Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 2
2 x 10
Kvennahlaupið 8. júní
Hreyfum okkur saman í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ
Taktu daginn frá fyrir
Gefa öllum yngstu grunnskólabörnum hjálma
Ísfirðingurinn Óskar Jakobsson mun þann
30. maí leggja af stað hlaupandi frá Reykja-
vík til Ísafjarðar til styrktar langveikum
börnum. Vegalengdin er 456 kílómetrar og
ætlar Óskar að hlaupa hana á tíu dögum.
Samsvarar það rúmlega maraþonhlaupi á
dag, tíu daga í röð. Verkefnið gengur undir
nafninu Hlaupið heim en Óskar ólst upp
á Ísafirði og er því að hlaupa aftur heim á
æskuslóðirnar. Óskar vill með hlaupi sínu
vekja athygli á bágri stöðu langveikra barna
og stofna um leið styrktarsjóðinn Hlaupið
heim.
Kveikjan að styrktarsjóðnum er ungur
vinur Óskars, Vestfirðingurinn Finnbogi
Örn Rúnarsson 11 ára, en hann hefur gengið
í gengum miklar raunir á sinni stuttu ævi og
hefur síðasta ár verið honum og fjölskyldu
hans sérlega erfitt. Finnbogi Örn fór í hjarta-
aðgerð til Svíþjóðar í apríl fyrir ári síðan þar
sem gert var við hjartaloku. Viðgerðin gekk
vel en aðgerðin tók mjög á Finnboga og var
hann lengi að jafna sig. Stóra áfallið reið
svo yfir 1. desember síðastliðinn en þá fékk
Finnbogi Örn heilablóðfall. Hann lamaðist
á hægri hlið líkamans og missti málið. Rifa
hafði komið á ósæð sem olli blóðtöppum,
Finnbogi var í lífshættu en áhættan við að-
gerð var svo mikil að það var ekki reynandi.
Finnbogi Örn lá á Barnaspítala Hringsins
fram að jólum en þá virtist sem skemmdin
á ósæðinni hafi lagast að einhverju leyti af
sjálfu sér, sem telst í raun kraftaverk.
Finnbogi Örn er á góðum batavegi en á þó
enn þónokkuð í land með að ná fyrri styrk
og heilsu, en það er vandfundinn eins mikill
baráttujaxl og þessi Vestfjarðavíkingur er.
Mikið hefur mætt á fjölskyldunni síðan
Finnbogi Örn veiktist, bæði andlegt álag
sem er eðlilegt eftir svona áfall sem og fjár-
hagsáhyggjur en móðir Finnboga hefur
verið frá vinnu síðan hann veiktist.
Styrktarsjóður Hlaupið heim mun styðja
við bakið á Finnboga Erni og fjölskyldu auk
þess sem Neistinn, styrktarfélag hjartveikra
barna nýtur góðs af þessu afreki Óskars.
Hægt verður að fá nánari upplýsingar og
fylgjast með Óskari á facebook síðunni
Hlaupið heim.
Upplýsingar um söfnunina:
Reikningsnúmer 0556-26-330 Kenni-
tala:121101-3190 -sda
Íslykillinn vinsæll
Íslykillinn var tekinn í notkun í apríl
síðastliðnum en hann er ætlaður til inn-
skráningar á vefi stofnana, sveitarfélaga,
félagasamtaka og fyrirtækja. Ennþá er
hægt að notast við veflykil ríkisskattstjóra
en því verður hætt á næstu mánuðum að
því er kemur fram á vef innanríkisráðu-
neytisins. Þegar hafa á fimmtánda þúsund
einstaklingar og á annað hundrað lögaðilar
eignast Íslykil. Fjölmargir þjónustuaðilar
sem nýta sér innskráningarþjónustu Ísland.
is hafa nú innleitt Íslykilinn og munu flestir
framhaldsskólar landsins bætast í hópinn á
næstunni. Um þrjú þúsund manns skrá sig
daglega í innskráningarþjónustu Ísland.is
og notar meirihluti þeirra Íslykil eða veflykil
ríkisskattstjóra.
Höfnuðu hóteli
Í Vestmannaeyjum hafa íbúar kosið
um það hvort veita eigi byggingarleyfi
fyrir hótel við Hástein. Alls var greitt 1041
atkvæði svo þriðjungur kosningabærra
Vestmannaeyinga tók þátt. Niðurstaða
könnunarinnar var sú að 56% voru á móti
hóteli við Hástein en 44% fylgjandi því.
Íbúakönnunin var ráðgefandi fyrir bæjar-
stjórn og mun hún taka sér tíma til að fara
yfir niðurstöðurnar. Elliði Vignisson, bæjar-
stjóri Vestmannaeyjabæjar, er ánægður
með þátttökuna og segir hana meiri en
hann hafi þorað að vona. „Ég lít svo á að
þetta leggi enn ríkari kröfu á okkur í bæjar-
stjórninni að tryggja lóðir til framkvæmda
fyrir framsækna aðila í ferðaþjónustu en
jafnframt þannig að heimamenn séu sáttir
við staðsetningu,“ segir Elliði.
Fatasöfnun um helgina
Rauði kross Íslands og Eimskip standa fyrir
árlegu fatasöfnunarátaki nú um helgina og
hefur af því tilefni komið fyrir söfnunar-
gámum við allar sundlaugar á höfuð-
borgarsvæðinu. Á landsbyggðinni er tekið
á móti fötum á móttökustöðvum Eimskips
Flytjanda og í merktum fatagámum Rauða
krossins um allt land. Rauði krossinn hefur
sent sérmerkta fatsöfnunarpoka á öll
heimili á landinu til að minna á fatasöfn-
unarátakið. Pósturinn styður verkefnið
með því að dreifa pokunum endurgjalds-
laust. Árlega eru þúsund tonn af fatnaði
urðuð hér á landi sem myndu nýtast til
endurvinnslu og skapað gæti tekjur fyrir
hjálparstarf Rauða krossins. -sda
Eimskipafélag Íslands og Kiwanishreyf-
ingin gefa öllum grunnskólabörnum sem
ljúka 1. bekk grunnskóla í vor reiðhjóla-
hjálma. Verkefnið er árviss viðburður
félaganna til að stuðla að umferðaröryggi
yngstu hjólreiðarmanna landsins. Verk-
efnið nefnist „Óskabörn þjóðarinnar“
en samtals munu um 4.500 börn fá
reiðhjólahjálma að gjöf að þessu sinni. Á
þeim áratug sem verkefnið hefur staðið
yfir hafa rúmlega 40 þúsund börn eða
um 13% af þjóðinni notið góðs af því.
„Verkefnið er okkur mjög kært og
stendur okkur nærri. Við fáum fregnir af
því á hverju ári frá foreldrum, lögreglu
og skólayfirvöldum að hjálmarnir hafi
bjargað barni frá alvarlegum meiðslum,“
segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
,,Hjálmarnir hafa sannarlega komið að
góðum notum fyrir rúmlega 40 þúsund
börn á þessum árum. Við höfum átt mjög
gott og ánægjulegt samstarf við Eimskip
í þessu mikilvæga verkefni,“ segir Hjördís
Harðardóttir, umdæmisstjóri hjá Kiwanis-
hreyfingunni.
Kiwanishreyfingin hefur á undanförn-
um vikum farið í alla grunnskóla landsins
og afhent börnum 1. bekks grunnskóla
hjálma. Foreldrar og forráðamenn eru
beðnir um að vera vakandi fyrir því þegar
börn þeirra koma heim með hjálma og
aðstoða þau við að stilla þá rétt.
Hættuástand vegna björgunarþyrlu í drammen í noregi
Þakklát að lifa þetta af
Það var smá
innskot í klett
þarna og við
settum börnin
og hundinn strax
þangað. Svo
reyndum við
að vera upp við
klettavegginn og
hlífa okkur fyrir
grjótregninu.
Við vorum ellefu saman
að ganga upp með skógi
vöxnu gili og sáum mann
falla niður gilið og slasast
á höfði. Við hlúðum að
honum og hringdum eftir
hjálp,“ segir Gyða Ölvis-
dóttir. Þegar hópurinn
áttaði sig á því að þyrla
væri á leiðinni að sækja
hinn særða reyndu tveir úr
hópnum að benda þyrlunni
á að koma ofar á hæðina
vegna trjáa sem voru á
slysstaðnum. „Við gerðum
okkur strax grein fyrir
því að það yrði hættulegt
ef þyrlan kæmi til okkar
og reyndum að vísa henni
burt en það gekk ekki,“
segir Gyða. Þyrlan kom
á slysstaðinn og spaðar
hennar slógust í há tré
sem féllu niður á hópinn.
Við þetta þyrluðust stórir
grjóthnullungar upp i loft-
ið og hættuástand skapað-
ist. „Það var smá innskot í
klett þarna og við settum
börnin og hundinn strax
þangað. Svo reyndum við
að vera upp við klettavegg-
inn og hlífa okkur fyrir
grjótregninu,“ segir Gyða.
Björgunarþyrlan sem
kom til að sækja einn
særðan snéri því til baka
með þrjá vegna grjót-
hrunsins. „Ein úr mínum
hópi höfuðkúpubrotnaði
og skarst illa og svo var
þarna annar sem skarst
illa og þau tvö fóru til
Óslóar með björgunar-
þyrlunni, ásamt þeim sem
þyrlan kom upphaflega að
sækja en sá hafði slasast
enn meira eftir grjótregn-
ið. Svo voru þrír aðrir sem
slösuðust minna. Sjálf er
ég með skurð á nefi og
er marin og blá á báðum
fótum og baki en við
fórum tvö á eigin vegum
til læknis í Drammen,“
segir Gyða.
„Mér finnst margt rangt
við það hvernig þessi
björgunaraðgerð var fram-
kvæmd og mikilvægt að
lærdómur verði dreginn
af þessu atviki. Þetta var
hörmulegt en við erum
mjög þakklát að lifa þetta
af. Þetta var eins og nátt-
úruhamfarir,“ segir Gyða.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
góðgerðarstarf Hleypur til styrktar langveikum börnum
Hleypur tíu maraþon á tíu dögum
Gönguferð hóps nokkurra Íslendinga og Norðmanna um Kjøsterudjuvet í Drammen í Noregi um
síðustu helgi tók óvænta stefnu þegar hópurinn varð vitni að því þegar maður hrapaði niður gil.
Hópurinn hringdi eftir hjálp og var þyrla send á staðinn. Spaðar þyrlunnar slógust í há tré sem
féllu niður og ollu miklu grjóthruni sem slasaði þá sem á vettvangi voru. „Við erum fegin að eng-
inn dó í þessu slysi,“ segir Gyða Ölvisdóttir, ein þeirra sem var á staðnum.
Spaðar
þyrlunnar
slógust í tré
sem féllu
og mikið
grjóthrun
fylgdi á eftir.
Bakpokar
göngufólks-
ins lentu
undir trjám
og grjóti.
Hluti
hópsins að
leggja af
stað upp
gilið. Gyða
Ölvisdóttir
er önnur á
myndinni
til hægri.
Þyrla af gerðinni Sea King kom að sækja slasaðan göngumann en í björgunaraðgerðinni slösuðust nokkrir aðrir til viðbótar og
snéri þyrlan til baka með þrjá slasaða. Ljósmynd/Agnar Guðmundsson.
Óskar Jakobsson og Finnbogi Örn Rúnarsson
2 fréttir Helgin 24.-26. maí 2013