Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.05.2013, Síða 30

Fréttatíminn - 10.05.2013, Síða 30
FiberHusk er hrein náttúruleg, glútenfrí vara sem inniheldur 85% fæðu trefjar. Með því að bæta FiberHusk í brauð og kökur helst brauðið mjúkt og ferskt lengur. Það er léttara að vinna glútínfría vöru ef fiberHusk er notað í uppskriftina. Deigið hefast betur og glútínfría brauðið molnar minna við skurð og verður safaríkara með tilkomu fiberHusk. Bæklingur með uppskriftum fylgir pakkanum og á bakhlið pakkningar er uppskrift. Eftirfarandi verslanir selja fiberHusk: Apótek Garðabæjar, Apótek Vesturlands, Apótekið, Fræið í Fjarðarkaupum, Garðsapótek, Heilsuhúsið, Heilsutorgið í Blómavali, Lifandi markaður, Lyfja, Lyfjaval, Lyfjaver, Reykjavíkur Apótek. FRÁBÆRT Í BAKSTURINN! Fleiri uppskriftir og nánari upplýsingar eru á husk.dk www.ebridde.is Bjarney og Lína gáfu henni og mörgum öðrum kvennanna hand- gerða skartgripinn Brosarann, eða Smiler, eftir íslensku listakonuna Geggu. „Því þær voru allar bros- andi hetjur. Okkur fannst það eftir- minnilegast, hvað þær voru jákvæð- ar og glaðar,“ segir Bjarney. Unga fólkið er framtíðin Þær kynntust líka miklu uppbygg- ingarstarfi í indversku samfélagi og fengu að fylgjast með heilum barnaskóla berjast fyrir jafnrétti kynjanna. „Réttlætiskenndin er rík hjá unga fólkinu. Það er með- vitað að það eru undarlegir hlutir að gerast í samfélaginu sem þarf að uppræta,“ segir Lína og bendir á að í trúarbrögðum Indverja séu kon- ur áhrifamiklar, þar eru kvenkyns guðir og eru þeir meðal þeirra sterkustu. Í jógafræðunum er síðan lögð áhersla á virðingu fyrir öllu lífi. „Það var svo aðdáunarvert að fylgjast með ungu strákunum sem voru í réttindabaráttunni með ungu stúlkunum. Samstaða þeirra veitir manni von. Aukin menntun og upplýstari þjóð hefur leitt til þess að það skapast umræða og þessar árásir hætta að líðast, hinn upplýsti almenningur kallar eftir réttlæti,” segir Bjarney sem hefur fulla trú á ungu kynslóðinni í Indlandi. „Þeg- ar fólk er farið að safnast saman og mótmæla þá myndast þrýstingur á stjórnmálamennina sem eru farnir að vakna upp úr dvala til að hlusta og gera eitthvað,“ segir hún. Þær ræddu bæði við fulltrúa UniFem og UNwomen í Indlandi, allir sögðu að það þyrfti að grípa til áhrifaríkra aðgerða en nánari útfærsla var kannski á reiki. Lína og Bjarney hafa hingað til fjár- magnað alla vinnuna sjálfar með dyggum stuðningi fjölskyldu sinnar og gerðu allt á sem ódýrastan hátt, sváfu á gólfum og ferðuðust á ódýr- asta farrými í lestum. Nú eru þær hins vegar í startholunum að fara að sækja um styrki til gerðar mynd- arinnar enda ljóst að mikill tími á að fara í að vinna úr efninu sem er komið. Þá stefna þær á að fara aftur til Indlands og hitta konurnar á ný. „Við viljum fylgja þeim aðeins eftir og mynda þær einnig í annars kon- ar umhverfi,“ segir Lína. „Okkur langar gjarnan að það verði einhver niðurstaða í þessum málum, að það verði gert eitthvað róttækt,“ segir hún. Heimildamyndin er gerð af þessum íslensku konum en hún er hugsuð fyrir alþjóðamarkað enda á hún erindi við alþjóðasamfélagið, að sögn Bjarneyjar: „Þetta er mynd um sennilega sterkustu konur í heimi sem lifa af hrikalega árás og um það hvernig þær finna lífsneist- ann á ný. Það er eitthvað sem ég held að við öll viljum kynnast betur og læra af.” Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is hvernig þær líta út,“ segir Lína og bætir við: „Þess vegna eru þetta svo merkilegar konur. Við erum að gera myndina til að sýna hvernig þær öðlast gott líf, sýna að það er von eftir slíka árás og sýna hvað þessar konur eru sterkar,“ segir hún og ljóst er af raddblænum að hún ber gríðarlega virðingu fyrir konunum. Þær töluðu einnig við tvær systur sem ráðist var á. „Þær sváfu undir berum himni uppi á þaki á litla heimili sínu, þegar tveir strákar komu og helltu sýru yfir þær,“ segir Lína. Chanchal, 19 ára, varð fyrir alvarlegum skaða á andliti og efri hluta líkamans. Einnig fór sýra á handlegg systur hennar, Sonam, sem fæddist blind. Sonam hafði alltaf þurft að stóla á systur sína út af blindunni en þær styðja nú hvor aðra. Þessar samrýmdu systur snertu kvikmyndagerðarkonurnar í hjartastað. „Þær kvarta yfir engu og er alltaf glaðar og þakklátar,“ segir Bjarney. Enn önnur konan sem þær kynntust hefur þurft að fara í 32 lýtaaðgerðir en er alltaf jafn brosmild. Hún er einnig góð handavinnukona og hefur unnið sér inn pening í gegnum það starf. Bjarney og Lína á einum af fjölmörgum vinnufundum vegna heimildamyndarinnar á KEX hostel. Ljósmynd/Hari Bjarney myndar nemendur við Chowringhee High School í Kalkútta að undirbúa kröfugöngu um borgina. Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar “Kryddaðu” fataskápinn með fatnaði frá Ný verslun l Næg Bílastæði l Engir stöðumælar Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16 Flott "look" ! Ítalskar buxur á 10.900 kr. Str. 34/36 - 46/48 Eitt snið - einn litur - 5 týpur - munstraðar - skraut á vösum - leðurlíki á skálmum Háar í mittið - Stretch VERTU VINUR Á FACEBOOK Skoðið laxdal.is/kjolar,yrhafnir • facebook.com/bernhard laxdal SUMARYFIRHAFNIR OG GLÆSIKJÓLAR Í ÚRVALI 30 viðtal Helgin 10.-12. maí 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.