslenskt
hagkerfi
um þessar
mundir
að mati
Greiningar
Íslands-
banka.
10 viðskipti Helgin 10.-12. maí 2013