Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.05.2013, Page 4

Fréttatíminn - 24.05.2013, Page 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI Fjöldi gas og kolagrilla á frábæru verði www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka daga Opið kl. 11 - 16 laugardaga VELDU GRILL SEM EN DIST OG ÞÚ SPARA R 59.900 Er frá Þýskalandi Lói á flugi Cannes veður Föstudagur laugardagur sunnudagur SA 3-10 m/S. Rigning en úRkomulítið nA-lAndS. Hiti 6 til 15 Stig. HöfuðboRgARSvæðið: SA 5-10 m/S og rigning. Hiti 5 til 9 Stig. Sv 3-10 m/S og SkúRiR v-til en bjARtviðRi A-lAndS. Hiti 6 til 13 Stig. HöfuðboRgARSvæði: SV-læg átt og Skúrir. Hiti 5 til 9 Stig. A-átt, 5-13 m/S. Rigning en úRkomu- lítið nA-lAndS. Hiti 4 til 9 Stig. HöfuðboRgARSvæði: A 5-10 m/S. rigning og Hiti 4 til 8 Stig. Suðlægar áttir og vætu- samt sunnan- og vestantil Sunnanátt og rigning S-og V-til í dag en skúraveður á morgun. Skýjað með köflum en úrkomulítið fyrir norðan en bjartviðri á morgun. Fremur milt, en kólnar um helgina. Hvassari austan- og norð- austanátt á sunnudag og samfelldari rigning S- og SA-lands en skúrir SV-til og þurrt nA-lands. n-lægari um kvöldið. 8 10 12 10 8 7 6 8 7 8 6 5 5 5 7 Elín Björk Jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is Íslensk teiknimynd, Lói – þú flýgur aldrei einn, hefur verið seld í dreifingu til 30 landa um allan heim en gengið var frá samningum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Enn eru þó þrjú ár þar til teiknimyndin verður frumsýnd. Myndin fjallar um lítinn lóuunga sem kemur síðastur úr eggi og á erfitt uppdráttar í lífinu. Friðrik Erlingsson skrifar söguna og handritið að myndinni sem verður í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar og Gunnars Karlssonar sem jafnframt hannar útlit og persónur myndarinnar. Myndin er framleidd af Hilmari Sigurðssyni, Hauki Sigurjónssyni og Michael Coldewey. -sda Hagnaður Arion undir væntingum Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2013 nam 1,4 milljarði króna eftir skatta samanborið við 4,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu frá bankanum segir Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri uppgjörið undir væntingum og að breytingar á verðmæti lána, sérstaklega gengisbreytingar hafi neikvæð áhrif. Einnig sé 500 milljón króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á kortafyrirtækið Valitor, sem er í eigu bankans, vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, færð til gjalda á tímabilinu. -sda Innbrotum fækkar Innbrotum og eignaspjöllum hefur fækkað það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt af- brotatölfræði lögreglunnar. Fjöldi ofbeldisbrota hefur lítið breyst en umferðarslysum hefur fjölgað lítið eitt. Alls hafa verið skráðir 1.582 þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu það sem af er árinu 2013, 359 innbrot, 462 eignaspjöll og 276 ofbeldisbrot. Fjöldi umferðar- slysa er 141 það sem af er ári. -sda Hallsteinsgarður í eigu Reykvíkinga Jón gnarr borgarstjóri og Hallsteinn Sigurðsson myndlistarmaður undirrituðu í vikunni samkomulag þar sem Hallsteinn gefur Reykjavíkurborg 16 höggmyndir úr áli sem áður höfðu verið settar upp í Gufunesi til prýði fyrir Grafarvoginn. Hallsteinn vann listaverkin á tímabilinu 1989 til 2012 og kom þeim fyrir á landspildu í landi Gufuness, sem hann hefur haft til afnota síðan 1988. Höggmyndir Hall- steins sem unnar eru úr áli eru opnar og léttar í efni og formi. Í Gufunesi hefur hann byggt upp skemmtilegan garð þar sem listaverkin hafa notið sín og veitt gestum og gangandi ánægju. Verk Hallsteins Sigurðssonar eru víða um land, á söfnum, í einkaeign og í al- menningsrýmum. Hann hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hallsteinsgarði verður form- lega veitt móttaka við hátíðlega athöfn á Grafarvogsdeginum á morgun, laugardaginn 25. maí, klukkan 13. d óttir mín hefur enga hjálp fengið. Þau segja í skólanum að hún sé mjög breytt eftir þetta atvik. Henni líður mjög illa,“ segir móðir stúlku sem í ársbyrjun var numin á brott af ókunnugum karlmanni í Árbæ. Lýst var eftir manninum í fjölmiðlum á sínum tíma og var hann hand- tekinn fyrir að hafa villt sér á heimildir og fengið tvær stúlkur með sér í bílnum sínum út fyrir borgarmörkin þar sem hann káfaði á þeim. „Ég talaði sjálf við Barnahús og fékk þar skýr svör að hennar mál væri ekki á þeirra sviði þar sem brottnámið vegi meira en áreitnin,“ segir móðirin. Dóttir hennar, sem nú er nýorðin átta ára, hugsar enn mikið um manninn sem braut á henni. „Þetta er verst á kvöldin og nóttunni. Hún spyr mig af hverju hann sé svona veikur, hvort hann hafi gert þetta við fleiri stelpur og af hverju hann hafi valið þær, hvort það sé eitthvað við hana sem hafi valdið því að hann tók þær,“ segir móðirin sem er mjög ósátt við að dóttir hennar hafi ekki fengið aðstoð sérfræðinga til að vinna úr reynslunni. Í fréttum að undanförnu hefur síðan verið fjallað um að tíu ára stúku hafi verið rænt og misþyrmt kynferðislega af karlmanni í Vesturbænum. Sú stúlka mundi bílnúmer níðingsins og hefur vegna þess verið kölluð hetja. „Dóttir mín sá fjallað um það mál og spurði mig strax hvort þetta væri sami maðurinn, sem ekki er. Í vikunni kom síðan stelpa til hennar í skólanum og segir að hún sé ekki hetja. Hún spyr mig nú af hverju hún sé ekki líka hetja og ég þarf að reyna að út- skýra þetta allt fyrir stelpu sem er nýorðin átta ára,“ segir móðirin sem dregur ekki úr því að stelpan í Vesturbænum sé sannkölluð hetja. Lögreglan fór á sínum tíma fram á gæslu- varðhald yfir manninum sem nam brott stelpurnar í Árbænum en því var hafnað bæði af héraðsdómi og hæstarétti. Eftir því sem móðirin kemst næst er brotamaðurinn enn búsettur í hverfinu. „Ég heyri frá for- eldrum að hann sé hérna ennþá,“ segir hún. Móðirin er afar ánægð með þá þjónustu sem dóttir hennar fær í skólanum og segir bæði félagsráðgjafann þar og skólastjór- ann standa þétt við bakið á henni. Stúlkan þurfi hins vegar meiri hjálp. „Ég er ítrekað búin að hringja í barnavernd og skilja eftir skilaboð en ég fæ engin svör. Mér finnst svo undarlegt að enginn hringi til að athuga með hana. Þær voru sjö ára gamlar þegar þetta gerist. Ég veit ekki lengur hvað ég á til bragðs að taka þegar dóttir mín segist vera með sár í hjartanu,“ segir hún. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort maður- inn verður ákærður. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  sakamál maður sem nam á brott tvær stúlkur í ársbyrjun gengur laus Hún spyr mig af hverju hún sé ekki líka hetja. Stúlkan var numin á brott í janúar og hugsar enn mjög mikið um manninn sem villti á sér heimildir til að fá hana inn í bílinn sinn. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty „Dóttir mín fær ekki hjálp” Móðir stúlku sem var numin á brott í ársbyrjun er ósátt við að dóttur hennar fái ekki sérfræðiað- stoð til að vinna úr erfiðri reynslu. Dóttir hennar, sem er nýorðin átta ára, spyr daglega um brotamanninn og hvort hann hafi brotið gegn fleiri stelpum. Á nóttunni vaknar hún upp með martraðir um manninn. 4 fréttir Helgin 24.-26. maí 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.