Fréttatíminn - 10.05.2013, Page 56
Ásmundarsafn ný sýning opnar laugardaginn 11 maí
Sagnabrunnur –
Ásmundur og bókmenntir
Ásmundur Sveinsson var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Hann var á meðal þeirra sem kynntu fyrir Ís-
lendingum nýja formskrift í myndlist 20. aldar.
s ýningin Sagnabrunnur-Ásmundur og bókmenntir opnar í Ásmundar-safni á morgun, laugardaginn 11
maí klukkan 16.
„Ásmundur Sveinsson (1893–1982) fór
mismunandi leiðir í listsköpun sinni og
sótti m.a. innblástur í helgisögur, goð-
sagnir, Íslendingasögur og þjóðsögur,“
segir í tilkynningu Listasafns Reykja-
víkur. „Á þessari sýningu gefur að líta 20
höggmyndir í eigu Listasafns Reykjavík-
ur sem vísa allar með einum eða öðrum
hætti í bókmenntarfinn og eru til vitnis
um þann mikla sögumann sem Ásmund-
ur Sveinsson var. Meðal verka á sýning-
unni er hið magnaða verk Helreiðin en
Ásmundur sagði m.a. um það: „Þetta er
draugurinn frá Hel, stríðsguðinn. Hann
er auðvitað á hesti úr Hel. Þegar ég gerði
fyrstu skissurnar að Helreiðinni hafði
ég þjóðsöguna um Djáknann á Myrká
í huga. En svo fannst mér ég þurfa að
sleppa konunni og þá varð úr þessu Hel-
reiðin, sótt í Eddu: “
Verkin á sýningunni eru unnin á ár-
unum 1922-1968 og sýna flest tiltekna
atburði. Hver mynd er ákveðið tímaskeið
oftast það dramatískasta og áhrifamesta
úr hverri sögu. Ásmundur velur dauð-
stund Grettis úr Grettissögu í verkinu
Dauði Grettis, í verkinu Davíð og Golíat
sýnir Ásmundur þegar Davíð þeytir
völunni í höfuð Golíats og í verkinu Móðir
mín í kví kví sjáum við þegar barnið birt-
ist móðurinni.
Ásmundur Sveinsson var einn af frum-
kvöðlum íslenskrar höggmyndalistar.
Hann var á meðal þeirra sem kynntu
fyrir Íslendingum nýja formskrift í mynd-
list 20. aldar. Verkum hans var ekki alltaf
jafn vel tekið, en með tímanum hafa þau
fest sig í sessi sem ein af birtingarmynd-
um íslenskrar sagnahefðar, samfélags
og náttúru á 20. öld. Ásmundur hélt alla
tíð tryggð við þá hugmynd að listin ætti
erindi til fólksins og ætti heima á meðal
þess. Hann var kallaður alþýðuskáldið í
myndlist og án efa á þessi hugsjón rætur
að rekja til lífsafstöðu hans, ekki síður en
höggmyndahefðarinnar.
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari
ánafnaði Reykjavíkurborg verk sín ásamt
heimili sínu eftir sinn dag. Ásmundar-
safn í Sigtúni var opnað formlega vorið
1983 þannig að nú eru 30 ár síðan safnið
opnaði. Þá eru 120 ár frá því Ásmundur
Sveinsson fæddist þann 20. maí n.k. en
af því tilefni verður frítt inn í safnið þann
dag.“
Hel á allt.
Allt er
vígt dauð-
anum,
blóm, jörð
og menn.
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 10/5 kl. 19:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 11/5 kl. 19:00 Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn.
Sun 12/5 kl. 13:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn.
Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Lau 1/6 kl. 13:00 Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 16/5 kl. 19:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 17/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Lau 18/5 kl. 19:00 Fim 6/6 kl. 19:00 Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Fös 7/6 kl. 19:00 Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 23/5 kl. 19:00 Lau 8/6 kl. 19:00 Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Sun 9/6 kl. 13:00
Sun 26/5 kl. 13:00 Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn.
Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu!
Gullregn (Stóra sviðið)
Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 10/5 kl. 20:00 Fim 16/5 kl. 20:00 Fim 23/5 kl. 20:00
Lau 11/5 kl. 20:00 Fös 17/5 kl. 20:00
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Snýr aftur í takmarkaðan tíma.
Núna! (Litla sviðið)
Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 21/5 kl. 20:00 Þri 4/6 kl. 20:00 lokas
Þri 14/5 kl. 20:00 Mið 22/5 kl. 20:00
Mán 20/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu.
Circus Cirkör: Wear it like a crown (Stóra sviðið)
Fim 4/7 kl. 20:00 Lau 6/7 kl. 20:00 Mán 8/7 kl. 20:00
Fös 5/7 kl. 20:00 Sun 7/7 kl. 20:00 Þri 9/7 kl. 20:00
Í samstarfi við Norræna húsið. Meginsýning Volcano sirkushátíðarinnar.
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 10/5 kl. 20:00 Lau 18/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00
Lau 11/5 kl. 20:00 Fim 23/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00
Fim 16/5 kl. 20:00 Lau 25/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas
Fös 17/5 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00
Grímusýning síðasta leikárs. Síðustu sýningar.
Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið)
Sun 12/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH – EB, Fbl
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn Sun 2/6 kl. 19:30
Lau 11/5 kl. 19:30 Aukas. Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn Fös 7/6 kl. 19:30
Sun 12/5 kl. 19:30 Aukas. Sun 26/5 kl. 19:30 Aukas. Lau 8/6 kl. 19:30
Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn Sun 9/6 kl. 19:30
Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 31/5 kl. 19:30 Fös 14/6 kl. 19:30
Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Lau 1/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30
Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 Fös 31/5 kl. 19:30
Lau 11/5 kl. 19:30 Fös 24/5 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30
Fim 16/5 kl. 19:30 Lau 25/5 kl. 19:30
Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum?
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 12/5 kl. 14:00 Sun 26/5 kl. 14:00 Sun 2/6 kl. 14:00 Lokas.
Síðustu sýningar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 11/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 13:30
Lau 11/5 kl. 15:00 Lau 25/5 kl. 15:00
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka!
Hvörf (Kúlan)
Fös 10/5 kl. 19:00 Lau 11/5 kl. 19:00 Sun 12/5 kl. 19:00
Lab Loki í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 11/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 13:30
Skemmtileg brúðusýning fyrir börn
74,6% ... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 35 – 49 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent jan - mars 2013
850 svör
Sigurbjörn Þorkelsson hefur gef-
ið út sína sjöundu ljóðabók, Sjáðu
með hjartanu. Ljóðin í bókinni
urðu til frá árinu 2007 til 2013 og
óhætt er að segja að skáldið sé
afkastamikið þar sem bókin telur
ein 155 ljóð.
Sigurbjörn hefur gefið út tutt-
ugu bækur, þar á meðal bæna-
bækur, og hann segist sækja mik-
ið í trúna, „þann dýrmæta sjóð“.
„Trúin er baklandið án þess þó
að ég sé endilega að tönnlast á
henni og Guði í öllum ljóðunum.
En ég sæki í þennan kjarna.“
Sigurbjörn segir ljóðin koma
til sín hvar sem er og hvenær
sem er. „Ég er því mikið með
blýantinn og skrifblokkina á lofti
þegar ég fæ hugdettur. Síðan set-
ur ég þetta saman, geymi, breyti
og tel mig bæta með tímanum
þangað til ég tel mig tilbúinn til
að láta ljóðið frá mér.“
Sigurbjörn viðurkennir að
hann sé alltaf jafn feiminn þegar
hann birti hugrenningar sínar en
„ég verð voðalega glaður þegar
ég finn að fólk nennir að pæla í
þessum textum.“
sigurbjörn Þorkelsson sjÁðu með hjartanu
Sækir í sjóð trúarinnar
Sigurbjörn Þorkelsson gefur ljóðabók sína,
Sjáðu með hjartanu, sjálfur en þetta er hans
tuttugasta bók.
56 menning Helgin 10.-12. maí 2013