Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 38
Keyrði framhjá stjórnar- ráðinu í dag. Er það kannski skrifað með stórum staf ? Stjórnar- ráðið? Eða stjórnar- ráðið? Þarf að gúggla það. Dönsku astma- og ofnæmissamtökin Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá FÁÐU GÓÐ RÁÐ VIÐ OFNÆMI NEUTRAL.IS K æra dagbók. Fundurinn á Laug-arvatni gekk vel. Þessar teng-ingar með hverabrauðinu voru hins vegar ekki að gera sig. Segðu- það-með-blómunum-legt. Segðu-það- með-bakkelsinu. Ég er ekki góður í svona undirtextum. Ég held líka að fólk nenni ekki að lesa þá. Hverjum er ekki sama um Jónas frá Hriflu? En ég nefndi samt ungmennafélögin. Öll endurreisn verður að eiga sér horfna gullöld. Hjá framsóknarmönnum eru það ungmennafélögin, héraðsskólarnir og Jónas. Svo koma hinar myrku aldir. Það er Halldór Ásgrímsson, Guðni og félagar.“ Þetta er meðal þess sem lesa mátti í dagbók Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, formanns Framsóknarflokks- ins, á vef Fréttatímans, frettatiminn. is, í kjölfar þess að hann bauð blaða- mönnum upp á þrumara á Laugarvatni á miðvikudaginn – í sólríku veðri. Þar skrifuðu þeir Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, undir sátt- mála nýrrar ríkisstjórnar. Sigmundur Davíð er því orðinn forsætisráðherra, yngstur allra slíkra. Rétt er að ítreka, eins og gert er á vef blaðsins, að dagbókin er ekki skrifuð af Sigmundi Davíð sjálfum heldur er hún spéspegill – til þess gerð að gera lífið skemmtilegra. Á vefnum fretta- timinn.is birtast dagbækurnar á degi hverjum. 21. maí 2013 Kæra dagbók. Ég veit ekki hvort ég myndi þola marga svona daga. Ég las stjórnarsáttmálann og smekkfullur salurinn í Rúgbrauðsgerðinni ætlaði að rifna af fögnuði. Þetta er ágæt stefnu- yfirlýsing, en ekki svona góð. Í raun hefði ég getað lesið markaskrána og fólkið hefði klappað. Það er svo þakk- látt. Þakklátt mér. Fyrir að hafa leitt það inn úr kuldanum og til valda. Og ekki bara það. Heldur er það nú í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér ekki púkó að vera framsóknarmaður. 20. maí 2013 Kæra dagbók. Ég var bjartsýnn og kátur fram eftir degi. Leið eins og sigurvegara. En svo pompaði ég í kvöld. Fannst allt ómögulegt. Ég fæ forsætisráðherraembættið en Bjarni allt annað. Fjármálin, atvinnulífið, allt sem skiptir máli í velferðarkerfinu. Ég fæ samgöngur og umhverfismál. Götur og mosa. Og utanríkisráðuneytið. Í ríkisstjórn sem vill engin samskipti við útlönd. Eins og skór handa fótalausum manni. 19. maí 2013 Kæra dagbók. Ég slökkti á símanum í dag. Ég vildi fá smá frið. Datt meira að segja í hug að fara í kirkju í morgun. Ég lá í rúminu, nývaknaður. Áttaði mig á að Anna Stella hafði ekki vakið mig. Læðst með barnið fram. Að vera stjórnmálamaður er eins og að vera dauðvona sjúklingur. Fólk vill ekki raska ró þeirra. Ég slökkti á símanum til að fá fri frá þessum gömlu. Gamlir stjórnmálamenn. Er eitthvað til sem er aumkunarverðara? 18. maí 2013 Kæra dagbók. Ég er venjast tilhugs- uninni. Að vera númer eitt. Forsætis- ráðherra. Keyrði framhjá stjórnar- ráðinu í dag. Er það kannski skrifað með stórum staf? Stjórnarráðið? Eða stjórnarráðið? Þarf að gúggla það. 17. maí Kæra dagbók. Jæja. Þá fer þetta að skella á. Fyrsta ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. SDG 1.0. Davíð var forsætisráðherra í 14 ár. Ég gæti orðið forsætisráðherra fram á 2027. En ég gæti líka fallið í haust. Ef ég verð forsætisráðherra jafn lengi og Davíð verð ég 52 þegar ég hætti. 53 ára ef ég slæ metið hans. Sá maður sem hefur setið lengst samfleytt á stóli forsætisráðherra. En samt svo ungur. Ólafur Ragnar var 53 ára þegar hann var kosinn forseti. Ég virðist ætla að verða sá maður sem á lengstu full- orðinsár sögunnar. Mamma segir að ég hafi fæðst gamall. Anna Stella segir að ég hafi verið rígfullorðinn þegar við kynntumst. Kannski verð ég for- seti. Það er eiginlega eina starfið sem fyrrum forsætisráðherra getur sinnt. Ekki vil ég vera ritstjóri Tímans. Í raun hefði ég getað lesið marka- skrána og fólkið hefði klappað Í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér er ekki púkó að vera framsóknarmaður. Fólkið er svo þakklátt. Þakklátt mér. Kannski verð ég forseti. Það er eiginlega eina starfið sem fyrrum forsætisráðherra getur sinnt. Ekki vil ég vera ritstjóri Tímans. Fundurinn á Laugarvatni gekk vel. Þessar tengingar með hverabrauðinu voru hins vegar ekki að gera sig. Öll endurreisn verður þó að eiga sér horfna gullöld. Hjá framsóknarmönnum eru það ungmennafélögin, héraðsskólarnir og Jónas. Ljósmynd/Hari 38 dagbækur Helgin 24.-26. maí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.